Playa de Americas

Playa de Americas

Leikvöllurinn á Tenerife

Ameríku-ströndin á sunnanverði Tenerife er stundum kölluð „Leikvöllurinn“ á eyjunni, sökum fjölbreytta afþreyingarmöguleika.  Hvort sem þú vilt slappa af eða sletta ærlega úr klaufunum (nú eða sitt lítið af hvoru), þá er Ameríkuströndin fullkomin.

Sex strendur eru á svæðinu og fyrir utan hefðbundnar íþróttir á borð við sjóskíði, tennis, keilu og golf er meðal annars hægt að fara í teygjustökk. Eitthvað fyrir alla, sannkallaður leikvöllur þar sem af nógu er að taka.


Gististaðir - Playa de Americas

Sir Anthony 

Sir Antony er 5 stjörnu lúxus hótel við ströndina í Playa de Las Americas. Klassi og glæsileiki lýsa þessu lúxushóteli, en þjónusta og allur aðbúnaður er einstakur og gerist vart betri á Teneirfe. Lipurt þjónustufólk dekrar við hótelgesti og leggur sig fram um að dvölin á Sir Antony verði ánægjuleg.

(+)nánar

Villa Cortes Gran Luxe & Spa 

Villa Cortes er 5 stjörnu lúxúshótel, vel staðsett við ströndina á Playa de las Américas. Á hótelinu er fallegur sundlaugargarður, íburðarmikil herbergi, heilsulind, setustofur og  fyrsta flokks veitingastaðir.  Hótelið er byggt eins og mexíkanskur herragarður og  hrein upplifun að dvelja þar.

(+)nánar

Mediterranean Palace 

Hótel  Mediterranean Palace er gott og einstaklega vel staðsett hótel  miðsvæðis á Playa de las América og steinsnar frá strönd. Sundlaugargarðurinn er ævintýralegur er rómverska sundlaugin mjög sérstök, 300 femetrar og umkringd rómverskum styttum. Önnur laug 1000 fermetrar og umhverfis hana eru gosbrunnar og geysifínt sólbaðssvæði.

(+)nánar

H10 Gran Tinerfe 

H10 Gran Tinerfe er gott fjögurra stjörnu hótel fyrir 18 ára og eldri. Hótelið er vel staðsett við ströndina á milli Costa Adeje og Playa de las Américas. Við hótelið er falleg verönd með útsýni yfir sjóinn og ströndina. Hótelgarðurinn er með þremur sundlaugum, þar af er ein upphituð.

(+)nánar

La Siesta 

La Siesta er gott  fjögurra stjörnu hótel, vel staðsett á Playa de las Americas ströndinni.
Hótelið er þriggja hæða bygging, U-laga, með með fallegum garði, sundlaug og barnalaug, heilsulind og skemmtidagskrá.

(+)nánar

H10 Conquistador 

H10 Conquistador er gott  fjögurra stjörnu hótel, vel staðsett á Playa de las Américas. Hótelið telur sex hæðir, hefur 448 herbergi og stendur við strönd. Við hótelið er fallegur garður, með tveimur sundlaugum, barnalaug, leiksvæði fyrir börn, snakkbar og veitingastað.

(+)nánar

Vulcano 

Mjög gott 4 stjörnu hótel á besta stað í hjarta Playa de las Americas.  Það, sem einkennir hótelið er einstaklega falleg gestamóttaka með setustofum þar sem umhverfið minnir á lystigarð. Sundlaugargarðurinn er stór, gróðursæll og með sundlaug, barnalaug og fjölda sólbekkja.

(+)nánar

Parque de la Paz 

Parque de La Paz er mjög huggulegt 3ja lykla íbúðahótel, rétt hjá “Laugaveginum” við Playa del Las Américas ströndina. Hótelgarðurinn er með sundlaug, barnasundlaug, fyrirtaks sólbaðsaðstöðu og skemmtidagskrá á kvöldin.

(+)nánar

Parque Santiago  

Gott og eftirsótt íbúðahótel á líflegum stað við Playa de las Americas ströndina á Tenerife. Þar ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Fjölskyldufólk og ungt fólk á öllum aldri unir sér í frábærum sundlaugargörðum, við ströndina og svo er örstutt að skreppa í búðir á veitingastaðinn eða hvert annað sem hugurinn leitar.

(+)nánar

Marola Portosin 

Lítið og heimilislegt íbúðahótel á fínum stað á Amerísku ströndinni. Stutt á ströndina, í verslanir og veitingahús.

(+)nánar

Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar