Beint í leiðarkerfi vefsins.
Mogan er lítill, gamall og krúttlegur fiskibær með lágreistum húsum, fallegum görðum og skemmtilegri smábátahöfn þar sem gjarnan liggja bæði skútur og snekkjur.
Bærinn gengur gjarnan undir nafninu „Litlu Feneyjar" og er sérstaklega rómaður fyrir veðursæld. Bærinn er því kjörinn fyrir þá, sem vilja taka það rólega í fríinu eða eru í rómantískum hugleiðingum.

Einkar fallegt fjögurra stjörnu hótel sem er með suðrænu yfirbragði, staðsett steinsnar frá ströndinni. Hótelið opnaði árið 2004 og eru allar vistarverur því nýtískulegar og afar glæsilegar. Aðstaðan á hótelinu er framúrskarandi góð og stendur gestum til boða ótal möguleikar á íþróttaiðkun og vellíðunarmeðferðum. Frábært hótel.

Glæsilegt þriggja stjörnu íbúðahótel sem opnað var árið 2008. Hótelið er á góðum stað, í um 10 mínútna göngufjarlægð frá ströndinni en mun styttra frá verslunum og veitingastöðum.