Portúgal, flug og ferðir til Portúgal | VITA.is

Portúgal

Portúgal

Sjór, klettar, sandur og sól, borgir, þorp og sveitir, fallegt og fjölbreytt mannlíf. Umfram allt djúp og rík menning. Söguleg dulúð og litadýrð um allt samfélagið. Þess vegna er stundum alhæft og sagt að í Portúgal ráði rómantíkin. Landið hefur heillað  þúsundir Íslendinga sem hingað til hafa aðallega farið til Albufeira, fallegs bæjar í hinu veðursæla Algarve héraði.

Algarve er toppurinn, klettótt strönd með hvítum sandinum inn á milli. Svæðið er þekkt fyrir menningu sína og sögulegar minjar, allt frá tímum Rómverja, glæsihótel nútímans, matargerð og aðrar lífsnautnir. Vegalengdir og fjarlægðir eru ekki miklar, hæglega er hægt að aka til suðvesturodda Evrópu, Cape St. Vincent og horfa út á Atlantshafið eða bæjarins Tavira við Spánarlandamærin í austri og skoða sögulegar byggingar og húsagerð, - eða skjótast í stórverslanir eða víðfrægar verslanagötur Albufeira. U.þ.b. 200 km. eru héðan til Lissabon og jafnlangt til Sevilla á Spáni.

Margskonar frábæra afþreyingu og skemmtun er að finna í Algarve. Við nefnum glæsilega golfvelli við allra hæfi. Við nefnum líka ótrúlega sjávardýragarða með sæljónum, selum og höfrungum og Aqualand með stórkostlegum vatnarennibrautum sannkallað vatnatívólí.


Gististaðir - Portúgal

São Rafael Suite Hotel CS 

Glæsilegt hótel í fallegu umhverfi, í miðju Algarve, skammt frá São Rafael ströndinni - einni bestu strönd Evrópu - og Albufeira. Góður kostur fyrir pör og fjölskyldur.

(+)nánar

Vila Galé Cerro Alagoa 

Þetta stílhreina fjögurra stjörnu hótel er vel staðsett, steinsnar frá gamla miðbænum í Albufeira. Herbergin eru virkilega smekkleg og rúmgóð, parketlögð og með nýtískulegum innréttingum. Stutt er síðan hótelið var gert upp.

(+)nánar

Alfagar II hótel - Íbúðahótel 

Gott fjögurra stjörnu hótel sem staðsett er 5 km austur af Albufeira. Hótelið er byggt á klettarsyllu við ströndina Santa Eulália með útsýni yfir strandlengjuna.

(+)nánar

Ponta Grande  

Skemmtileg gisting í vel búnum íbúðum með fullbúin eldhús. Skammt frá smábátahöfninni í Albufeira - stutt á ströndina og golfvelli.

(+)nánar

Prainha Clube, íbúðir 

Á fallegum stað situr Prainha Village og gnæfir yfir fiskimannaþorpið Alvor og Lagos flóann. Svæðið er um 35 hektarar og býður upp á ýmis konar þjónustu og afþreyingu. Í norð-austur hluta svæðisins er Prainha Clube.

(+)nánar

Paraiso de Albufeira 

Gott fjögurra stjörnu hótel, staðsett miðja vegu milli aðal verslunargötunnar í Albufeira og gamla miðbæjarins. Staðsetningin er því einkar góð. Hægt er að velja um þrennskonar íbúðir á hótelinu með allt upp í tveimur svefnherbergjum. Á hótelinu er lítil verslun sem býður upp á allar helstu nauðsynjar.

(+)nánar

Alfagar 1 - Smáhýsi 

Snotur íbúðagisting 5 km austan við Albufeira. Hótelið situr á klettarsyllu við Santa Eulália ströndina og frá því er gríðarlega falleg útsýni yfir strandlengjuna.

(+)nánar

Albufeira Sol - Íbúðir & smáhýsi 

Íbúðahótel á skemmtilegum stað í Albufeira, um 10 mínútna gang frá Santa Eulalia og Oura ströndunum og 5 mínútur frá 'the Strip,' þar sem er að finna fjölda verslana, markað, bari, veitingastaði og næturklúbba.

(+)nánar

Albufeira Sol - Herbergi 

Hótel á skemmtilegum stað í Albufeira, um 10 mínútna gang frá Santa Eulalia og Oura ströndunum og 5 mínútur frá 'the Strip,' þar sem er að finna fjölda verslana, markað, bari, veitingastaði og næturklúbba.

(+)nánar

Prainha Village, raðhús 

Á fallegum stað situr Prainha Village og gnæfir yfir fiskimannaþorpið Alvor og Lagos flóann. Svæðið er um 35 hektarar og býður upp á ýmis konar þjónustu og afþreyingu. Í austur hluta svæðisins er Prainha Village Raðhús.

(+)nánar

Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar