Gran Canaria - Spánn

Gran Canaria - Spánn

Gran Canaria - Sól og sæla allt árið um kring !

Íslenskir „Kanarífuglar“ pakka gjarnan niður sumarkjólum, stuttbuxum, sundfötum og sólaroliu á meðan skammdegi og snjóskaflar gera landanum lífið leitt hér heima. Ástæðan er einföld - að halda á heitari mið, hlaða batteríin og njóta lífsins í sól og sælu. Það er ekki að ástæðulausu að Kanaríeyjar skuli hafa verið vinsælasti áfangastaður íslenska sólardýrkanda síðustu ár. Eyjarnar búa yfir töfrandi sjarma sem virkar sem sterkt aðdráttarafli á sólþyrsta ferðamenn.

Viðskiptavinum VITA standa til boða fjölmargir gististaðir á Gran Canaria eyjunni, þar sem allar forsendur eru til staðar fyrir hinu fullkomna fríi. Þar er sól og veðursæld allt árið um kring, hlýr sjór og gylltur sandur, frábært úrval fjölbreyttra veitingastaða og aragrúi ólíkra verslana.

Um Eyjarnar

Í Kanaríeyjaklasanum, sem telur alls sjö eyjar, er eyjan Gran Canaria sú þriðja stærsta, næst á eftir Tenerife og Fuerteventura. Eyjan sem liggur í Atlantshafinu um 210 km út frá norðvesturströnd Afríku, er nánast hringlaga og er hæsti punktur hennar Pozo de las Nieves 1.949 metrar. Gljúfrin sem kljúfa eyjuna úr tæplega tvö þúsund metra hæð niður undir sjávarmál eru bæði hrikaleg og einkennandi fyrir eyjuna.

Með strandlengjunni er að finna urmul gylltra sandstranda sem laða til sín ferðamenn hvaðanæva að úr heiminum. Eyjan skartar einnig fjölbreyttu landslagi sem hýsir meðal annars eldfjöll og hraunbreiður, eyðimerkur og sandöldur, bananaekrur og fagurgræna dali. Árið 1496 urðu Kanaríeyjar hluti af spænska konungsveldinu.

Afþreying

Gran Canaria þarf engum að leiðast því þar gefst ferðafólki á öllum aldri kostur á fjölbreyttri skemmtun og afþreyingu. Mannlífið er fjölbreytt og iðandi og í miðbænum er mikið um götulistamenn og tónlistarfólk. Hægt er að heimsækja róleg fjallaþorp í nágrenninu á milli þess sem menn slaka á, sleikja sól og stunda vatnasport eða aðra góða hreyfingu.

Fjölmargar frábærar gönguleiðir liggja um eyjuna og þykir hún ákjósanlegur áfangastaður fyrir göngugarpa, enda er ekki amalegt að fara gangandi um náttúru sem ber merki mikillar eldvirkni. Eyjan þykir spennandi fyrir hjólreiðafólk auk þess sem hægt er að fara í skipulagðar hesta-, jeppa- og úlfaldaferðir. Golf á sér að sama skapi langa sögu á Gran Canaria og er þar að finna góða golfvelli sem forfallnir golfarar ættu alls ekki að láta fram hjá sér fara.



Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar