Beint í leiðarkerfi vefsins.
Sjór, klettar, sandur og sól, borgir, þorp og sveitir, fallegt og fjölbreytt mannlíf. Umfram allt djúp og rík menning. Söguleg dulúð og litadýrð um allt samfélagið. Þess vegna er stundum alhæft og sagt að í Portúgal ráði rómantíkin. Landið hefur heillað þúsundir Íslendinga sem hingað til hafa aðallega farið til Albufeira, fallegs bæjar í hinu veðursæla Algarve héraði.
Algarve er toppurinn, klettótt strönd með hvítum sandinum inn á milli. Svæðið er þekkt fyrir menningu sína og sögulegar minjar, allt frá tímum Rómverja, glæsihótel nútímans, matargerð og aðrar lífsnautnir. Vegalengdir og fjarlægðir eru ekki miklar, hæglega er hægt að aka til suðvesturodda Evrópu, Cape St. Vincent og horfa út á Atlantshafið eða bæjarins Tavira við Spánarlandamærin í austri og skoða sögulegar byggingar og húsagerð, - eða skjótast í stórverslanir eða víðfrægar verslanagötur Albufeira. U.þ.b. 200 km. eru héðan til Lissabon og jafnlangt til Sevilla á Spáni.
En það er fleira að upplifa á Algarve en rómantík og Albufeira. Nágrannabæirnir Salgados og Gigja eru spennandi byggðakjarnar þar sem ekki er síður vert að dvelja í en við viljum nú gjarnan beina athyglinni til. Hér vekjum við sérstaka athygli á hótelunum í Salgados sem eru af einstaklega miklum gæðum og óhætt að segja að þar fái viðskiptavinir mikið fyrir peninginn. Frábær gæði og gott verð gerir Salgados að vænlegum kosti.
Í boði eru margir forvitnilegir gisti- og afþreyingarkostir jafnt fyrir hina athafnasömu sem þá sem njóta vilja frítíma síns í ró og næði. Úrval golfvalla, tívólí, vatnagarðar og sædýragarðar. Hótelin okkar eru vel valin; sum hver staðsett við fallega og breiða sandströndina.
Margskonar frábæra afþreyingu og skemmtun er að finna í Algarve. Við nefnum glæsilega golfvelli við allra hæfi, Salgados golfvöllurinn er t.d. stórskemmtilegur með víðfrægum vatnagildrum sínum. Við nefnum líka ótrúlega sjávardýragarða með sæljónum, selum og höfrungum og Aqualand með stórkostlegum vatnarennibrautum sannkallað vatnatívólí.

Þetta stílhreina fjögurra stjörnu hótel er vel staðsett, steinsnar frá gamla miðbænum í Albufeira. Herbergin eru virkilega smekkleg og rúmgóð, parketlögð og með nýtískulegum innréttingum. Stutt er síðan hótelið var gert upp.

Fallegt, notalegt en samt líflegt smáhýsa hótel þar sem „allt er innifalið". Hótelið er staðsett 300 metra frá ströndinni Praia da Falesia og einnig Praia dos Tomates.

Gott fjögurra stjörnu hótel sem staðsett er 5 km austur af Albufeira. Hótelið er byggt á klettarsyllu við ströndina Santa Eulália með útsýni yfir strandlengjuna.

Á fallegum stað situr Prainha Village og gnæfir yfir fiskimannaþorpið Alvor og Lagos flóann. Svæðið er um 35 hektarar og býður upp á ýmis konar þjónustu og afþreyingu. Í norð-austur hluta svæðisins er Prainha Club.

Gott fjögurra stjörnu hótel, staðsett miðja vegu milli aðal verslunargötunnar í Albufeira og gamla miðbæjarins. Staðsetningin er því einkar góð. Hægt er að velja um þrennskonar íbúðir á hótelinu með allt upp í tveimur svefnherbergjum. Á hótelinu er lítil verslun sem býður upp á allar helstu nauðsynjar.

Snotur íbúðagisting 5 km austan við Albufeira. Hótelið situr á klettarsyllu við Santa Eulália ströndina og frá því er gríðarlega falleg útsýni yfir strandlengjuna.

Á fallegum stað situr Prainha Village og gnæfir yfir fiskimannaþorpið Alvor og Lagos flóann. Svæðið er um 35 hektarar og býður upp á ýmis konar þjónustu og afþreyingu. Í austur hluta svæðisins er Prainha Village Raðhús.