Beint í leiðarkerfi vefsins.
Enska ströndin svokallaða eða Playa del Ingles, sem er á suðurhluta eyjunnar, er stærsti og lang vinsælasti dvalarstaður ferðamanna á Gran Canaria enda býður hún upp á flest það sem nauðsynlegt er talið góðu sólarfríi.
Englendingar voru fjölmennustu ferðamennirnir á þessum slóðum eftir að svæðið var byggt upp sem ferðamannastaður upp úr 1950 og dregur ströndin því heiti sitt af því. Enska ströndin, sem teygir sig sjö kílómetra frá San Agustin í austri til Maspalomas í vestri, státar m.a. af hvers kyns vatnasporti, íþróttaaðstöðu og góðum golfvöllum sem og verslunarmiðstöðvunum Yumbo, Cita og Kasbah, aragrúa kaffihúsa, fjölbreyttri veitingahúsaflóru, börum, næturklúbbum, diskótekum og skemmtistöðum fyrir fólk á öllum aldri.
Skemmti- og fjölskyldustaðurinn Holiday World er staðsettur stutt frá Ensku ströndinni en þar er tívolí með rússíbana, parísarhjóli og fleiri spennandi tækjum. Þar má einnig finna keilusal, bæði fyrir fullorðna og börn, leiktækjasal og veitingastaði. Palmitos Park er skemmtilegur dýragarður sem er staðsettur í um 15 mínútna aksturfjarlægð frá Ensku ströndinni og ganga strætisvagnar þangað oft á dag. Dýragarðurinn Cocodrilo Park, annar garður sem er í um 30 mínútna akstursfjarlægð frá Ensku ströndinni, hýsir aðallega ótal krókódíla og önnur skyld dýr.


Snyrtilegt og mjög vel staðsett hótel í miðbæ Ensku strandarinnar en ströndin er í um tíu mínútna göngufjarlægð. Öll aðstaða á hótelinu er til mikillar fyrirmyndar og hafa gestir aðgang að glæsilegri heilsulind.

Mjög vel staðsett hótel rétt við Kashba með einstaklega skemmtilegum garði . Yfirbragð garðsins er ævintýralegt með mörgum háum pálmatrjám. Herbergin eru rúmgóð og björt.

Gott íbúðarhótel þar sem gist er í sjarmerandi smáhýsum á frábærum stað á Ensku ströndinni . Aðstæður á hótelinu eru góðar og gestir hafa aðgang að líkamsrækt og heilsulind. Stutt er í verslun, þjónustu og veitingahús. Tilvalið hótel fyrir fjölskyldufólk.

Gott þriggja stjörnu hótel á Ensku ströndinni. Hótelið er staðsett rétt hjá Tirajana breiðgötunni, þaðan sem stutt er í alla þjónustu og verslun. Ströndin er í um 1,5 kílómetra fjarlægð frá hótelinu en í stórum garði hótelsins er hægt að stunda ýmis konar afþreyingu.

Snyrtilegt og vistlegt 2 stjörnu íbúðarhótel á góðum stað á Ensku ströndinni. Aðeins 300 m frá ströndinni og Yumbo center og því stutt í alla þjónustu, verslanir og veitingastaði.

Ágætt íbúðahótel sem er vel staðsett skammt hjá Yumbo verslunarkjarnanum, þar sem hinn sívinsæli Klörubar er meðal annars til húsa, og því er stutt í alla þjónustu, verslanir og veitingastaði. Ströndin er í um 10 mínútna göngufjarlægð.

Snyrtilegt og vistlegt íbúðarhótel á góðum stað á Ensku ströndinni. Hótelið hefur verið mikið sótt af Íslendingum síðustu ár og er almennt látið vel af dvölinni á Las Camelias. Hótelið er staðsett við hina fjölförnu Tirajana-breiðgötu og er stutt í veitingastaði og verslanir.