Antalya - Tyrkland - Hagnýtar upplýsingar

Hagnýtar upplýsingar - Antalya - Tyrkland

Hagnýtar upplýsingar

Flugvöllur:  Flugvöllurinn í Antalya er 13km frá miðborginni. Frá flugvellinum Antalya eru um 10 km á að hótelunum á Lara Beach og 30 km til Belek. Flugvöllurinn er nýlegur og þjónar bæði áætlunarflugi og leiguflugi.

Flug: Flugtíminn til Antalya er um 5 klukkustundir og 50 mínútur. Flugtiminn frá Antalya til Íslands er um 6.20 klst. Flogið er í beinu leiguflugi með Icelandair.

Farangur: Hver farþegi má hafa með sér 20 kg af farangri að hámarki auk handfarangurs, sem má auk einnar handtösku vera taska að hámarki 6 kg og samanlögð lengd, breidd og hæð hennar má ekki vera meiri en 115 cm. Ungabörn, sem ekki eiga rétt á eigin sæti, mega hafa meðferðis 10 kg og að auki samfellanlega barnakerru.

Almenningssamgöngur: Dolmus er lítill strætó eða stór leigubíll sem gengur eftir ströndinni og inn í borg. Fargjaldið er mjög ódýrt.  Sums staðar í Tyrklandi fylgja vagnarnir ekki ákveðinni tímatöflu, en í Antalya fylgja þeir áætlun. 

Akstur: Auðvelt er að taka bílaleigubíl í Antalya og er það mjög algengt á meðal ferðamanna sem koma á svæðið. Þá er vinsælt að keyra til nálægra bæja og þorpa og líta á þær sögufrægu minjar sem eru á víð og dreif um svæðið. Við mælum hiklaust með því að fólk taki bíl í að minnsta kosti 1-2 daga. Margt er að sjá í nágrenningu og stutt að renna til nágrannabæja eins og Side og Alanya.
 
Landfræðileg lega: Tyrkland tengir saman Balkanskaga Evrópu við Vestur-Asíu. Átta landamæri liggja við Tyrkland, m.a. Grikkland, Íran og Írak. Bodrum er í Vesturhluta landsins, skammt frá Grikklandi en þó í Asíuhluta Tyrklands. Antalya er við Miðjarðarhafsströnd Tyrklands.

Íbúafjöldi: 70 milljónir.

Tímamismunur: 3 klst.á undan Íslandi frá 28.mars til 31.október 2010. Eftir 31. Október er Trykland 2 klst. á undan Íslandi.

Mynt:  Líra

Hraðbankar: Eru víða.

Greiðslukort: Öll helstu kreditkort eru tekin góð og gild í flestum verslunum og veitingastöðum. Það gæti orðið erfiðleikum háð að treysta eingöngu á debetkort og því er eindregið mælt með því að hafa kreditkort að minnsta kosti með í för. Hraðbankar taka á móti öllum algengustu kreditkortunum, en ekki er sjálfgefið að hægt sé að taka út af debetkortum.

Hitastig og veður:  Á haustin er meðalhitinn í Antalya milli 20° og 30° gráður. Rigning er sjaldséð, nema rétt yfir háveturinn  frá desember og fram í febrúar.

Tryggingar: Öllum ferðalöngum er ráðlagt að fara vel yfir sínar tryggingar áður en lagt er af stað í ferðalag og kaupa sérstaka ferðatryggingu sé hún ekki þegar innifalin í korti eða heimilistryggingu viðkomandi. Einnig er gott að hafa meðferðis tryggingaskírteini frá Tryggingastofnun ríkisins, komi eitthvað óvænt upp á.

Fararstjórar: Íslenskir fararstjórar taka á móti farþegum á flugvelli og eru þeim innan handar allan dvalartímann.


Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Vildarklúbbur Icelandair

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Gengi gjaldmiðla

Fylgstu með gengisskráningu VISA greiðslukorta.

Ferðaávísun Mastercard

Nýttu þér ferðaávísun Mastercard þegar þú verslar hjá VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar