Beint í leiðarkerfi vefsins.
Við miðbauginn er loftslagið eins og það gerist best. Þar er einmitt Tenerife, nýjasti áfangastaður VITA í vetur. Sól og sandur er aðalatriðið á Tenerife og það er engin tilviljun að Íslendingar kjósa að fara þangað aftur og aftur.
Auk þess að vera vinsæll ferðamannastaður blómstra heimamenn á Tenerife og því er á ferðinni skemmtileg blanda af ferðamannastað þar sem allt er til alls auk spænskrar menningar, með tilheyrandi matargerð, mannlífi og fallegum arkitektúr.
Þannig að vertu viss um að gleyma ekki sundfötunum og sólarolíunni – en mundu jafnframt að Tenerife hefur upp á svo margt annað að bjóða líka.
Tenerife tilheyrir eyjaklasa Kanaríeyja og er sú stærsta þeirra. Eyjurnar mynduðust fyrir þremur milljónum ára í eldgosi. Á Tenerife er virkt eldfjall, Teide, sem gaus síðast árið 1909. Tindurinn er í 3,7 km hæð og er gígurinn 17 km breiður. Norðurlandabúar eru mjög áberandi á Tenerife en þeir voru einmitt fyrstu íbúar eyjunnar, um 200 árum fyrir Krist.
Tenerife er í ekki nema rúmlega 300 kílómetrar fjarlægð frá Sahara-eyðimörkinni en hitinn er nú sem betur fer mun mildari og þægilegri en þar. Santa Cruz de Tenerife heitir höfuðborgin, sem jafnframt er fjölmennasta borg Tenerife.
Hvað viltu gera í fríinu þínu? Líkurnar á að þú getir uppfyllt þær óskir á Tenerife eru mjög miklar.
Viltu leika þér í sjónum?
Farðu á brimbretti, lærðu að kafa, leigðu sjóketti, láttu draga þig á hraðbát eða einfaldlega svamlaðu í rólegheitunum.
Viltu liggja flatmaga og ná þér í fallegan lit á húðina?
Fjölmargar strendur, allar fyrsta flokks með frábærri þjónustu, eru í boði á Tenerife.
Viltu hreyfa þig?
Farðu í golf á einum af mörgum frábærum golfvöllum, hjólaðu, farðu á hestbak eða í göngutúra um fallega og einstaka náttúru Tenerife.
Viltu skoða þig um eyjuna?
Leigðu bíl og skoðaðu Güímar pýramídana, komdu við á söfnum og skoðaðu aðra bæi og þorp í nágrenninu.
Viltu skoða eyjarnar í kring?
Farðu í siglingu og komdu við á einhverri af hinum Kanaríeyjunum.
Viltu skemmta þér?
Farðu út að borða og dansaðu svo eins og enginn sé morgundagurinn á einum af fjölmörgum skemmtistöðum Tenerife. Þú getur gert það sem þig langar á Tenerife!
Ameríku-ströndin á sunnanverði Tenerife er stundum kölluð „Leikvöllurinn“ á eyjunni, sökum fjölbreytta afþreyingarmöguleika. Fríar skutlur eru út um allt til að þú náir örugglega að gera allt sem þig langar til að gera! Hvort sem þú vilt slappa af eða sletta ærlega úr klaufunum (nú eða sitt lítið af hvoru), þá er Ameríkuströndin fullkomin.
Sex strendur eru á svæðinu og fyrir utan hefðbundnar íþróttir á borð við sjóskíði, tennis, keilu og golf er meðal annars hægt að fara í teygjustökk. Eitthvað fyrir alla, sannkallaður leikvöllur þar sem af nógu er að taka.
Rétt fyrir utan leikvöllinn á Ameríku-ströndinni er Adaje ströndin. Þar ráða rólegheitin ríkjum. Staðurinn er einn sá allra fallegasti á Tenerife og algjör paradís fyrir þá sem vilja kafa. Þá er einn besti golfvöllur eyjarinnar rétt við ströndina.
Adaje gerir sig út fyrir fjölbreytta útivist þar sem framboðið er mjög mikið. Náttúrufegurðin gerir þennan stað einkar skemmtilegan, en þrátt fyrir rólegheitin er auðvelt að komast í aðeins meiri fjör og læti, til að mynda á Ameríkuströndinni sem er í aðeins nokkurra mínútna akstursfjarlægð frá Adaje.
Fanabe ströndin er á suðurströnd Tenerife, mitt á milli Playa de las Americas og Costa Adeje. Miðbærinn er einkar skemmtilegur þar sem barir og verslanir eru víða og oftast þá við þröngar og skemmtilegar götur. Ströndin sjálf er mjög breið og sandurinn er góður. Einkar góð aðstaða er til sjóiðkunar af ýmsu tagi en örstutt er í alla þjónustu.
Stutt er í frábæran golfvöll. Hægt er að skoða höfrunga og hvali í skoðunarferðum, stunda sjóstangveiði, fara í skipulagðar hestaferðir og stórskemmtilegur sundlaugagarður er á svæðinu. Þá er stutt upp að Teide eldfjallinu en hægt er að fara með kláf upp í hlíðar fjallsins og njóta stórkostlegs útsýnis yfir eyjuna.
Sir Antony er 5 stjörnu lúxus hótel við ströndina í Playa de Las Americas. Klassi og glæsileiki lýsa þessu lúxushóteli, en þjónusta og allur aðbúnaður er einstakur og gerist vart betri á Teneirfe. Lipurt þjónustufólk dekrar við hótelgesti og leggur sig fram um að dvölin á Sir Antony verði ánægjuleg.
Iberostar Grand hotel El Mirador er 5 stjörnu lúxus hótel í “boutique” stíl, við Playa del Duque ströndina Costa Adeje megin á suðurströnd Tenerife.
Hótelið er í falegum 2000 m2 garði með sundlaugum, sólbekkjum, sóltjöldum, handklæðum og annari fyrirtaks aðstöðu til sólbaða og afslöppunar. Allt er stílað inná klassa og glæsileika á þess lúxushóteli sem er eingöngu fyrir fullorðna og með býður gestum gistingu í fallegum svítum.

Dream Hotel Gran Tacande er 5 stjörnu lúxushótel við eina fallegustu strönd Tenerife, Playa del Duque. Sundlaugargarðurinn er glæsilegur, liggur meðfram hótelinu og nær nánast niður á strönd. Nútímaleg og smart hönnun, fyrsta flokks veitingastaðir og ein glæsilegasta heilsulindin á Tenerife. Þjónustan á hótelinu þykir framúrskarandi.
Villa Cortes er 5 stjörnu lúxúshótel, vel staðsett við ströndina á Playa de las Américas. Á hótelinu er fallegur sundlaugargarður, íburðarmikil herbergi, heilsulind, setustofur og fyrsta flokks veitingastaðir. Hótelið er byggt eins og mexíkanskur herragarður og hrein upplifun að dvelja þar.
Hótel Iberostar Anthelia er glæsilegt 5 stjörnu hótel Costa Adeje megin á suðurströnd Tenerife.
Hótelið hefur glæsilega sundlaugargarða, frábæra heilsulind og fyrsta flokks veitingastaði. Þjónustan er framúrskarandi og allar vistarverur bera kem af þeim fimm stjörnum sem hótelið hefur.
Hótel Mediterranean Palace er gott og einstaklega vel staðsett hótel miðsvæðis á Playa de las América og steinsnar frá strönd. Sundlaugargarðurinn er ævintýralegur er rómverska sundlaugin mjög sérstök, 300 femetrar og umkringd rómverskum styttum. Önnur laug 1000 fermetrar og umhverfis hana eru gosbrunnar og geysifínt sólbaðssvæði. 
Iberostar Las Dalias er huggulegt 4 stjörnu hótel 500 metra frá Playa del Bobo ströndinni, sem er á mótum Costa Adeje og Las Americas. Einn af kostum hótelsins er er metnaðarfull skemmtidagskrá fyrir alla aldurshópa bæði að degi til og á kvöldin. Sundlaugargarðurinn er fallegur og skjólgóður og á veturna er ein af sundlaugunum hituð. Stutt er í veitingastaði, bari, verslanir og iðandi mannlíf.
Iberostar Bouganville Playa er gott 4 stjörnu hótel við Playa del Bobo ströndina sem er á mótum Costa Adeje og Las Americas. Lífleg dagskrá, fallegur sundlaugargarður og stutt á veitingastaði, bari, verslanir og fjölbreytt strandlíf
Mjög gott 4 stjörnu hótel á besta stað í hjarta Playa de las Americas. Það, sem einkennir hótelið er einstaklega falleg gestamóttaka með setustofum þar sem umhverfið minnir á lystigarð. Sundlaugargarðurinn er stór, gróðursæll og með sundlaug, barnalaug og fjölda sólbekkja.
H10 Conquistador er gott fjögurra stjörnu hótel, vel staðsett á Playa de las Américas. Hótelið telur sex hæðir, hefur 448 herbergi og stendur við strönd. Við hótelið er fallegur garður, með tveimur sundlaugum, barnalaug, leiksvæði fyrir börn, snakkbar og veitingastað.
Gott þriggja stjörnu íbúðahótel á Playa de las Américas, staðsett um 500 metra frá miðbænum og Playa de Troya ströndinni. Hótelið var allt endurnýjað árið 2002 og er haldið vel við. Veitingastaðir, verslanir og barir eru í göngufæri og 5 mínútna akstur er á golfvöllinn.
Gott og eftirsótt íbúðahótel á allra besta stað við Playa de las Americas ströndina á Tenerife. Þar ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Fjölskyldufólk og ungt fólk á öllum aldri unir sér í frábærum sundlaugargörðum, við ströndina og svo er örstutt að skreppa í búðir á veitingastaðinn eða hvert annað sem hugurinn leitar.
Ódýrt 2ja lykla (stjörnu) sambyggð smáhýsi eða raðhús á Playa de las Américas um 500 metra frá strönd og í göngufæri við veitingastaði, verslanir og bari. Smáhýsin eru 2 hæðir og standa umhverfis snyrtilegan sundlaugargarð með tveimur sundlaugum og barnalaug. Íbúðir á efri hæð eru með svölum og íbúðir á neðri hæð með verönd.