Beint í leiðarkerfi vefsins.
Allir þjálfarar skólans eru vel menntaðir og afar hæfir unglingaþjálfarar, en það er grundvallarkrafa hjá Manchester United. Markmið skólans er að gefa unglingum hvaðanæva að í heiminum innsýn í hvernig æft er hjá stórum atvinnumannafélögum og hjálpa þeim við að vera betri leikmenn. Þar að auki er líklegt að reynslan af þeirri samvist sem fæst í skólanum hafi mjög góð félagsleg áhrif á unglinga.
Boðið er upp á ýmsa fræðslu fyrir ungt knattspyrnufólk, auk þess sem að sjálfsögðu er reynt að tryggja að krakkarnir hafi gaman af verunni í skólanum. Með það að markmiði er dagskráin brotin upp með ýmsum uppákomum og skoðunarferðum.
Flogið er í áætlunarflugi með Icelandair, beint til Manchester. Frá flugvellinum er haldið með rútu á áfangastað.
Gistingin er í heimavistarskóla sem er inni á sama svæði og vellirnir. Um er að ræða mjög góð 2-6 manna herbergi. Öllum séróskum um herbergisfélaga þarf að koma til VITA sport með góðum fyrirvara.
6. ágúst MAN KEF 12:25 15:40 (millilent í Glasgow)
Í ár bjóðum við upp á eina ferð, fyrir allt að 70 unglinga, en lágmarksfjöldi á námskeiðinu er 30 manns. Skólinn er hugsaður fyrir stelpur og stráka á aldrinum 12-16 ára. Æft verður 2-3 sinnum á dag.
Í ferðinni er íslensk fararstjórn. Tekið er á móti krökkunum á Keflavíkurflugvelli og haldið utan um hópinn þar til skólanum er lokið og aftur komið til Íslands. Tveir fararstjórar eru með hópnum og er hlutverk þeirra að halda utan um hópinn, vera öllum innan handar allan tímann, hjálpa til við túlkun á æfingum og öðrum dagskrárliðum skólans sem og að hrista saman hópinn svo allir nái fótfestu í hópnum strax í byrjun.
Verð: 173.500 + 15000 punktar
*183.500 ef ekki eru notaðir punktar .
Innifalið: Flug, flugvallaskattar, gisting allan tímann, fullt fæði, allar ferðir á vegum skólans, ferðir til og frá flugvelli, íslensk fararstjórn og öll kennsla og umsjón meðan á dvöllinni stendur.
8:00 - Morgunmatur
9:00 - Morgunfundur
9:15 - Morgunæfing
12:30 - Hádegismatur
13:30 - Fræðsla
14:30 - Eftirmiðdagsæfing
17:30 - Kvöldmatur
18:15 - Kvöldfundur
18:30 - Kvöldæfing
21:00 - Frjáls tími
22:00 - Allir að vera komnir inn á herbergi
22:30 - Komin á ró á öllum herbergjum
Á heimasíðu knattspyrnuskólans er auk þess að finna ýmsar upplýsingar, svör við fjölmörgum spurningum og myndir frá leik og starfi.