Bodrum í Tyrklandi, flug og ferðir til Bodrum | VITA.is

Bodrum - Tyrkland

Bodrum - iðandi mannlíf og einstök stemning!


Sumarið 2012 verður Bodrum eingöngu til sölu hjá vinum okkur á Ferð.is
Velkomin á síðuna og kynnið ykkur þennan spennandi áfangastað og úrval þeirra gististaða sem í boði eru.


Bodrum er lítill og heillandi hafnarbær við Eyjahafið í vesturhluta Tyrklands. Segja má að höfnin sé lífæð bæjarins, þar sem finna má fjölmargar verslanir, veitingastaði og kaffihús undir skugga St.Péturs kastalans glæsilega, sem gnæfir yfir bænum.

Chumhurriyet Caddesi helsta göngugata bæjarins, þar sem iðulega eru samankomnir færustu götulistamenn Tyrklands sem meðal annars búa til leðurskó- og veski eftir pöntunum. Í Tyrklandi er afskaplega hagstætt að versla og hægt er að kaup gæða tískufatnað og merkjavöru á ótrúlega hagstæðu verði. Í Bodrum er stór útimarkaður sem er opinn alla daga og einnig er þar að finna fjöldan allan af smærri sérverslunum við allra hæfi.

Fallegar strendur eru á hverju strái og þykja í hópi þeirra bestu í Evrópu. Eftir sólsetur lifnar svo um munar yfir hafnargötunni, neon-ljós og laser-sýningar eru á hverju strái og fólk dansar undir taktfastri danstónlistinni.

Skammt frá Bodrum er að finna fjölda töfrandi smábæja og hafnarsvæða, sem flestir eru í aðeins nokkurra mínútna akstursfjarlægð. Þar er hægt að skyggnast inn í raunverulegan menningarheim Vestur-Tyrkja, upplifa lífshætti þeirra og dagleg störf. Landslagið og menningarsagan á Bodrum skaganum er engu lík og er það nánast skylda að heimsækja sögufræga staði á borð við Mausoleum, Ephesus and Didyma, sem eru í hópi merkustu borgarrústa heims. Slíkar minjar eru nánast á hverju strái á svæðinu.

Margir telja að enginn staður í heiminum státi af jafnmörgum og merkum minjum og suðvesturströnd Tyrklands. Fyrir sögu- og menningarþyrsta ferðalanga er Tyrkland því sannarlega rétti áfangastaðurinn og má það teljast fullvíst að tignarlegt og töfrandi umhverfið láti engan ósnortin.

Í næsta nágrenni við Bodrum eru síðan tveir stærðarinnar vatnsrennibrautagarðar þar sem öll fjölskyldan ætti að geta svalað adrenalínþörfinni að fullu. Það má því með sanni segja að allir ættu að geta fundið eitthvað sér við hæfi í Bodrum.

Gümbet

Í aðeins þriggja kílómetra fjarlægð frá Bodrum er að finna hinn sérlega heillandi smábæ, Gümbet, sem er orðinn mjög vinsæll áfangastaður, ekki síst vegna frábærra aðstæðna til vatnaíþrótta af öllu tagi. Ströndin við bæinn er ein sú allra stærsta og vinsælasta á svæðinu og á meðal afþreyingar sem hægt er að nálgast með auðveldum hætti á ströndinni eru köfun, brimbretti, fallhlífa-siglingar og fleira. Næturlífið í bænum nýtur auk þess mikilla vinsælda á meðal unga fólksins og er mikið úrval veitingastaða, bara og næturklúbba á staðnum.

Bitez

Í næsta nágrenni við Gumbet, um 7 kílómetra vestur af Bodrum, liggur lítið og og sjarmerandi þorp, Bitez. Þorpið er tilvalinn áfangastaður fyrir þá sem vilja njóta sólar og slaka á í fallegu umhverfi.  Sjávarlega þorpsins og aðstæður við ströndina gera það að verkum að aðstaða til brimbrettaiðkunar og skyldra sjávaríþrótta er með besta móti. Ströndin er rík af sandi og með góða aðstöðu fyrir sólardýrkendur. Skammt frá ströndinni eru akrar þar sem meðal annars má finna appelsínu- og mandarínutré, en vinsælt er meðal ferðamanna að skoða akrana og smakka á ávöxtunum.



Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar