Bodrum - Tyrkland - Hagnýtar upplýsingar

Hagnýtar upplýsingar - Bodrum - Tyrkland

Markaðir í Bodrum

Alla þriðjudaga er fatamarkaður og alla föstudaga er ávaxta- og grænmetismarkaður í Bodrum. Þar koma saman helstu innfæddu framleiðendurnir og selja vörur sínar á besta mögulega verði og eru því markaðarnir tilvaldir til að gera kjarakaup. Og ekki gleyma að prútta!

Eitt af sjö undrum veraldar

Rústir Mausoleum-byggingarinnar, eða „The Tomb of Mausolus", er í hópi merkustu fornminja Grikkja, en þeir höfðu yfirráð yfir hluta Tyrklands fyrir þúsundum ára. Mousoleum var byggt 350 árum fyrir Krist, reis 45 metra upp fyrir jörðu og þótti marka tímamót í arkitektúr þess tíma. Byggingin var hönnuð af grísku arkitektunum Satyrus og Pythius fyrir fjölskyldu Mausolus, eins helsta ráðamanns persneska heimsveldisins.

Áhrifa byggingarinnar gætir enn í byggingarlist samtímans og er hún meðal annars fyrirmynd nokkurra af frægustu bygginga veraldar, svo sem Ráðhússins í Los Angeles, House of the Temple í Washington, St. George´s kirkjunnar í London. Allar byggja þeir á sömu formgerðinni og sást fyrst í Mauseleum þar sem tignarlegt alrýmið er umkringt löngum, þungum og höggmyndaskornum súlum. Í dag stendur byggingin ekki uppi en rústir hennar er verndaðar og er að finna rétt við Bodrum. Svæðið er algjörlega heilagt, enda er Mausoleum í hópi sjö forn-undra veraldar.

Pamukkale-lindirnar

Heitavatnslindirnar í Denizli, skammt frá Bodrum, eru algjörlega einstakar á heimsvísu og eru réttilega á heimsminjaskrá UNESCO yfir merkustu staði veraldar. Sögulegt gildi staðarins er einnig mikið, en í aldanna rás var hann afar vinsæll á meðal helstu þjóðhöfðingja heims sem einskonar afdrep til afslöppunnar og endurnæringar.

Svæðið ber heitið Pamukalle, sem á íslensku útfærist líklega sem „bómullarkastalinn" og einkennist af fjölmörgum fjallsbrúnum og hryggjum sem um streymir heitt og kalsíumríkt lindarvatn. Svæðið hefur allt litast skjannahvítt af efnasamsetningu vatnsins og telja sumir að vatnið hafi óútskýranlegan lækningamátt gagnvart mörgum sjúkdómum. Svæðið er opið almenningi og gefst öllum kostur á að baða sig í hinum náttúrulegu heitu pottum.

Hagnýtar upplýsingar

Flugvöllur: Í Bodrum heitir flugvöllurinn Milas-Bodrum og er hann nýbyggður. Öll stærstu flugfélög Tyrklands sem og fjöldi alþjóðlegra flugfélaga hafa þangað dagleg áætlunarflug.

Flug: Flugtíminn er um 5 klukkustundir og 50 mínútur. Flogið er í beinu leiguflugi með Icelandair í allt sumar.

Farangur: Hver farþegi má hafa með sér 20 kg af farangri að hámarki auk handfarangurs, sem má auk einnar handtösku vera taska að hámarki 6 kg og samanlögð lengd, breidd og hæð hennar má ekki vera meiri en 115 cm. Ungabörn, sem ekki eiga rétt á eigin sæti, mega hafa meðferðis 10 kg og að auki samfellanlega barnakerru.

Akstur: Það er auðveldlega hægt að taka bílaleigubíl í Bodrum og er það mjög algengt á meðal ferðamanna sem koma á svæðið. Þá er vinsælt að keyra til nálægra bæja og þorpa og líta á þær sögufrægu minjar sem eru á víð og dreif um svæðið. Við mælum hiklaust með því að fólk taki bíl í að minnsta kosti 1-2 daga - það er hreinlega of margt að sjá til að sleppa því, og verðið er lægra en þig grunar.

Landfræðileg lega: Tyrkland tengir saman Balkanskaga Evrópu við Vestur-Asíu. Átta landamæri liggja við Tyrkland, m.a. Grikkland, Íran og Írak. Bodrum er í Vesturhluta landsins, skammt frá Grikklandi en þó í Asíuhluta Tyrklands.

Íbúafjöldi: 70 milljónir.

Tímamismunur: 3 klst.á undan Íslandi.

Mynt: Líra

Hraðbankar: Eru víða.

Greiðslukort: Öll helstu kreditkort eru tekin góð og gild í flestum verslunum og veitingastöðum. Það gæti orðið erfiðleikum háð að treysta eingöngu á debetkort og því er eindregið mælt með því að hafa kreditkort að minnsta kosti með í för. Hraðbankar taka á móti öllum algengustu kreditkortunum, en ekki er sjálfgefið að hægt sé að taka út af debetkortum.

Hitastig og veður: Frá og með maí til og með september er um 30° gráðu meðalhiti í Bodrum. Hlýjustu mánuðirnir eru júlí og ágúst þegar meðalhiti er um 35° gráður. Rigning er afar sjaldséð yfir sumartímann og er iðulega afar sólríkt.


Apr.

Maí

Júní

Júlí

Ágúst

Sept.

Okt.

Meðalhiti (C°)

21°

24°

30°

32°

32°

29°

24°

Sjávarhiti (C°)

16°

18°

21°

23°

25°

24°

21°

Sólsk.stundir á dag

9

10

12

12

12

11

8

Tryggingar: Öllum ferðalöngum er ráðlagt að fara vel yfir sínar tryggingar áður en lagt er af stað í ferðalag og kaupa sérstaka ferðatryggingu sé hún ekki þegar innifalin í korti eða heimilistryggingu viðkomandi. Einnig er gott að hafa meðferðis tryggingaskírteini frá Tryggingastofnun ríkisins, komi eitthvað óvænt upp á.

Fararstjórar: Íslenskir fararstjórar taka á móti farþegum á flugvelli og eru þeim innan handar allan dvalartímann. Upplýsingar um viðtalstíma og nauðsynleg símanúmer er að finna í upplýsingamöppum á gististöðum.


Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Vildarklúbbur Icelandair

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Gengi gjaldmiðla

Fylgstu með gengisskráningu VISA greiðslukorta.

Ferðaávísun Mastercard

Nýttu þér ferðaávísun Mastercard þegar þú verslar hjá VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar