Beint í leiðarkerfi vefsins.
VITA sport mun bjóða upp á heillandi og fjölbreyttar göngurferðir erlendis. Ferðirnar eru ýmist unnar í samstarfi við Steinunni Harðardóttir og gönguklúbbinn Göngu-Hrólf annarsvegar og Skotgöngu hins vegar.
Ferðir Steinunnar og Göngu-Hrólfs eru löngu orðnar flestum göngugörpum vel þekktar. Ferðir til Mallorca, í Pýreníafjöllin, til Toscana, til Tyrklands og Tenerife, hafa verið undirstaðan í ferðframboði Göngu-Hrólfs undanfarin ár.
Skotganga er í eigu hjónanna Ingu Geirsdóttur og Snorra Guðmundssonar sem hafa skipulagt fjölmargar gönguferðir víðsvegar um Skotland á síðastliðnum árum sem notið hafa mikilla vinsælda á meðal íslenskra göngumanna.
Gönguferðir með Steinunni Harðardóttur og Göngu-Hrólfi:
Innifalið: Flug, flugvallarskattar, allur farangursflutningur, gisting, allur akstur, morgunmatur, hádegis - og kvöldmatur og íslensk fararstjórn (hádegis - og kvöldverður eru ekki innifaldir á brottfaradegi nema annað sé tekið fram).
Gönguferðir með Skotgöngu:
West Highland Way ( Fyrri hluti)
West Highland Way ( Öll)
Great Glen Way
Hadrian's Wall
Speyside Way
West Highland Way ( Seinni hluti )
Innifalið: Flug, flugvallarskattar, allur farangursflutningur, gisting og morgunverður alla dagana, móttaka (kvöldmatur) fyrsta kvöldið hjá fararstjóra (í West Highland Way ferðum), hádegisnesti (samloka, ávöxtur og orkustangir) á gönguleið, Íslensk fararstjórn allan tímann.