Knattspyrnuskóli Kristjáns Bernburg

Knattspyrnuskóli Kristjáns Bernburg

Æft að hætti atvinnumanna 

 Uppselt

24.júlí  - 01. ágúst 2010

Knattspyrnuskóli Kristjáns Bernburg hefur notið mikilla vinsælda á meðal ungra knattspyrnuiðkenda á Íslandi, enda fá þær smjörþefinn af því hvernig það er að æfa við aðstæður eins og þær gerast allra bestar. Skólinn er staðsettur í Lokeren í Belgíu.

Þjálfarar skólans eru í hópi þeirra fremstu í unglingaþjálfun í Belgíu og eru allar aðstæður fyrsta flokks. Sumarið 2010 verður Henny De Regt, þjálfari frá Ajax í Hollandi, sérstakur gestaþjálfari í knattspyrnuskólanum. Aldrei áður hefur ungum knattspyrnuiðkendum frá Íslandi gefist tækifæri á að æfa undir stjórn þjálfara frá félagi sem býr yfir eins mikilli hefð í unglingastarfi og Ajax.

Mikil áhersla er lögð á að einstaklingurinn fái að njóta sín í skólanum og er markmiðið að hver og einn fá góða innsýn í æfingaheim þeirra sem hafa atvinnu af því að stunda knattspyrnu. Skólinn er ekki síður fyrir markmenn en útileikmenn, enda er boðið upp á sérstaka markmannsþjálfun í mjög háum gæðaflokki.

Skólastjóri skólans er Kristján Bernburg.

Verð: 194.500

Innifalið í verði : Flug, skattar, gisting , fullt fæði, umsjón og kennsla, búningur , ferðir til og frá flugvelli og Íslensk fararstjórn .

Vanti þig frekari upplýsingar eða hafir þú áhuga á að vita meira skaltu hafa samband við VITA sport með því að senda tölvupóst eða hringja í síma 570 4444.



Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Vildarklúbbur Icelandair

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Gengi gjaldmiðla

Fylgstu með gengisskráningu VISA greiðslukorta.

Ferðaávísun Mastercard

Nýttu þér ferðaávísun Mastercard þegar þú verslar hjá VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit


Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar

Inspired by Iceland