Beint í leiðarkerfi vefsins.
Undanfarin ár hefur verið gífurleg aukning í framboði á ferðum á leiki í ensku knattspyrnunni. VITA sport hefur innan sinna raða þá aðila sem lang mesta reynslu hafa af skiplagningu slíkra ferða.
VITA sport mun í vetur bjóða upp á fjölbreyttar og skemmtilegar ferðir til Englands þar sem hægt er að sjá leiki í hæsta gæðaflokki, leikmenn á heimsmælikvarða og upplifa ólýsanlega stemmningu innan um tugþúsundir áhorfenda. Við útvegum miða á flesta leiki í ensku úrvaldsdeildina, seljum pakkaferðir fyrir smærri hópa, auk þess sem við skipuleggjum hópferðir til að sjá stærstu liðin.
Við verðum með nokkrar stórar hópferðir í vetur, meðal annars í samstarfi við íslenska stuðningsmannaklúbba Manchester United og Liverpool.
Vanti þig frekari upplýsingar eða hafir þú áhuga á að vita meira skaltu hafa samband við VITA sport með því að senda tölvupóst eða hringja í síma 570 4444.