Beint í leiðarkerfi vefsins.
Calpe er fremur lítill og heillandi strandbær á suðurströnd Spánar, u.þ.b. 65 km. frá Alicante. Calpe er fyrrum fiskibær eins og margir þessir fallegu spænsku bæir og þorp við Miðjarðarhafsströndina. Skráður íbúafjöldi gæti verið í kring um 22 þúsund. Calpe á sér merka sögu og bronsaldarminjar allt frá tímum Rómverja og fyrr og víða eru líka merki um hernað og róstur við herskáar múslimskar þjóðir handan Miðjarðarhafsins. Stórkostlegar klettamyndanir einkenna staðhætti og landslag. Veðurfar er jafnan afar gott enda loftslagið milt Miðjarðarhafsloftslag.
Calpe er í dag glæsilegur og lifandi ferðamannabær á besta mælikvarða með fjölbreytilega menningu og mannlíf og góðar samgöngur í allar áttir. Við hafið eru fallegar, hvítar strandir og sjórinn dásamlegur. Hér er því fjölmargt í boði sem tengist sjónum, sundi, bátum, köfun og jafnvel fiskveiðum. Hótelin eru glæsileg með fjölbreytilegu veitingum og allskonar veitingahúsum, jafnt fyrir matarsérvitringa sem hinn venjulega ferðamann. Fjöldi safna, skemmtigarða er í borginni. Afþreyingarmöguleikar eru því margir fyrir ferðamanninn og hér er gott að dvelja. Calpe er nýr áfangastaður hjá VITA.

Glæsilegt hótel á góðum stað. Stór og góð heilsulind, góðir veitingastaðir og aðeins 200 metrar á ströndina.

Frábært hótel á besta stað í miðbæ Calpe, við Arenal ströndina, skammt frá Peñón de Ifach klettinum.

Góð íbúðargisting á besta stað í miðbæ Calpe, við Arenal ströndina, skammt frá Peñón de Ifach klettinum.

Þriggja stjörnu hótel á besta stað við Levante ströndina í Calpe og í göngu færi við aðal bæjarkjarnann þar sem er að finna fjölda veitingastaða og verslana.

Nýlega endurnýjað og fjölskylduvænt hótel á góðum stað við La Calalga-vík - stutt á ströndina.

Nýlega endurnýjað og fjölskylduvænt hótel á góðum stað við La Calalga-vík, stuttan spöl frá ströndinni.