Benidorm - Spánn

Benidorm - Spánn

Benidorm

Langar þig í smá fjör í sólinni? Það er það sem allt snýst um á Benidorm, sem er á Costa Blanca. Nafnið þýðir “Hvíta ströndin” og stendur vel undir nafni. Strandlengjan er gullfalleg, hvítur sandur svo langt sem augað eygir, og óviðjafnanleg sólin heldur henni volgri allt árið um kring. Það kemur engum á óvart að Benidorm er meðal heitustu áfangastaðanna fyrir sumarfrí þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi. Hvort sem það eru veitingastaðir og barir, sundlaugagarðar eða bara rólegheitin á ströndinni, er alveg ljóst að Bendiorm er frábær sólarstaður.

Skemmtigarðar og vatnsrennibrautagarðar – Þeir bestu á Spáni!

Benidorm er skemmtileg, það er alveg ljóst! Renndu þér í sólinni eða skelltu þér í skemmtigarð með alla fjölskylduna, það slær í gegn!

Terra Mitica skemmtigarðurinn – Fjör fyrir alla fjölskylduna
Stærsti og skemmtilegasti garður í Evrópu! Stórkostlegir rússíbanar af öllum stærðum og gerðum, sýningar á hverju strái, sjóræningar, skylmingaþrælar og ýmislegt fleira, meðal annars stórfenglegum leiksýningum á kvöldin. Frábær skemmtun fyrir unga sem aldna.

Aqualandia – Vatnsrennibrautagarður í heimsklassa
Bing Bang eða Kamikaze? Báðar rennibrautirnar? Ekkert mál, þær eru hver annarri betri í þessum frábæra garði. Stórskemmtilegt lón er í garðinum þar sem finna má svæði fyrir börn, og alla hina líka! Slettu úr klaufunum í Aqualandia, þaðan sem allir fara heim með bros á vör.

Mundomar – Vatnaveröld og framandi dýralíf
Heillandi ævintýraland með fallegu sjávarlífi og framandi fuglalífi. Sjáðu dansandi höfrunga, sjóljónin leika sér, páfagaukasýninguna og farðu með börnin í barnalandið. Og ekki gleyma hinu risastóra fiskasbúri þar sem litadýrðin og fjölbreytnin er æðisleg. Frábær garður.

Terra Natura – Glænýr náttúrulífsgarður
Engir sýnilegar hindranir á milli þín og dýranna. Vertu vitni að undrum náttúrunnar með berum augum í gegnum stórfenglegar sýningar og snilldarlega útsett atriði. Í garðinum færðu tvo fyrir einn, þar er líka Aqua Natura garðurinn, frábær vatnsrennibrautagarður þar sem þú getur skemmt þér og slappað af áður en þú snýrð aftur heim í sólskinsskapi.

 


Gististaðir - Alicante - Spánn

Villa Venecia  

Gullfallegt  „boutique“ hótel, sem opnaði vorið 2010. Einstaklega fallegt hótel þar sem sem hönnun, aðbúnaður og húsgögn er elegant og smart.  Marmari  á gólfum, falleg setustofa og bar í gestamóttöku. Gluggar ná frá gólfi til lofts og útsýni er einstakt.  Hótelið er 5 hæðir með tveim litlum þakgörðum. Annar er með með smá sundlaug , hvítum leðursófum og opnum cocktailbar á kvöldin yfir sumarið. Hinn garðurinn er með nuddpotti og sauna.

(+)nánar

Sandos Monaco hotel and Spa 

Hótel Sandos Monaco er gott 4ra stjörnu „allt innifalið“, sem opnaði vorið 2010 eftir gagngerar breytingar. Gestamóttakan er stór og björt með marmara á gólfum og fínum setustofum. Sundlaugarsvæðið er allt flísalagt með sólstólum og tveimur börum. Hótelið er á Levante ströndinni, um 450 metra frá ströndinni og gamla bænum.

(+)nánar

Melia Benidorm 

Melia Benidorm er fínt og flott hótel á góðum stað skammt frá Levante ströndinni. Eitt besta hótelið á í Benidorm með glæsileg sameiginleg salarkynni, frábæran sundlaugargarð og vel útbúna heilsulind.

(+)nánar

Nadal Benidorm 

Hótel Nadal er fallegt 3ja stjörnu hótel, við enda Levante strandarinnar á Benidorm. Við hótelið er útisundlaug með sundlaugarbar, verönd og útsýni er yfir Miðjarðarhafið.
Um leið og komið er út úr hótelinu tekur við iðandi mannlíf, en við hinn enda strandarinnar er gamli bærinn.

(+)nánar

Hotel Rosamar 

Nýlega uppgert hótel í hjarta Benidorm, skammt frá Levante ströndinni. Allt sem þarf í næsta nágrenni.

(+)nánar

Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar