Albir - Spánn

Albir - Spánn

Albir

Þessi litli og heillandi sumarleyfisstaður er mitt á milli Benidorm og Altea. Hann er fullkominn fyrir þá sem vilja vera fyrir utan ysið og þysinn í Benidorm, en samt njóta yndislegra stranda og öllu því sem úrvals sólarstaðir hafa upp á að bjóða.  Stutt er að fara milli strandanna, en einungis 10 km skilja að Benidorm og Albir.

Ströndin í Albir er 590 metra löng og hefur verið verðlaunuð árlega fyrir gæði.
Rólegt og afslappað andrúmsloftið er í fyrirrúmi en samt sem áður er þar allt til alls. Þar sem staðurinn er lítill, er stutt að fara á milli staða, miðbær og strönd ávallt í göngufæri.  Albir verið mjög vinsæll hjá fjölskyldufólki  undanfarin ár.

Terra Mitica skemmtigarðurinn – Fjör fyrir alla fjölskylduna
Stærsti og skemmtilegasti garður í Evrópu! Stórkostlegir rússíbanar af öllum stærðum og gerðum, sýningar á hverju strái, sjóræningar, skylmingaþrælar og ýmislegt fleira, meðal annars stórfenglegum leiksýningum á kvöldin. Frábær skemmtun fyrir unga sem aldna.

Aqualandia – Vatnsrennibrautagarður í heimsklassa
Bing Bang eða Kamikaze? Báðar rennibrautirnar? Ekkert mál, þær eru hver annarri betri í þessum frábæra garði. Stórskemmtilegt lón er í garðinum þar sem finna má svæði fyrir börn, og alla hina líka! Slettu úr klaufunum í Aqualandia, þaðan sem allir fara heim með bros á vör.

Mundomar – Vatnaveröld og framandi dýralíf
Heillandi ævintýraland með fallegu sjávarlífi og framandi fuglalífi. Sjáðu dansandi höfrunga, sjóljónin leika sér, páfagaukasýninguna og farðu með börnin í barnalandið. Og ekki gleyma hinu risastóra fiskasbúri þar sem litadýrðin og fjölbreytnin er æðisleg. Frábær garður.

Terra Natura – Glænýr náttúrulífsgarður
Engir sýnilegar hindranir á milli þín og dýranna. Vertu vitni að undrum náttúrunnar með berum augum í gegnum stórfenglegar sýningar og snilldarlega útsett atriði. Í garðinum færðu tvo fyrir einn, þar er líka Aqua Natura garðurinn, frábær vatnsrennibrautagarður þar sem þú getur skemmt þér og slappað af áður en þú snýrð aftur heim í sólskinsskapi.


Gististaðir - Alicante - Spánn

Albir Playa  

Mitt á milli listamannabæjarins Altea og hins líflega Benidorm bæjar er hið frábæra hótel Albir Playa í stuttu göngufæri við Albir ströndina og kristaltæran sjóinn. Vinalegt andrúmsloft, frábær aðstaða og notaleg stemmning einkenna Albir Playa.

(+)nánar

Kaktus Albir, Albir 

Nýlegt og gott 4ra stjörnu hótel við ströndina í Albir. Fyrirtaks aðstaða, skemmtidagskrá og svo er stutt í gamla bæinn með verslanir, veitingastaði, bari og markaði.

(+)nánar

Confort Nuevo Golf Apartments  

Confort & Nuevo Golf íbúðirnar eru í tveimur fimm hæða byggingum, sem standa sitt hvorum megin við snyrtilegan sundlaugargarð, sem er með grasflöt, 2 sundlaugum og barnalaug. Um 300 metrar eru í miðbæinn og aðrir 300  metrar að ströndinni í Albir. Nýlegar, stórar og einstaklega vel útbúnar íbúðir sem taka hámark 5 manns.

(+)nánar

Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar