Hagnýtar upplýsingar

Hagnýtar upplýsingar - Knattspyrnuskóli Kristjáns Bernburg

Ferðalagið

Flogið er til Brussels (3 klst) og þaðan haldið með rútu til Lokeren .Fararstjóri fer með hópinn til Brussel og þar tekur Kristján Bernburg og hans lið við hópnum, áður en haldið er af stað til Lokeren.

FI 558  30JUL   KEFBRU   1620 2135                    
FI 559  06AUG  BRUKEF   2230 2355

Gisting

Gist er á glænýju íþrótta hóteli í Puyenbroeck. Á hótelinu, sem er rétt fyrir utan Lokeren, er mjög góð aðstaða fyrir íþróttahópa, m.a. er sundlaug. Drengirnir eru 2-3 saman í herbergi.

Þjálfunin

Rik Van Cauteren er yfirþjálfari skólans. Hann er fyrrverandi atvinnumaður með Lokeren og þjálfar nú unglingalið félagsins. Hann hefur æðstu gráðu Konunglega þjálfaraskólans í Belgíu.

Honum til halds og trausts eru nokkrir aðstoðarþjálfarar, m.a. sérstakur markmannsþjálfari. Markmansþjálfari er Paul Van Hemerlrijke hann er einnig með æðstu gráðu Konunglega þjálfaraskólans. Þá verður Henny De Regt, þjálfari hjá Ajax í Hollandi, sérstakur gestaþjálfari í knattspyrnuskólanum sumarið 2012.

Geert Dirinc þjálfari U-17 hjá Lockeren. hann er með æðstu gráðu Hollenska þjálfaraskólans .

Sjúkraþjálfari skólans er Stany Rogiers, hefur hann séð um meiðsli leikmanna Lokeren í 28 ár en nú er hann eingöngu með belgíska landsliðið og leikmenn skólans.

Skólastjóri er sem fyrr Kristján Bernburg. Kristján er búsettur í Lokeren og sér hann um að allt gangi snuðrulaust fyrir sig . Ásamt Unnari Sigurðssyni  farastjóra.

Æfingaaðstaða og uppbygging æfinga

Æft er á mjög góðum grasvöllum og besta fáanlega gervigrasi sem völ er á. Æft er tvisvar á dag og er mikil áhersla lögð á að innleiða aga og einbeitingu hjá drengjunum. Rik, Geert og Paul hafa  mikla reynslu sem unglingaþjálfara og bera vinnubrögð þeirra  þess merki. Æfingarnar eru mjög markvissar en um leið á hann mjög auvelt með að ná til ungra knattspyrnumanna með skemmtilegum aðferðum sem viðhalda léttleika í hópnum.

Afþreying

Ýmislegt er gert sér til dundurs á milli æfinga. M.a er farið í keilu (pdf), skemmtigarð í Valibi og farið í go-kart (pdf). Auk þess er boðið upp á fræðslu á kvöldin um ýmislegt sem hjálpar ungum knattspyrnumönnum að bæta sig. Verlaun eru fyrir besta herbergið, besta leikmanninn yngri og eldri.
Nánari upplýsingar

Til að panta ferð velurðu áfangastaðinn KB skólinn í bókunarvélinni hér til hægri.

 

Allir knattspyrnusnillingarnir sem koma í skólann 2012, hvort sem það er í apríl eða ágúst, munu fara í hraða- og snerpuprófun sem belgíski úrvalsdeildarklúbburinn Club Brugge mun standa fyrir. Einnig munu þeir sem koma í apríl verða mældir í bak og fyrir, fundnir veikleikar og þeim ráðlagt hvaða æfingar henda best til þess að bæta sig.

Búið er að ná samningum við Tomas Vlaminck. Tomas er yfirþjálfari tækniæfinga  hjá Club Brugge og hefur starfað sem slíkur undafarin misseri. Tomas mun mæta í apríl og ágúst. Auk hans koma þjálfarar frá Ajax og Lokeren á bæði námskeiðin, líkt og síðastliðin ár.


Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Vildarklúbbur Icelandair

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Gengi gjaldmiðla

Fylgstu með gengisskráningu VISA greiðslukorta.

Ferðaávísun Mastercard

Nýttu þér ferðaávísun Mastercard þegar þú verslar hjá VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar