Beint í leiðarkerfi vefsins.
West Higland Way er 153 km gönguleið milli Milngavie (úthverfis Glasgow) og Fort William. Þetta er vinsælasta gönguleið í Skotlandi, hana ganga 70.000 manns árlega. Leiðin liggur í gegnum eitthvert fallegasta svæði landsins, meðfram vötnum og tignarlegum fjöllum, um skóga, dali og heiðar. Gangan er í meðallagi erfið, ekkert príl og því við hæfi flestra.
Lent á Glasgow flugvelli kl. 13:30, ekið á fyrsta gististað. Frjáls eftirmiðdagur í Glasgow.
Um kvöldið er móttaka (kvöldmatur) hjá fararstjóra, þar sem tækifæri gefst á að hrista gönguhópinn saman og farið verður yfir dagskrá næstu daga.
Gönguleiðin liggur frá Milngavie, úthverfi Glasgow í gegnum skóglendi og út í fagurgræna sveitina. Þægilegur dagur í göngu og ágætis upphitun fyrir næstu daga.
Ganga: 19 km - Hækkun: 90 m
Þennan dag er gengið í skóglendi og þaðan upp Conic Hills (360 m). Héðan er stórkostlegt útsýni yfir Loch Lomond vatnið og eyjarnar. Gengið gegnum Balmaha og meðfram Loch Lomond áleiðis til Rowardennan.
Ganga: 22,5 km - Hækkun: 360 m
Þessi dagur er mjög fjölbreyttur í göngu og að hluta seingenginn. Mestur hluti af deginum er meðfram Loch Lomond vatninu og er þessi leið afskaplega falleg og skemmtileg.
Ganga: 22,5 km - Hækkun: 240 m
Gengið upp Glen Falloch dalinn, fram hjá Falloch fossum og upp hjá Crianlarich áleiðis til Tyndrum. Fallegt útsýni yfir sveitina.
Ganga: 21 km - Hækkun: 300 m
Keyrt til Glasgow um morguninn, ferðin tekur 1 1/2 tíma. Farið verður með farangur og fólk á gististaðinn og síðan er frjáls dagur + kvöld. Kjörið að heimsækja Edinborg (50 mín. með lest) eða spóka sig um í Glasgow.
Ekið til Glasgow flugvallar kl. 12:00. Flogið heim til Íslands kl. 14:20.
Verð : 143.500
Innifalið í verði ferðar:
Flug, skattar ,akstur til og frá Glasgow / Manchester flugvelli, ferðir til og frá upphafsstað göngu, gisting og morgunverður alla dagana, móttaka (kvöldmatur) fyrsta kvöldið hjá fararstjóra (í West Highland Way ferðum), farangursflutningur á milli gististaða, hádegisnesti (samloka, ávöxtur og orkustangir) á gönguleið, Íslensk fararstjórn allan tímann.
Verð miðast við tvíbýli. Aukagjald fyrir eins manns herbergi.