Beint í leiðarkerfi vefsins.
Flugvöllur: Flugvöllurinn heitir Sur Reina Sofia (TFS)
Flug: Flugtíminn er um fimm og hálf klukkustund.
Farangur: Hver farþegi má hafa með sér 20 kg af farangri að hámarki auk handfarangurs, sem má auk einnar handtösku vera taska að hámarki 6 kg og samanlögð lengd, breidd og hæð hennar má ekki vera meiri en 115 cm. Ungabörn, sem ekki eiga rétt á eigin sæti, mega hafa meðferðis 10 kg og að auki samfellanlega barnakerru.
Akstur: Hægt er að bóka akstur til og frá flugvelli og þarf að greiða fyrir það sérstaklega. Frá flugvellinum til gististaða er um 20 mínútna akstur.
Landfræðileg lega: Kanaríeyjar eru sjö talsins og er Tenerife sú stærsta, 2,034 ferkílómetrar og liggur rúmlega 300 km út frá strönd Marokkó í Afríku.
Íbúafjöldi: Á Kanaríeyjum búa samtals 2,1 milljón manns, þar af um 900 þúsund á Tenerife.
Tímamismunur: Á veturna eru Kanaríeyjar í sama tímabelti og Ísland, en á sumrin eru eyjarnar klukkutíma á undan.
Mynt: Evra. Sjáðu gengið.
Hraðbankar: Mjög víða.
Greiðslukort: Lang flestar búðir og veitingastaðir taka öll helstu kreditkort. Ekki er hægt að treysta því að hægt sé að greiða fyrir vöru eða þjónustu með debetkorti, en að sjálfsögðu er hægt að taka pening út úr hraðbönkum, hvort sem er út á kredit- eða debetkort.
| Hitastig og veður: | ||||||
| Meðalhiti á daginn | Nóv. | Des. | Jan. | Feb. | Mar. | Apr. |
| 23 | 22 | 21 | 21 | 22 | 22 | |
Kanaríeyjar státa af veðurblíðu og mildu loftslagi árið um kring þar sem hafgola og hafstraumar sjá um að halda hitanum jöfnum og þægilegum árið um kring. Það hefur því verið sagt að á Kanaríeyjum ríki eilíft vor með að jafnaði um 20-25°C á daginn. Sjá nánar.
Öryggi: Á flestum baðströndum gilda ákveðnar öryggisreglur því ekki eru alls staðar starfsmenn á öryggisvakt. Öryggisreglur eru þannig:
Tryggingar: Öllum ferðalöngum er ráðlagt að fara vel yfir sínar tryggingar áður en lagt er af stað í ferðalag og kaupa sérstaka ferðatryggingu sé hún ekki þegar innifalin í korti eða heimilistryggingu viðkomandi. Einnig er gott að hafa meðferðis tryggingaskírteini frá Tryggingastofnun ríkisins, komi eitthvað óvænt upp á.
Fararstjórar: Íslenskir fararstjórar taka á móti farþegum á flugvelli og eru þeim innan handar allan dvalartímann. Upplýsingar um viðtalstíma og nauðsynleg símanúmer er að finna í upplýsingamöppum á gististöðum.
Verslun og prútt: Verðlag á Tenerife þykir hagstætt þar sem eyjan er fríhöfn. Þar er því gott að freista þess að gera góð kaup á varningi á borð við úr, skartgripi, myndavélar, hljómtæki og aðrar rafmagnsvörur. Hjá götusölum og á mörkuðum er svo um að gera að reyna fyrir sér í prútt-tækninni.
Rafmagn: 220 volt.
Tenerife býður upp á marga möguleika og hér að neðan er listi yfir nokkra staði sem hægt er að leggja leið sína til.
LORO PARQUE er frábær dýragaður þar sem hægt er að sjá dýrin leika listir sínar eins og höfrunga, sæljón, páfagauka og fl. Mörgæsanýlendan í Loro Parque er stórfengleg og gaman er að sjá górillur, tígrísdýr, skjaldbökur, hákarla og önnur dýr þar.
EL TEIDE er hæsti tindur Spánar sem er 3.718 metrar. Enginn sem kemur til Tenerife missa af því að skoða þennan frábæra þjóðgarð. Loftslagið á svæðinu er ólíkt því sem þekkist annarsstaðir á eyjunum en það er oft kallað hitabeltisháfjalla-loftslag og þykir einstakt. Ekki gleyma að taka með ykkur peysu því að hægt er að fara með kláf upp í 3.555m hæð.
SANTA CRUZ er höfuðstaður Tenerife. Þangað er gaman að koma og er iðandi mannlíf við höfnina á torginu Plaza de España. Mörg söfn eru þar eins og lista- , náttúru- og mannvísindasafn, sögusafn og fl. Þar er einnig gaman að kíkja í verslunarmiðstöðvarnar og kíkja á hvað þær hafa upp á að bjóða.
SIAM PARK er nýlegur og stórskemmtilegur vatns-rennibrautargarður ofan við Costa Adeje. Garðurinn býður upp á fjölbreyttar sundlaugar og rennibrautir af öllum stærðum og gerðum. Í garðinum eru sólbekkir og læsanlegir skápar sem hægt er að leigja. Ef veður leyfir, er opið alla daga frá kl. 10:00 til 17:00.
GO-KART Karting club Tenerife er sagður einn af bestu go-kart ökubrautargarði í Evrópu. Skemmtileg afþreying fyrir alla fjölskylduna. Nánari upplýsingar fást í hótelmóttöku eða hjá fararstjórum í vitalstímum.
FREEBIRD ONE siglingin er farin frá höfninnni í Puerto de Colón sem er við Costa Adeje. Siglt er meðfram ströndinni þar sem við skoðum hvali og höfrunga og síðan er boðið upp á mat um borð, en siglingin tekur um fjóra tíma.
MEDIEVAL er kvöldskemmtun fyrir alla fjölskylduna þar sem riddarar miðalda sýna listir sínar. Burtreiðar, bardagar og dansandi hestar á meðan við snæðum.
SUBMARINO kafbáturinn fer í ferð á klukkutíma fresti alla daga frá höfninni í San Miguel. Ekki missa af því að komast í kynni við hið margbrotna dýralíf neðansjávar. Kafbátafyrirtækið býður uppá rútuferðir án endurgjalds nokkrum sinnum á dag. Upplýsingar í viðtalstímum hjá fararstjórum.
PIRAMIDE ARONA SHOW er kvöldskemmtun þar sem þema sýningarinnar er söngur, dans og tónlist að spænskum hætti.
JEEP TENERIFE er dagsferð með jeppum um eyjuna. Fyrsta viðkoma er á útsýnisstaðnum La Escalona og þaðan haldi til Vilaflor. Síðan er farið er um þjóðgarðinn Teide og stoppað er í Chío, Masca og Tamaimo.
JEEP GOMERA ferðin hefst með því að farið er með ferju frá Tenerife til eyjunnar La Gomera þar sem farið er í eins dags jeppaferð með enskumælandi fararstjóra.
LA GOMERA / F.OLSEN er dagsferð til La Gomera þar sem farið er vítt og breytt um eyjuna. Lagt er af stað frá gististað snemma morguns og ferjan tekin yfir til La Gomera. Innifalið í ferðinni er hádegisverður.
Flesta daga vikunnar má finna útimarkaði á eyjunni. Þeir opna yfirleitt á milli kl. 08:00 og 09:00 og eru opnir til kl. 14:00. Athugið að á mörkuðunum þarf að greiða með peningum, ekki greiðslukortum og er um að gera að prútta verðin niður.
Markaðir í nágrenni Playa de las Americas:
COSTA ADEJE markaðurinn er bæði á fimmtudögum og laugardögum. Markaðurinn er fyrir neðan hótel Costa Adeje við ströndina.
LOS CRISTIANOS er bær við hliðina á Americas ströndinni og er útimarkaður þar á sunnudögum.
Margar verslanir eru á eyjunni og eru þær yfirleitt opnar virka daga frá kl. 09:30 - 13:30 og frá 16:30 - 20:30.
Helstu verslunarkjarnar við Las Américas ströndina:
CENTRO COMERCIAL GRAN SUR er verslunarmiðstöð á Playa de las Américas. Þar er úrval af veitingastöðum, verslanum og börum.
CENTRO COMERCIAL ZAFARI er við "Laugaveginn" eða Avenida las Américas sem er aðalgatan á svæðinu. Þar eru verslanir, barir, veitingastaðir, nætuklúbbar og spilasalir.
SAN EUGENIO verslunarkjarninn býður upp á mikið af smáverslunum bæði inni og úti. Þar eru líka veitingastaðir og ýmislegt til afþreyingar.
GRAN SUR er stór verslunarmiðstöð í Adeje með fjölda verslana.
CENTRO COMERCIAL PLAZA DEL DUQUE er verslunar-miðstöð sem í Adeje. Þar eru mjög vandaðar verslanir og búðir með merkjavöru.
Verslunarmiðstöðvar í Santa Cruz:
EL CORTE INGLÉS er ein af stæstu verslunarmiðstöðvum á Spáni og hægt að fá þar nánast allt sem hugurinn girnist.
CONTINENTE CENTRO COMERCIAL er stór matvörumarkaður með miklu úrvali.
IKEA er í Santa Cruz.
MARKS & SPENCER er í Santa Cruz.