Enska ströndin - Hagnýtar upplýsingar

Hagnýtar upplýsingar - Enska ströndin

Flugvöllur: Flugvöllurinn Á Gran Canaria heitir Gando en er einnig merktur Las Palmas Airport (LPA). Flugstöðin er tiltölulega lítill og þægileg.

Flug: Flugtíminn er um  fimm og hálf klukkustund.

Farangur: Hver farþegi má hafa með sér 20 kg af farangri að hámarki auk handfarangurs, sem má auk einnar handtösku vera taska að hámarki 6 kg og samanlögð lengd, breidd og hæð hennar má ekki vera meiri en 115 cm. Ungabörn, sem ekki eiga rétt á eigin sæti, mega hafa meðferðis 10 kg og að auki samfellanlega barnakerru.

Akstur: Hægt er að bóka akstur til og frá flugvelli og þarf að greiða fyrir það sérstaklega. Frá flugvellinum til Ensku strandarinnar er um 30 mínútna akstur en frá Las Palmas til Ensku strandarinnar er um 60 mínútna akstur.

Landfræðileg lega: Kanaríeyjar eru sjö talsins og er Gran Canaria sú þriðja stærst, 1.532 ferkílómetrar og liggur rúmlega 200 km út frá strönd Marokkó í Afríku.

Íbúafjöldi: Á Kanaríeyjum búa samtals 1,5 milljón manns, þar af um 700 þúsund á Gran Canaria.

Tímamismunur: Á veturna eru Kanaríeyjar í sama tímabelti og Ísland, en á sumrin eru eyjarnar klukkutíma á undan.

Mynt: Evra. Sjáðu gengi evrunnar í dag.

Hraðbankar: Mjög víða.

Greiðslukort: Lang flestar búðir og veitingastaðir taka öll helstu kreditkort. Ekki er hægt að treysta því að hægt sé að greiða fyrir vöru eða þjónustu með debetkorti, en að sjálfsögðu er hægt að taka pening út úr hraðbönkum, hvort sem er út á kredit- eða debetkort.

Hitastig og veður:

Meðalhiti Nóv. Des. Jan. Feb. Mar. Apr.
... á daginn 24 19 20 20 21 21
...sjávar 23 20 19 19 19 19

Kanaríeyjar státa af veðurblíðu og mildu loftslagi árið um kring þar sem hafgola og hafstraumar sjá um að halda hitanum jöfnum og þægilegum árið um kring. Það hefur því verið sagt að á Kanaríeyjum ríki eilíft vor með að jafnaði um 20-25°C á daginn. Sjá nánar á www.gran-canaria-info.com.

Öryggi: Á flestum baðströndum gilda ákveðnar öryggisreglur því ekki eru alls staðar starfsmenn á öryggisvakt. Öryggisreglur eru þannig:

  • Rauður fáni: Bannað er að fara í sjóinn. Getur varðað sektum.
  • Gulur fáni: Aðgát skal höfð við böð.
  • Grænn fáni: Ládeyða, gott baðveður.

Tryggingar: Öllum ferðalöngum er ráðlagt að fara vel yfir sínar tryggingar áður en lagt er af stað í ferðalag og kaupa sérstaka ferðatryggingu sé hún ekki þegar innifalin í korti eða heimilistryggingu viðkomandi. Einnig er gott að hafa meðferðis tryggingaskírteini frá Tryggingastofnun ríkisins, komi eitthvað óvænt upp á.

Fararstjórar: Íslenskir fararstjórar taka á móti farþegum á flugvelli og eru þeim innan handar allan dvalartímann. Upplýsingar um viðtalstíma og nauðsynleg símanúmer er að finna í upplýsingamöppum á gististöðum.

Verslun og prútt: Verðlag á Gran Canaria þykir hagstætt þar sem eyjan er fríhöfn. Þar er því gott að freista þess að gera góð kaup á varningi á borð við úr, skartgripi, myndavélar, hljómtæki og aðrar rafmagnsvörur. Hjá götusölum og á mörkuðum er svo um að gera að reyna fyrir sér í prútt-tækninni.

Rafmagn: 220 volt.

Golfvellir: Margir golfvellir eru á eyjunni. Meðfylgjandi eru slóðir inn á nokkra þeirra:

Annað

Bíltúrinn - þefað af þjóðarsálinni

Auðvelt er að leigja sér bílaleigubíl á Gran Canaria og keyra hringinn í kringum eyjuna á einum degi, en það er líka hægt að leigja bíl í fleiri daga og gefa sér góðan tíma til að staldra við smáatriðin, velja vegaslóða utan þjóðvegarins og leyfa bæði eyjunni og íbúunum að koma á óvart til að fá eilítið sætari ilm af þjóðarsálinni.

Vegalengdir eru stuttar á Gran Canaria og þegar þéttbýlinu sleppir opnast víðáttan út á haf og upp í fjöll. Hver ströndin tekur við af annarri, sjórinn leitar inn á milli kletta og lítil sveitaþorp kúra svo hér og þar sem vert er að heimsækja. Takturinn slær hægar í litlu þorpunum en í þéttbýlinu og þar getur verið gaman að setjast niður á lítið heimilislegt kaffihús og spjalla við heimamenn, sem sýna gjarnan annað viðmót utan hefðbundinna ferðamannastaða.

Bragðlaukarnir - spænsk pæla

Á Gran Canaria er hægt að velja um mat á veitingastöðum frá öllum heimshornum. Vert er að prófa kanaríska matargerð, sem býður upp á fjölbreytileika því hugmyndaauðgi einkennir eldamennskuna, líklega til að bæta upp þær takmarkanir, sem framleiðsla eyjanna býður upp á.

Ferskt sjávarfang er vinsælt hráefni í matargerð eyjaskeggja. Smáréttir eru áberandi og hin þekkta „mojo picón"-sósa kemur víða við sögu. Ávaxta-úrval eyjunnar er mjög gott og suðrænir ávextir á borð við banana, avókadó og papaya eru þar á hverju strái.

Pæla eða paella á frummálinu er hinsvegar spænskur hrísgrjónaréttur, sem inniheldur bæði kjöt- og fiskmeti sem gestir eyjunnar ættu endilega að prófa á spænskum matsölustöðum. Hver pælu-meistari hefur sinn háttinn á að búa til sína sérstöku pælu, en hér er uppskrift, sem áhugasamir ferðalangar geta spreytt sig á, til að fá eilítinn þef af spænskri matarmenningu heim í stofu áður en lagt er af stað í ferðalagið.

  • 2 niðurskornir rauðlaukar
  • 1 gul paprika í bitum
  • 2 hvítlauksgeirar, pressaðir eða niðurskornir
  • Salt og nýmalaður pipar
  • 1/2 flaska spænskt hvítvín
  • 4 kjúklingabringur, skornar í teninga
  • 16 kræklingar
  • 100 g rækjur
  • 200 g lambalundir
  • 12 sneiðar reyktar svínalundir
  • 2 dl soðin hrísgrjón
  • Karrí eftir smekk
  • Steinselja

Steikið rauðlauk, hvítlauk og papriku í stórum potti í smá olíu. Hellið smá hvítvíni út í. Steikið síðan á pönnu lambalundir, kjúkling, svínalundir og helminginn af kræklingunum og setjið út í pottinn. Kryddið með salti og pipar. Hrærið vel í blöndunni og bætið reglulega við hvítvíni. Látið malla í um tíu mínutur. Bætið við afganginum af kræklingunum og hitið vel. Blandið hrísgrjónum og karríi saman við. Passið að hráefnið verði ekki of þurrt með því að bæta reglulega við hvítvíni.

Þegar hrísgrjónin eru soðin, bætið þá rækjunum út í og skreytið með steinselju. Athugið að kræklingarnir eiga að opnast þegar þeir eru hitaðir. Pælan er borin fram með einföldu salati með ristuðum sólkjarna- eða graskersfræjum og sýrðum rjóma, sem má blanda með góðri ólífuolíu.

Ummæli frá farþegum

„Við höfum ferðast ansi víða í gegnum árin, meðal annars til Gran Canaria á ári hverju yfir svartasta skammdegið hér heima síðastliðinn tíu ár. Nú er árleg Kanaríeyjaferð orðin hluti af okkar tilveru, eins og fjölmargra annarra í okkar vina- og kunningjahópi enda er eyjan einstaklega notaleg heim að sækja. Andrúmsloftið er afslappað, veðurfarið dásamlegt, gestrisnin mikil og maturinn afbragðs góður. Að okkar mati er Gran Canaria staður fyrir alla aldurshópa, allt frá ungum börnum upp í aldraða ellibelgi.“

- Særún Sigurgeirsdóttir og Ingvar Hólmgeirsson.


Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar