Hagnýtar upplýsingar

Hagnýtar upplýsingar - Feneyjar til Flórens

Útbúnaður og ferðatilhögun
Klæðnaður:


Best er að hjóla í léttum strigaskóm eða lokuðum sanddölum ,,tevum“ og þunnum sokkum til að koma í veg fyrir núningsmeiðsli.
Til að koma í veg fyrir eymsli reynist mörgum vel að nota hjólabuxur með púða eða silikonhnakk á sætið.
Nauðsynlegt er að hafa meðferðis langerma skyrtu eða bol til varnar sólinni
Reiðhjólahjálmur er nauðsynlegur og hann þarf passa vel og sitja rétt á höfðinu.
Ekki má gleyma sólarvörninni.

 

Farangur er fluttur á milli hótela en samt þurfum við auðvitað alltaf að hafa eitthvað meðferðis yfir daginn. Hjólunum fylgja tvær töskur, ein sem fest er við stýri hjólsins, þar er tilvalið að geyma t.d. myndavél, peningaveski og fleira smálegt. Hin taskan er stærri og er fest við bögglaberann. Þar má geyma t.d. aukaföt, ef svo ólíklega vill til að sólin taki sér frí.

 

Tilhögun ferðarinnar:


Lagt er af stað frá hótelinu eftir morgunverð um það bil kl. 9:30 og hjólað með stuttum stoppum fram að hádegishléinu. Fyrsta stoppið er við verslun þar sem fólk getur keypt sér vatn, ávaxtasafa og ávexti eða annað snakk fyrir daginn. Suma daga höfum við ,,pikknikk“ í hádeginu og þá er einmitt verslað fyrir þá máltíð í þeirri sömu verslunarferð. Aðra daga borðum við á veitingahúsi í hádeginu og fer þessi tilhögun eftir aðstæðum hverju sinni.
Við leggjum áherslu á að taka daginn allan í hjólaferðina stoppa oft og njóta lífsins. Komutími á hótelin á kvöldin er um klukkan 18:00 og venjulega fer svo hópurinn saman til kvöldverðar sem búið er að panta fyrir okkur. Þar er boðið upp á þríréttaða máltíð að hætti Ítala, antipasto eða forrétt, secundo sem er alltaf pasta eða risotto og primo sem er aðalrétturinn. Að lokum er svo eftirréttur og kaffi. Kaffið á Ítalíu er svo sérkapituli sem nánar verður farið í síðar.
Hádegisverur á veitingahúsi kostar um það bil 15 evrur og kvöldverður 25.

 


Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar