Beint í leiðarkerfi vefsins.
Við Miðjarðarhafið er þessi ótrúlega borg með sínu fjölskrúðlegu mannlífi. Höfn borgarinnar er einkar falleg og er gamli bærinn í borginni alveg einstakur. Miðbærinn er nefndur Kaleici, eftir gömlu borgarvirki frá miðöldum. Virkið, eða múrinn umlykur gamla hlutann og er kílómetri að lengd. Þar eru göturnar þröngar, stundum brattar og ótrúlega gaman að ganga þar um, setjast niður og sötra lútsterkt tyrkneskt kaffi eða dísætt te. Við höfnina gnæfa tveir turnar yfir borgina en þeir héldu áður stærsta hliðinu inn í virknisvarða borgina. Klukkuturninn á Kalekapisi torgi er einnig hluti af virkinu sem umkringdi borgina. Frá klettunum sem slúta yfir höfnina er fallegt útsýni yfir hafið.
Vínsælt er að taka dolmus eða leigbíl frá Lara Beach inn til Antalya og kíkja á kaffihús eða í búðir, enda þykir verðlag þar hagstætt.
Lara ströndin teygir sig til austurs út frá borginni. Glæsileg hótel, frá fimm og allt upp í sjö stjörnur standa í röðum og inn á milli eru litlar verslunarmiðstöðvar. Á Lara ströndinni má finna eftirlíkingar af mörgum frægustu kennileita heims og hún hefur verið kölluð „Tyrkneska Vegas“. Ströndin sjálf er löng og breið með róandi öldunið og mjúkum sandi.
Auðvelt að skreppa inn í borg með leigubíl eða strætó, en það eru um 11 kílómetrar
Hótelin Limack Lara og Miracle Resort eru bæði við Lara Beach.
Antalya - verslunar- og kynnisferð. Leyndardómar borgarinnar sjást vel í þessari skemmtilegu ferð. Byrjað er á stoppi við Karpuzkaldiran fossana sem er einstakur þar sem hann fellur ekki í á heldur beint í sjóinn. Þá er haldið í gamla miðbæinn, Kaleici, hin fornu heimkynni Rómarveldis og Ottoman veldisins. Þar verður rölt um skemmtilegar götur með hinum ýmsu verslunum. Eftir hádegismat er farið í eina stærstu handverksverksmiðju Tyrklands, þar sem skartgripagerð verður skoðuð. Að lokum verður svo farið á tyrkneskan markað þar sem má finna ógrynnin öll af tyrkneskum vörum, allt frá matvörum og kryddum til handiðnaðar.
Verð: 2.900 krónur
Brottför frá hótelum um kl. 09:00 og komið til baka um kl. 17:00 - 17:30.
Manavgat markaðurinn, sigling og fossar. Byrjað er á því að skoða Manavgat fossana. Þeir eru aðalsmerki bæjarins, einkar fallegir umkringdir furuskógi sem er einn vinsælasti áfangastaður svæðisins. Næst er haldið á bát sem siglir með hópinn um Manavgat ánna þar sem útsýnið ræður ríkjum. Möguleiki er á því að synda í ánni auk þess sem hádegismatur verður framreiddur um borð. Eftir siglinguna er komið til Manavgat bæjarins þar sem farið verður á einstakan markað. Þar er frjáls tími til að skoða og versla.
Verð: 7.500 krónur - innifalinn hádegisverður og drykkir.
Brottför frá hótelum um kl. 08:00 og komið til baka um kl. 17:00 - 17:30.
Perge og Aspendos ásamt Kurşunlu fossunum. Ein vinsælasta ferðin okkar. Hún byrjar hjá hinum einstöku Kurşunlu fossum í miðjum furuskógi. Eftir frjálsan tíma hjá fossunum er haldið áfram til Perge. Hún var byggð eftir Troju-stríðið af grískum landnemum og byggð upp á Rómartímabilinu. Þar er borðaður hádegismatur áður en haldið er til Aspendos. Þar er meðal annars best varðveitta leikhúsið frá rómverska tímabilinu, sem byggt var fyrir 1800 árum, á 2. öld.
Verð: 7.500 krónur - innifalinn hádegisverður
Brottför frá hótelum um kl. 08:30 og komið til baka um kl. 17:00 - 17:30.
Flúðasigling - Rafting. Flúðasigling í fallegu landslagi í Köprüçay ánni. Hún rennur í samnefndu gili og útsýnið þar og yfir Taurus fjöllin er magnað. Siglingin hefst hjá Rómversku brúnni, sem byggð var á 2. öld, og er ferðin um 14 kílómetrar. Kennsla er innifalin er erfiðleikastyrkurinn er 2+. Ferðin í heild tekur um 3,5 til 4 tíma, með hádegisverði. Stórskemmtileg ferð og öðruvísi skemmtun í fríinu.
Verð: 7.500 krónur - innifalinn hádegisverður.
Brottför frá hótelum um kl. 08:30 og komið til baka um kl. 17:00 - 17:30.
Lágmarksþáttaka til að íslenskur fararstjóri sé með í för er 15 manns, annars eru ferðirnar með enskumælandi fararstjóra.
Ferðirnar þarf að bóka og greiða áður en farið er út og nákvæmur brottfarartími verður gefinn upp í handbók, sem allir farþegar fá afhent í flugvélinni.
Hótel Limak Lara er glæsilegt 5 stjörnu hótel við Lara ströndina, skammt frá Antalya. Sundlaugarðurinn er risastór, gróðursæll og gengið er úr garðinum beint út á mjúka sandströnd.
Hótel Miracle de Luxe Resort er 5 stjörnu hótel við Lara ströndina, mjög nýtískulegt og smart. Gestamóttakan er stór og þar er hátt til lofts og vítt til veggja. Hótelgarðurinn er mjög stór og fallegur og beint fyrir framan hótelið og garðinn er 150 metra löng sandströnd til einkaafnota fyrir hótelgesti. Hótelið er mjög stórt og þar er líf og fjör allan daginn og langt fram á kvöld. Veitingastaðir, líflegir barir, fyrirtaks heilsulind og rúmgóð herbergi.