Beint í leiðarkerfi vefsins.
Það er engin tilviljun að á öldum áður var talað um eyjuna Kos sem „Nissos ton Makaron" á gríska móðurmálinu, en á íslensku myndi sú fullyrðing útfærast sem „Eyja ánægða fólksins". Þessi gríska paradísareyja, staðsett skammt frá ströndum Tyrklands í sunnanverðu Eyja-hafi, veitir sannarlega ómælda gleði og ánægju þeim sem hana heimsækja.
Oft er talað um Grikkland sem vöggu vestrænnar menningar og þangað sækja ferðamenn frá öllum heimshornum til þess að slappa af í fögru umhverfi og drekka í sig fróðleik um sögu liðinna alda, en flestir blanda þessu tvennu þó saman. Gestrisni íbúanna við Eyjahafið er einstök og náttúra margra grísku eyjanna er ósnortin og fögur. Kos er svo sannarlega engin undantekning.
Aðstæður á Kos
Öll þjónusta fyrir ferðamenn á Kos er fyrsta flokks og miðar að því að skapa eins rólegt, fallegt og endurnærandi umhverfi og kostur er. Eyjaskeggjar hafa löngum verið rómaðir fyrir gestrisni sína, en þeir eru um 30 þúsund talsins. Hjarta eyjunnar er í bænum Kos en annars einkennist eyjan af litlum og sjarmerandi þorpum sem öll hafa sín sérkenni.
En það eru ekki aðeins einstök veðursæld, blár himinn, tær sjóri, gylltar strendur, grænar hlíðar og blómlegir hagar sem gera Kos að ákjósanlegum áfangastað því eyjan er stútfull af menningarminjum og merkum minnisvörðum um gríska þjóð. Af þessum minjum má helst nefna Neratzia-kastalann, Epta Bemata kirkjuna, Asklepeio-heilsuhælið og Hippocrates-tréð.
Glæsilegt fimm stjörnu hótel sem er staðsett við ströndina í Psalidi í skemmtilegu umhverfi. Natura Park Village er nýr gististaður hjá VITA en hótelið var tekið í notkun árið 2009 og hefur hlotið frábær viðbrögð hjá þeim sem þar hafa dvalið. Allt er innifalið í gistingunni og er af nógu að taka, hvort sem horft er til afþreyingar, mats eða drykkja.
Frábært hótel sem var algjörlega endurnýjað á síðasta ári og byggt upp samkvæmt nýjustu straumum og stefnum. Útkoman er virkilega huggulegt og nýtískulegt hótel þar sem allt er innifalið.
Mjög skemmtilegt hótel á frábærum stað við höfnina í Kos. Stutt er í ströndina og sundlaugagarðurinn er þaki hótelsins, með einstakt útsýni yfir borgina. Fjölbreyttir gistingarmöguleikar eru í boði.