Beint í leiðarkerfi vefsins.
31.júlí. - 7.ágúst
Sumarið 2010 býður VITA Sport upp skipulagðar ferðir fyrir unga og efnilega íslenska knattspyrnuiðkendur til knattspyrnuskóla Manchester United. Ferðirnar eru skipulagðar í samstarfi við Manchester United klúbbinn á Íslandi en eins og nafnið gefur til kynna er starf skóans á vegum Manchester United, stærsta félags Englands og þótt víðar væri leitað.
Í ár munu bæði drengir og stúlkur hafa aðsetur í Denstone College, heimavistarskóla sem er staðsettur á milli Derby og Stoke-on-Trent, en þaðan er u.þ.b. klukkustundar akstur til Manchester. Kynjunum verður þó haldið aðgreindum á svæðinu, bæði í gistingu og í dagskrá skólans, svo sem æfingum og fræðslu. Hins vegar mun hópurinn allur fara saman í þær ferðir sem eru á dagskrá, til dæmis í skemmtigarðinn Alton Towers og á Old Trafford.
Allur aðbúnaður hjá Denstone College er mjög vel til þess fallinn að halda utan um knattspyrnuskólann. Á svæðinu eru margir góðir vellir, gistiaðstaðan er betri en gengur og gerist á slíkum heimavistarskólum auk þess sem skólarnir eru hæfilega einangraðir. Það er heppilegt þegar halda þarf utan um hóp unglinga.
Verð :194.500 eða 184.500 + 15.000 vildarpunktar
Innifalið: flug, skattar, gisting allan tímann, fullt fæði, allar ferðir á vegum skólans, ferðir til og frá flugvelli,íslensk fararstjórn og öll kennsla og umsjón meðan á dvölinni stendur .