Beint í leiðarkerfi vefsins.
Matalascañas er sumardvalarstaður íbúa Sevilla. Á sumrin vilja þeir gjarnan flýja hitann í borginni og njóta lífsins á 5 km langri Costa de la Luz strandlengjunni. Í september og október er Matalascañas afar rólegur en heillandi staður þar sem Sevilla-búar hafa snúið til baka til borgarinnar. Ströndin er afar falleg með hvítum sandi sem öldur Atlantshafsins brotna á.
Í næsta nágrenni er 500.000 hektara þjóðgarðurinn Doñana sem er sannkölluð náttúruparadís. Þar má einni sjá fjölbreytt dýralíf. Þrjár ólíkar en áhugaverðar spánskar borgir eru ekki langt frá Matalascañas. Þetta eru landamæraborgin Huelva, heimsborgin Sevilla, sem þekkt er fyrir einstaklega góðan mat, og að síðustu kúrekabærinn El Rocio. Sá er heimabær Flamenco dansins og er gjarnan notaður í upptöku kúrekamynda.
Vikudvöl á Hótel Tierra Mar getur verið í senn algjör afslöppun við hafið og um leið full af upplifun ef staðir í nágrenninu eru heimsóttir. Borgirnar þrjár verðskulda heimsókn hver fyrir sig, enda allar afskaplega ólíkar. Í Doñana þjóðgarðinum er snertingin við óspillta náttúruna og dýralífið góð upplifun.
Ekki verður fararstjóri fyrir hópinn í ferðinni en á staðnum eru golffararstjórar sem eru að annast golfhóp sem einnig gista á Tierra Mar hótelinu.

Tierra Mar hótelið er í Matalascañas á Atlantshafsströnd Spánar, um 100 km. frá Sevilla flugvelli. Gestamóttaka er á jarðhæð, ásamt veitingasal og bar. Öll herbergi okkar gesta eru með sjávarsýn. Á hótelinu er inni-og útisundlaug, heilsurækt, sauna, hárgreiðslustofa og minjagripaverslun. Hótelgarðurinn er mjög notalegur og sér vel yfir ströndina neðan við hótelið.