Alicante - Spánn

Alicante - Spánn

Alicante - Miðstöð sólardýrkenda !

Úrval af fyrsta flokks gistingum á Benidorm og í Albir

VITA selur sæti í flugvélum Iceland Express til Alicante.

Ekki eru fararstjórar á vegum VITA í Alicante. Viðskiptavinir eru á eigin vegum meðan á dvöl stendur.


 

Ferðamannabærinn Alicante á suðausturströnd Spánar ætti að vera mörgum að góðu kunnur, enda hafa þúsundir Íslendinga flykkst þangað á undanförnum árum og jafnvel komið sér þar upp öðru heimili. Silkimjúkar strendur, blátær sjór, skínandi sól, iðandi mannlíf og fjölbreytt menning er á meðal þess sem einkennir Alicante og þar ættu allir að geta fundið sér eitthvað við hæfi.

Alicante er staðsett í hjarta Costa Blanca héraðsins á Spáni. Valencia er í um 90 mínútna akstursfjarlægð en það tekur um fimm klst. að keyra til Barcelona. Alicante er mikil ferðamannaborg og þar er hægt að nálgast alla þá þjónustu sem hugsast getur. Strandlengjan við borgina er yfir 7 km löng og fjölbreyttir skemmtigarðar og aðstæður til íþróttaiðkunar eru á hverju strái.

Þvert á það sem margir kunna að halda býður Alicante upp á margt fleira en strandlíf og slökun. Í bænum er meðal annars að finna fjölda áhugaverða safna, sögulegar minjar, skemmtilega markaði að hætti innfæddra og heimsþekktar verslanir. Þar ríkir einnig mikil matar- og vínmenning sem endurspeglast vel í þeim fjölda framúrskarandi veitingastaða sem eru á svæðinu. Næturlífið á Alicante er alþekkt og geta skemmtanaþyrstir ferðalangar valið á milli aragrúa af börum, skemmtunum og diskótekum.


Gististaðir - Alicante - Spánn

Villa Venecia  

Gullfallegt  „boutique“ hótel, sem opnaði vorið 2010. Einstaklega fallegt hótel þar sem sem hönnun, aðbúnaður og húsgögn er elegant og smart.  Marmari  á gólfum, falleg setustofa og bar í gestamóttöku. Gluggar ná frá gólfi til lofts og útsýni er einstakt.  Hótelið er 5 hæðir og tveir litlir þakgarðar. Annar er með með smá sundlaug , hvítum leðursófum og opnum kokkatailbar á kvöldin yfir sumarið. Hinn garðurinn er með nuddpotti og sauna. 

(+)nánar

Sandos Monaco hotel and Spa 

Hótel Sandos Monaco er gott 4ra stjörnu „allt innifalið“, sem opnaði vorið 2010 eftir gagngerar breytingar.  Gestamóttakan er stór og björt með marmara á gólfum og fínum setustofum. Sundlaugarsvæðið er allt flísalagt  með sólstólum og tveimur börum. Hótelið er á Levante ströndinni, um 450 metra frá ströndinni og gamla bænum. 
(+)nánar

Mediterraneo Benidorm 

Hótel Mediterraneo á Benidorm er nýlegt, nútímalegt 4ra stjörnu hótel, ofarlega í bænum. Hótelið er byggt í U em umlykur stóra sundlaug, barnalaug og aðstöðu með sólbekkjum. Um 20 til mínútna gangur er niður í gamla bæinn og Levante ströndina, en stutt er í bari, veitingastaði og verslanir. Strætó stoppar beint fyrir framan hótelið.

 

(+)nánar

Albir Playa  

Mitt á milli listamannabæjarins Altea og hins líflega Benidorm bæjar liggur hið frábæra hótel Albir Playa í stuttu göngufæri við Albir ströndina og kristaltæran sjóinn. Vinalegt andrúmsloft, frábær aðstaða og notaleg stemmning einkenna Albir Playa.
(+)nánar

Nadal Benidorm 

Hótel Nadal er fallegt 3ja stjörnu hótel, við enda Levante strandarinnar á Benidorm.Við hótelið er útisundlaug með sundlaugarbar, veröönd og útsýni er yfir Miðjarðarhafið.
Um leið og komið er út úr hótelinu tekur við iðandi mannlíf, en við hinn enda strandarinnar er gamli bærinn.
(+)nánar

Levante Club íbúðir 

Levante Club íbúðirnar eru í fjórum 12 hæða byggingum, sem standa umhverfis sundlaugargarðinn. Í aðalbyggingunni er gestamóttaka með veitingasalur, bar og nettengdar tölvur. Um 200 metrar eru  að Levante ströndinni og þaðan er auðvelt að ganga eftir strandgötunni alla leið í hinn skemmtilega miðbæ Benidorm. Íbúðirnar eru ágætlega rúmgóðar og hefur verið vel við haldið.
(+)nánar

Confort Nuevo Golf Apartments  

Confort & Nuevo Golf  íbúðirnar eru í tveimur fimm hæða byggingum, sem standa sitt hvorum megin við snyrtilegan sundlaugargarð, sem er með grasflöt, 2 sundlaugum og barnalaug. Um 300 metrar eru í miðbæinn og aðrir 300  metrar að ströndinni í Albir.  Nýlegar, stórar og einstaklega vel útbúnar íbúðir sem taka hámark 5 manns.
(+)nánar

Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Vildarklúbbur Icelandair

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Gengi gjaldmiðla

Fylgstu með gengisskráningu VISA greiðslukorta.

Ferðaávísun Mastercard

Nýttu þér ferðaávísun Mastercard þegar þú verslar hjá VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit


Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar

Inspired by Iceland