Beint í leiðarkerfi vefsins.
Feneyjar og Flórens, tvær frægustu og fegurstu borgir Ítalíu og jafnvel Evrópu allrar, eru við upphaf og endi þessarar hjólaferðar. Hjólaleiðin liggur þó um svæði sem að mestu eru óuppgötvuð af ferðamönnum og má meðal annars nefna að við hjólreiðamanninum blasa; kivi-, melónu- og peruakrar að ógleymdum litlum og stórum vínekrum.
Sólblómin hneigja risastórar krónur sínar og fuglar af ýmsum framandi tegundum syngja. Veiðimenn sitja með stangir sínar við ár og kanala, bíða eftir að bíti á og brosa og vinka til ferðamanna.
Gististaðirnir eru í fögrum borgum eins og Ferrara og Ravenna. Þar er óhjákvæmilegt að setjast niður á kaffihúsi og fá sér kaffi að hætti innfæddra, hlusta á dæmigerðar umræður um fótbolta og stjórnmál sem eru eimmitt uppáhaldsumræðuefni Ítala.
Hjólaleiðin er á flatlendi Pódalsins alla leið. Hjólað er á sveitavegum og stígum, sem nær allir eru malbiikaðir og liggja meðfram ám, kanaölum og stórfljótum eins og Pófljótinu. Örsjaldan þarf að fara stuttar vegalengdir á hraðbrautum til að tengja saman hjólaleiðir. Þetta er hjólaleið sem öllum sem á annað borð eru vanir að hjóla er fær.
Dagur 1
Flug frá Keflavík til Bologna/Mílanó.
Langferðabifreið til Mestre sem er ,,svefnbær“ Feneyjar. Þar hittum við innlenda leiðsögumanninn og fáum hjólin.
Dagur 2
Mestre/Feneyjar – Chioggar/Sottomarina: u.þ.b. 35 km.
Við byrjum á að hjóla yfir sex kílómetra langa Frelsisbrúna yfir til Feneyja og tökum þaðan ferju til eyjarinnar Lido. Við hjólunm eftir endilangri eynni og tökum aðra ferju yfir á Palestrina sem er líka er eyja og þaðan enn eina ferjuna til Chioggia. Á hjólaleiðinni allri njótum við útsýnis yfir hafið, þar sem bæði litlir bátar og risastór skemmtiferðaskip sigla. Chioggia er róleg lítil borg sem oft er kölluð ,,Litla Feneyjar“ enda eru þar brýr og sýki eins og í Feneyjum.
Dagur 3
Chioggia/Sottomarina – Rovigo: u.þ.b.65 km
Í dag er hjólað eftir fáförnum vegum og stígum meðfram ánni Adigi. Við fylgjum ánni um akrar og engi og gegnum lítil og fögur þorp til borgarinnar Rovigo. Rovigo er dæmigerð ítölsk borg með mörgum torgum og kaffihúsum.
Dagur 4
Rovigo – Ferrara: u.þ.b. 45 km
Í dag er hjólað meðfram hinu risavaxna fljóti Pó sem hlykkjast eftir frjósamri sléttunni. Við hjólum á fljótsbakkanum til borgarinnar Ferrara sem er fræg fyrir hjólamenningu sína en þar hjóla bókstaflega allir, fátækir sem ríkir og aldnir sem ungir. Í Ferrara er auðvitað margt fleira að sjá en hjólandi fólk, þar er frægur vatnaskastali, dómkirkja og fallegur miðbær.
Dagur 5
Ferrara – Ravenna: u.þ.b. 50 km. og lest.
Við hefjum þennan dag á lestarferð til Alfonsine og hjólum þaðan um þjóðgarðinn ,,Po Delta“ en þar er einstakt jurta- og fuglalíf. Eftir Po Delta hjólum við meðfram Adriahafinu til borgarinnar Ravenna sem á sér aldagamla sögur lista og menningar.
Dagur 6
Ravenna – Florence: u.þ.b. 55 km. og lest.
Nú breyta hlíðar Appenínafjallgarðsins útsýninu og áfram er hjólað um akra og engi, framhjá sveitabæjum og litlum þorpum áður en við nálgumst borgina Faenza sem fræg er fyrir keramiklist sína. Eftir það er stutt til Brisighella sem er einstök miðaldaborg, og miðbærinn þar engu líkur. Frá Brisighella tökum við lest til Flórens.
Dagur 7
Flórens.
Það er einfaldlega ógleymanleg upplifun að ganga um miðbæ Flórens þar sem eru óviðjafnanleg listasöfn, listaverk á götum úti, dómkirkjan fagra Santa Maria del Fiore, brúm yfir ána Arno og iðandi mannlífi.
Dagur 8
Heimferð
Verð 239.500 + 15.000 vildarpunktar
Innifalið:
Flug, gisting á 3ja til 4ra stjörnu hótelum, morgunverður, farangur fluttur milli staða, reiðhjól, lestar- og ferjugjöld, íslensk fararstjórn og ítalskur leiðsögumaður.
Lágmarksþátttaka er 15 manns.