Gönguferð Slóvakía

Gönguferð Slóvakía

Gönguferð í "hefðbundnum takti" um þjóðgarða Slóvakíu.  6. - 14. ágúst  2012

 

Slóvakía  er lítið land í miðri  Evrópu sem var hluti af gömlu Tékkóslóvakíu fram til ársins 1993.
Þar  eru margir spennandi fjallgarðar, þjóðgarðar og fjölmörg friðlönd sem gaman er að ganga um. Við bjóðum upp á gönguferð um þetta fallega og fjölbreytta land. Gengið er eftir grasi grónum fjallahrygglum Litlu- Fatrafjallanna, um ævintýraleg gil Slóvönsku paradísarinnar,
og stikklað milli klettaborga og toppa Há- Tatrafjallanna. Og fræðst um einstaklega áhugaverða menningu og sögu landsins. Þar eru meðal annars stórbrotnir kastalar og klaustur, vel varðveitt sveitaþorp og sérstæðar timburkirkjur. Gist er á hótelum á þremur mismunandi og ólíkum stöðum sem gefa góða mynd af þeirri miklu fjölbreytni sem landið býr yfir. Síðustu nóttina ere r gist í Krakow og farið í fræðandi gönguferð um miðborgina.

1. dagur  Krakow -Litlu Fatrafjöllin.

Komið til Krakow um miðnætti og ekið í um 3 tíma þar til komið er í lítinn dal í svokölluðum Mala Fatra  eða litlu- Fatrafjöllum í norð-vestur Slóvakíu, þar verður gist eina nótt á hóteli Gavurky. Það er gott að hefja gönguferð  í Mala Fatra fjöllunum, þessi fjallgarður er lægri en Há- Tatrafjöllin sem við heimsækjun síðar en hann er  ekki síður áhugaverður bæði jarðfræði- og náttúrufarslega. Litlu- Fatrafjöllin eru úr kalksteini og dólómíti og einkennast af klettabeltum og  grösugum hæðum sem teygja sig hæst í 1600 metra hæð. Þar má líka finna fjallahryggi með úfnum toppum  milli grasigróinna fjalla sem víða eru sundurskorin af giljum og dölum.
Og á háfjallaengjunum má sjá fjölmargar tegundir fiðrilda sem og spennandi ránfugla og uglur.

2. dagur Litlu Fatrafjöllin.

Eftir góðan nætursvefn  er haldið með stólalyftu úr Vrátnadalnum upp í fjallaskarðið  Snílovské sedlo (1.524 m) .Eftir skamma göngu þaðan er komið á fyrsta fjallatoppinn Chleb, sem er í 1.645 m. hæð, síðan haldið eftir góðum stíg sem liggur eftir endilöngum fjallahryggjum. Af honum er einstakt útsýni  yfir breiðan dal og fjallatoppa.  Þarna er paradís blómaunnenda því fjallaengin eru þakin fjölbreyttum gróðri. Næsti fjallatoppur er Poludòový Grúò, (1.460) . Þarna er gott að stoppa en það er líka hægt að leggja á enn einn tindinn sem er  Stoh (1.607 m) og hvílast síðan í Medziholie skarðinu (1.185 m). Það getur verið mjög slakandi að sitja undir klettatoppnum Rozsutec og fylgjast með fólki klífa fjallið. Leið okkar liggur síðan meðfram fjallinu og  fallegasti hluti göngunnar er nú framundan sem er um þröngt gil sem nefnist Diery eða Holan. Þarna myndar lítill lækur fallegan foss og þar er farið niður gilið eftir  góðum stiga. Gangan endar í bænum  Štefanová (652 m)  þar sem gott er að slaka á og fá sér hressingu. Næstu nætur verður gist á hótelinu Atríum í bænum Poprad.  Þetta er persónulegt hótel frá 17.öld í gamla bæjarhlutanum sem var áður sjálfstæður bær, Spiska Sobota eða Sunnudagsmarkaðurinn.
Göngutími 5.1/2 tími . Hæsti punktur 1645. Hækkun 121m. Lækkun 1020 m..

3. dagur. Slóvanska paradísin.

Slóvanska paradísin. 
Haldið er inn á svæði sem hlotið hefur nafnið Slóvanska paradísin. Þetta er kalksteinsháslétta sundurskorin af djúpum giljum sem vatnsmiklar ár hafa grafið í aldanna rás.  Þetta er sannkölluð paradís, ekki einungis fyrir göngufólk heldur líka fyrir náttúru- og blómaunnendur. Þarna er sérstætt og skemmtilegt samspil skugga, fjallalækja, fossa og fallinna trjástofna sem eru alþaktir fléttum og mosum, svæðið líkist helst leyndum hýbýlum skógarálfa og dverga. Gengið er um gil og gjár, stikklað á steinum og trjábolum og  haldið upp Sucha Bela gilið  með hjálp ótrúlegra járnstiga. Þó stigarnir virki stundum ógnvekjandi eru þeir á allra færi og væntanlega hittum við þarna fjölskyldur með börn.Þeir sem eiga við lofthræðsluvandamál að stríða fá persónulega aðstoð frá slóvönsku fararstjórunum.  Eftir um tvo tima er komið við í rústum gamals þagnarmunkaklausturs Kláštorisko og síðan gengið á plönkum meðfram breiðri og lygnri Hornáánni. Íslenskur hópur sem prófaði þessa ævintýraleið fyrir tveimur árum var yfir sig hrifinn. Eftir sérstæðan og spennandi dag er ekið aftur til  Poprad.
Ganga 5 tímar. Hæsti punktur 430 m, hækkum 430 m og lækkun430 m.

4. dagur.   Hvítu Tatrafjöllin.

Hvítu Tatrafjöllin.
A.Haldið er í  Belinske Tatra sem eru kalksteinsfjöll við austur enda Há –Tatrafjallanna sem eru hinsvegar úr graníti. Á sumrin eru  suðurhlíðar kalksteinsfjalla þaktar fjölbreyttum háfjallagróðri sem litar hlíðarnar öllum regnbogans litum. Það getur einnig að líta grasigróna hjalla og fjallahryggi. Farið er um  þorpið Ztiar sem er  þekkt fyrir sérstök og  falleg timburhús. Þaðan er haldið eftir þægilegum stíg  úr 900 metrum hæð upp hinn bratta Monkovdal upp í Siroke sedo, skarð sem er í 1830 metra hæð. Þar taka við litskrúðugar blómabrekkur og útsýn til úfinna tinda Há -Tatrafjallanna . Ekki er ólíklegt að þarna megi sjá fjallageitur. Eftir um 30 mínútur  er komið í Kopské sedlo skarðið sem skilur á milli Hvítu- Tatrafjalanna og Há- Tatafjallanna. Skamt undan er fyrsta fjallavatnið  Bele pleso og fjallaskálinn Plesnivec við Græna vatnið. Eftir stutt stop er haldið niður  í Kotlina þorpið (850) og þaðan  farið með bíl til  Poprad.                                                                                             Göngutími 8 tímar, hæsti punktur 1.825 m, hækkun 915 m, lækkun 900 m
B. Fyrir þá sem ekki vilja halda svona hátt er boðið upp á auðveldari gönguferð við rætur fjallanna og umhverfis Ztiar sem er eistaklega skemmtilegt slovakískt þorp.
Gengið 4-5 tíma,hæsti punktur 1000 m.y.s. Hækkun og lækkun 100 m

 

5. dagur.  Há Tatrafjöllin.

Há- Tatrafjöllin sem eru hæsti fjallgarður Karpatafjallakeðjunnar eru granítfjöll mótuð  af ísaldarjöklum sem  rísa upp af Popradsléttunni og  þekja um 800 km2. Á svæðinu eru 25 tindar hærri en 2.500 m. sá hæsti þeirra er 2655 m.y.s. Í nær öllum fjalladölunum  eru falleg fjallavötnin sem eru mikil andstæða við hina úfnu fjallatindana sem spegla sig í þeim. Vötnin sem eru alls 120 eru kölluð pleso. Fjallagemsinn og alpafífilinn eru tákna þessara fjalla.  Um Snæfjöllin eins og þau voru kölluð fyrr á öldum hafa skapast fjölmargar sagnir sem segja frá háfjallamönnum, gullgröfurum og hinni óhamingjusömu greifynju Beate sem dó vegna ástar sinnar á Snæfjöllunum. Fallegustu sögurnar eru þó um hin ísilögðu fjallavötn í dalbotnunum.
Þennan dag verður fluttur á fjallahótel við Popdraskevatnið þar sem gist verður næstu tvær nætur. Hópnum er ekið upp í fjöllinn og þaðan er gengið niður í gististaðinn.  (Mögulegt er að nota þennan dag til að fara  upp á hæsta tind Tatrafjallanna Gerlachovský stit (2655 m.y.s.) Þeir sem þess óska þurfa að panta fjallaleiðsögumann fyrirfram og greiða sanngjarna upphæð sem gildir fyrir 1-4.) 
Ganga dagsins hefst við Hrebienok en þaðan er haldið eftir svokölluðum Magistralastíg sem tengir suðurdali Tatrafjallanna og leiðir göngmenn á marga spennandi stað. Leiðin liggur til  Sliezsky dom og síðan um hæsta hluta göngunnar í Pod Ostrvou skarðið (1.966 m).
Þaðan er farið niður bratta hlíð að Popdraske vatninu en við það  stendur  fjallahótelið sem við gistum á næstu tvær nætur. Við vatnið er táknrænn kirkjugarður til minningar um  þá fjölmörgu göngumenn sem fjöllin hafa tekið. Þar er mikið af fallegum minningaskjölum sem áhugavert er að skoða um leið og fræðast um hin fjölmörgu slys sem hafa orðið í fjöllunum . Gengið 5 tíma.Hæsti punktur 1966 m.Hækkun 681 m lækkun 472 m.

6. dagur.  Rysy –Há Tatrafjöllin.


Þennan dag er komið að hápunkti ferðarinnar þar sem  haldið er á  Rysy,(2499 m.y.s)  hæsta fjall Póllands .  Þar er hægt að standa með annan fótinn í Slóvakíu og hinn í Póllandi. Á fjallinu er jafnan mikið af Pólverjum sem ganga í fótspor Leníns sem ku hafa farið þar upp með hóp ungliða á sínum yngri árum. Það er auðveldara að klífa Rysy frá Slóvakíu en Póllandi . Lagt er upp frá Popradske pleso og haldið um hinn fallega dal  Mengusovska dolina .Gengið er um svæði sem einkennist af dvergfuru  fram hjá fallegum vötnum að hæsta fjallaskála fjalllendisins Chada pod Rysmi sem er  í 2250 m hæð. Áður en þangað er komið þarf smá klifur sem er auðveldað með keðju. Síðan er greið leið á tindinn sem er 2499 m. Af topnum er frábært útsýni þar  blasir við stæsta vatn Tatrafjallanna, Morskie Oko, hæsti tindurinn Gerlachovsky štít, þjóðartákn Slóvakiu fjallið  Kriváò og mart fleira. Þar sem farið er fram og til baka sömu leið geta þeir sem treysta sér ekki á tindinn farið áleiðis með hópnum og haldið svo sömuleið til baka þegar þeir óska. Einnig er gaman að ganga kringum Popradskevatnið eða fara niður í skíðabæinn Strebensky Pleso sömu leið og farin verður næsta dag.
Gengið 5 tíma,hæsti punktur 2499 m hækkun 1005 m lækkun 1005 m

7. dagur. Popradske pleso-Strebenske pleso-Krakow



Popradske pleso-Strebenske pleso-Krakow 
Haldið er gangandi frá fjallahótelinu til  Strebensky pleso. Þar bíður rúta sem flytur hópinn til Krakow. Komið til borgarinnar síðdegis og  farið í 3-4 tíma gönguferð um miðbærinn. Kvöldverður á eigin vegum en það er mikið af áhugaverðum veitingahúsum í Krakow .

8. dagur. Krakow- Reykjavík

 

Allur farangur er fluttur á milli staða.
Eins og kemur fram í lýsingunni eru oft möguleikar á að fara styttri og auðveldari leiðir en gert er ráð fyrir í lýsingunum. Stundum getur allur hópurinn þurft að taka slíka ákvörðun vegna veðurs eða  annarra ófyrirséðra aðstæðna. í öðrum tilfellum getur fólk beðið á meðan hluti hópsins fer alla leið.  Eins og alltaf í ferðum Gönguhrólfs er hægt að taka sér hvíld einn eða fleiri daga og er fólk hvatt til þess að hafa það alltaf í huga.

Fararstjórar:  Jósep Gíslason  og Ondrej Rajec
Verð 199.500
Innifalið : Flug, gisting , fararstjórn, allur flutningu og fæði nema ferðadagana, kvöldverður  síðasta kvöldið og drykkir með mat.

* Það er ekki hægt að nota punkta í þessa ferð

Erfiðleikastig.

2 fjöll: Hefðbundinn taktur.
Í hluta göngunnar er farið um ójafnt landslag með ógreinilegum stígum. Hækkun getur verið 6-800 metrar og sumar dagleiðir geta tekið 8 tíma. Til að njóta ferðarinnar þurfa þátttakendur að hafa reynslu af fjallgöngum og gönguferðum úti í náttúrunni eða verið virkir í einhverri góðri líkamsþjálfun. Og það er nauðsynlegt að vera í góðu líkamlegu formi.

 

Flugtímar

6.ágú, Keflavík 18:20 – Kraká 00:35 +1D

14.ágú, Kraká 01:35 – Keflavík 03:30

 



Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar