Beint í leiðarkerfi vefsins.
Madeira 22. - 31.okt. - Kemur í sölu fljótlega
Madeira er gjarnan kölluð eyja hins eilífa vors eða garðurinn fljótandi. Eftir aðeins fimm klukkustunda beint flug ertu kominn til þessarar paradísareyju,u.þ.b. 600 km. vestur af ströndum Afríku. Hér er allt annar heimur. Þessi stórbrotna, blómstrandi eldfjallaeyja nýtur hitabeltisloftslags og hefur mikið aðdráttarafl.
Friðsæld, fallegt landslag og fjölbreytt gróðurfar auk einstakrar veðurblíðu heillar og laðar ferðamenn víða að. Madeira er tiltölulega lítil portúgölsk eyja, aðeins rúmlega 800 ferkílómetrar að stærð, en saga hennar er afar forvitnileg. Madeira og nálægu eyjarnar Porto Santo og Desertas eyjar voru miðstöð hins mikla landkönnunar- og nýlenduveldis Portúgala fyrr á öldum og drógu að sér sjómenn í landaleit og drekkhlaðin sæför frá öllum heimsálfum. En nú er öldin önnur og Madeira orðin að miðstöð skútusiglingamanna og náttúruunnenda. Fjölskrúðugt mannlíf í höfuðborginni Funchal og hinum fjölmörgu þorpum inni á eyjunni þar sem lífið gengur í rólegri takti og andrúmsloftið er annað láta engan ósnortinn.
Funchal
Funchal sem stendur við skínandi strendur Atlantshafsins er fallegur, blómum skrýddur bær með um 70.000 íbúa. Bakgrunn bæjarins mynda tignarleg 1200 m. há fjöll. Þessi gamla nýlenduborg er lifandi og skemmtileg, víða eru steinlagðar gangstéttir og þröngar götur, endurnýjuð gömul hús í bland við dásamleg kaffihús og glæsta veitingastaði. Hér eru líka fyrirtaks hótel og fjörlegt, margrómað næturlíf. Í grasagörðunum fjölmörgu getur að líta orkídeur, kaktusa og hin víðfrægu drekatré. Funchal er nútímaborg með þroskað yfirbragð.
Verslun
Í Funchal er að finna flestar þær verslanir og verslanakeðjur sem við þekkjum eða könnumst við. Nýjasta verslunarmiðstöðin heitir „Dolce VITA" sem staðsett er í miðbænum. Í miðbænum eru einnig minjagripaverslanir og ýmiss konar markaðir þar sem hægt er að nýta viðskiptahæfileika sína og semja um verðið á vörunum á staðnum.
Allar myndir á síðunni eru háðar höfundarrétti og eru birtar með góðfúslegu leyfi Turismo da Madeira.

Pestana Casino Park er gott hótel í göngufæri við miðbæinn í Funchal. Frá hótelinu er útsýni yfir flóann, höfnina og fjöllin. Hótelið var endurnýjað árið 2007 og eru öll salarkynni sérstaklega hugguleg. Flottar setustofur með líflegum bar og lifandi tónlist á kvöldin.

Hlýlegt og nútímalegt hótel við ströndina í Lido hótelhverfinu. Vegalengd í miðæinn í Funchal er um 2.5 km og þangað er þægileg gönguleið. Veitingastaðirnir eru fjölbreyttir, „allt innifalið“ og ekki þarf að greiða sérstaklega fyrir að borða á sérréttastöðum hótelsins.

Vila Porto Mare resort er mjög gott, 4ra stjörnu hótel með 198 herbergum. Hótelið er í Lido hverfinu, 2.5km frá miðbæ Funchal. Fjórir veitingastaðir, fimm barir og fimm sundlaugar er á þessu einstaka hóteli sem stendur við Atlantshafið, umvafið einstaklega fallegum lystigarði .

Pestana Promenade er nýlegt, gullfallegt 4ra stjörnu hótel í Lido hótelhverfinu á Madeira.
Útsýni er yfir Atlantshafið frá sundlaugargarðinum og herbergi eru ýmist með fulla sjávarsýn eða að hluta. Miðbærinn í Funchal er tæplega 3 km frá hótelinu og þægileg gönguleið á milli.

Hótel Alto Lido er ágætt hótel í Lido, sem er hótelhverfið sem út frá Funchal. Fjarlægð frá miðbænum er um 2 og hálfur km. Í sundlaugargarðinum eru tvær útilaugar og sundlaugarbar. Hótelið er með einnig með heilsulind, upphitaðri innilaug, kokkteilbar og veitingastað.