Maspalomas

Maspalomas

Í túnfæti Ensku strandarinnar liggur Maspalomas með sínum gylltu sandbylgjum og fagurri strönd og í beinu framhaldi rís hið nýja Meloneras-hverfi. Byggðin þar er öllu lágreistari og umgjörðin öll rólegri en á Ensku ströndinni, en báðir staðirnir státa af verslunum, veitingahúsum, kaffihúsum, börum, golfvöllum og strandgötum, sem gaman er að rölta um.

Aqualand, stærsta vatnsrennibrautagarð eyjunnar, er að finna í Maspalomas. Í fuglagarðinum Palmitos Park, sem er rétt hjá Maspalomas, eru svo til sýnis hundruðir fugla, fiðrildahús, orkídeuhús og risastórt fiskabúr. Aðeins er um fimm mínútna akstur frá þessum bæjum yfir á Ensku ströndina og gengur strætó á milli.


Gististaðir - Maspalomas

Baobab 

Glænýtt og hreinlega óviðjafnanlegt fimm stjörnu lúxushótel á Meloneras svæðinu. Hótelið opnaði í vor og er hluti af Lopesan-hótelkeðjunni sem einnig rekur lúxushótelin Villa del Conde og Costa Meloneras á Kanarí sem margir Íslendingar hafa átt góð kynni við. Gisting á Baobab er einfaldlega upplifun út af fyrir sig og er VITA stolt af því að geta boðið viðskiptavinum upp á þetta einstaka hótel.
(+)nánar

Villa del Conde 

Fimm stjörnu lúxushótel sem stendur við strandgötuna í Meloneras. Á Villa Del Conte er allur aðbúnaður framúrskarandi góður og má með sanni segja að allt sé til alls. Villa Del Conte er fyrir vandlátu sólardýrkendur sem vilja aðeins það besta.

(+)nánar

H10, Playa Meloneras Palace 

Stórglæsilegt gæðahótel sem notið hefur fádæma vinsælda hjá Íslendingum undanfarin ár. Hótelið er staðsett við ströndina í Meloneras og er búið öllum þeim þægindum sem hugurinn girnist. Óhætt er að fullyrða að dvölin á H10 mun láta engan ósnortinn, enda eru gæði og þjónusta höfð í hávegum á öllum vígstöðvum hótelsins.

(+)nánar

Costa Meloneras 

Fjögurra stjörnu glæsihótel á mörkum Meloneras og Maspalomas sem er heill heimur út af fyrir sig. Ótal afþreyingarmöguleikar og stærðarinnar sundlaugagarður.

(+)nánar

Dunas Mirador 

Nýlegt hótel á hæðinni fyrir ofan Maspalomas. Stutt í verslunarmiðstöðvar í Maspalomas og á Ensku ströndinni. Allt innifalið!

(+)nánar

Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar