Beint í leiðarkerfi vefsins.
Flugvöllur: Faro (FAO)
Flug: Flugið tekur u.þ.b. 4 klst.
Farangur: Hver farþegi má hafa með sér 20 kg af farangri að hámarki auk handfarangurs, sem má auk einnar handtösku vera taska að hámarki 6 kg og samanlögð lengd, breidd og hæð hennar má ekki vera meiri en 115 cm. Ungabörn, sem ekki eiga rétt á eigin sæti, mega hafa meðferðis 10 kg og að auki samfellanlega barnakerru.
Akstur: Hægt er að bóka akstur til og frá flugvelli og þarf að greiða fyrir það sérstaklega. Frá flugvellinum til Albufeira er um 40 mínútna akstur.
Landfræðileg lega: Portúgal er í Suðvestur-Evrópu á vesturstönd íberíuskagans.
Íbúafjöldi: rúmlega 10,5 milljónir
Tímamismunur: Á veturna er enginn tímamismunur, en á sumrin eru þeir einum klukkutíma á undan.
Mynt: Evra (EUR). Gengi
Hraðbankar: Eru víða
Greiðslukort: Öll helstu kreditkort eru tekin góð og gild í flestum verslunum og veitingastöðum. Það gæti orðið erfiðleikum háð að treysta eingöngu á debetkort og því er eindregið mælt með því að hafa kreditkort að minnsta kosti með í för. Hraðbankar taka á móti öllum algengustu kreditkortunum, en ekki er sjálfgefið að hægt sé að taka út af debetkortum.
Hitastig og veður:
| Maí | Júní | Júlí | ágúst | Sept. | |
| Meðalhiti | 22° | 25° | 28° | 28° | 26° |
| Sjávarhiti | 17° | 19° | 21° | 22° | 21° |
| sólsk.stundir á dag | 10 | 11.5 | 12 | 11.5 | 9.5 |
Verslun: Í Portimâo er H&M verslun. Akstur til Portimâo frá Albufeira tekur um 35 mínútur. Algarve Shopping verslunarmiðstöðinni er í 15 mínutna aksturfjarlægð frá Albufeira en þar er að finna fjölda verslanna s.s. Zara, Mango, Accessorize, Cortefiel, Women´s Secret, Pepe Jeans.
Öryggi: Á flestum baðströndum gilda ákveðnar öryggisreglur því ekki eru alls staðar starfsmenn á öryggisvakt. Öryggisreglur eru þannig:
Tryggingar: Öllum ferðalöngum er ráðlagt að fara vel yfir sínar tryggingar áður en lagt er af stað í ferðalag og kaupa sérstaka ferðatryggingu sé hún ekki þegar innifalin í korti eða heimilistryggingu viðkomandi. Einnig er gott að hafa meðferðis tryggingaskírteini frá Tryggingastofnun ríkisins, komi eitthvað óvænt upp á.
Rafmagn: 220 volt
Tungumál: Portúgalska er opinbera tungumálið. Einnig er töluð Mirandês af 15.00 íbúum í norðurhluta landsins.
Golfvellir:
Tölur í sviga merkja mínútur í akstri frá Albufeira
Fararstjórar: Íslenskir fararstjórar taka á móti farþegum á flugvelli og eru þeim innan handar allan dvalartímann. Upplýsingar um viðtalstíma og nauðsynleg símanúmer er að finna í upplýsingamöppum á gististöðum.
Akstur til Lissabon: Akstur frá Albufeira til höfuðborgarinnar Lissabon tekur u.þ.b. 2,5 klukkustund. Vegalengdin er 257 km en aksturinn fer að mestu fram á hraðbraut. Fararstjóri getur verið farþegum innan handar varðandi bílaleigubíl.
Akstur til Sevilla: Akstur til Sevilla á Spáni tekur u.þ.b. 2 klukkustundir og 10 mínútur. Vegalengdin er 229 km en aksturinn fer að mestu fram á hraðbraut. Fararstjóri getur verið farþegum innan handar varðandi bílaleigubíl.
Sjávardýragarður: Zoo Marine sjávardýragarðurinn er í 20 mínútna aksturfjarlægð frá albufeira.
Vatnsrennibrautagarðar: