Madeira - Hagnýtar upplýsingar

Hagnýtar upplýsingar - Madeira


Flugvöllur: Flugvöllurinn er Madeira Airport (FNC).

Flug: Flugtíminn er um það bil fimm klukkustundir.

Farangur: Hver farþegi má hafa með sér 20 kg af farangri að hámarki auk handfarangurs, sem má fyrir utan eina handtösku vera taska að hámarki 6 kg og samanlögð lengd, breidd og hæð hennar má ekki vera meiri en 115 cm. Ungabörn, sem ekki eiga rétt á eigin sæti, mega hafa meðferðis 10 kg og að auki samfellanlega barnakerru.

Akstur: Hægt er að bóka akstur til og frá flugvelli og þarf að greiða fyrir það sérstaklega. Frá flugvellinum til miðbæjar Funchal er um 15 mínútna akstur.

Tímamismunur: Á veturna er enginn tímamismunur en á sumrin er klukkan á Madeira einni klukkustund á undan okkar tíma. Sumartíminn er frá 27.03 - 30.10.

Mynt: Evra (EUR). Sjá gengi.

Hraðbankar: Mjög víða.

Greiðslukort: Í langflestum búðum og veitingastöðum er tekið við helstu kreditkortum. Ekki er hægt að treysta því að hægt sé að greiða fyrir vöru eða þjónustu með debetkorti en að sjálfsögðu er hægt að taka pening út úr hraðbönkum, hvort sem er út á kredit- eða debetkort.

Samgöngur: Fyrir þá sem ekki vilja ganga eru leigubílar og strætisvagnar á hverju strái. Mörg strætisvagnafyrirtæki eru á eyjunni en ef einungis á að taka strætó innan Funchal er best að halda sig við staðbundnu gulu strætisvagnana.

Verslanir: Flestar götuverslanir eru opnar á milli kl. 10.00 og 19:00, mánudaga til laugardaga. Verslunarmiðstöðvar eru opnar frá kl. 10:00 til 22:00, mánudaga til laugardaga, en sumar verslunarmiðstöðvar eru opnar til miðnættis og eru einnig opnar á sunnudögum. Athugið að opnunartími getur verið breytilegur eftir verslunum um helgar.

Tryggingar: Öllum ferðamönnum er ráðlagt að fara vel yfir sínar tryggingar áður en lagt er af stað í ferðalag og kaupa sérstaka ferðatryggingu sé hún ekki þegar innifalin í korti eða heimilistryggingu viðkomandi. Einnig er gott að hafa meðferðis tryggingaskírteini frá Tryggingastofnun ríkisins, komi eitthvað óvænt upp á.

Rafmagn: 220 volt.

Tungumál: Portúgalska er opinbert tungumál á Madeira.


Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar