West Highland Way (öll)

West Highland Way (öll)

West Highland Way Öll leiðin - 153 km gengnir á 7 dögum

 
21.maí  - 30. maí , 18.júní - 27.júní, 13. - 22. ágúst

 


West Highland Way er 153 km gönguleið milli Milngavie (úthverfis Glasgow) og Fort William. Þetta er vinsælasta gönguleið í Skotlandi, hana ganga 70.000 manns árlega. Leiðin liggur í gegnum eitthvert fallegasta svæði landsins, meðfram vötnum og tignarlegum fjöllum, um skóga, dali og heiðar.  Gangan er í meðallagi erfið, ekkert príl og því við hæfi flestra. 

 

Dagur 1: Glasgow

Lent á Glasgow flugvelli kl. 13:30, ekið á fyrsta gististað. Frjáls eftirmiðdagur í Glasgow.Um kvöldið er móttaka (kvöldmatur) hjá fararstjóra, þar sem tækifæri gefst á að hrista gönguhópinn saman og  farið verður yfir dagskrá næstu daga.   

 

Dagur 2:  Milngavie - Drymen

Gönguleiðin liggur frá Milngavie, úthverfi Glasgow í gegnum skóglendi og út í fagurgræna sveitina. Þægilegur dagur í göngu og ágætis upphitun fyrir næstu daga. Ganga: 19 km - Hækkun: 90 m 

 

Dagur 3: Drymen - Rowardennan

Þennan dag er gengið í skóglendi og þaðan upp Conic Hills (360 m). Héðan er stórkostlegt útsýni yfir Loch Lomond vatnið og eyjarnar. Gengið gegnum Balmaha og meðfram Loch Lomond áleiðis til Rowardennan. Ganga: 22,5 km - Hækkun: 360 m 

 

Dagur 4: Rowardennan - Inverarnan

Þessi dagur er mjög fjölbreyttur í göngu og að hluta sein genginn. Mestur hluti af deginum er meðfram Loch Lomond vatninu og er þessi leið afskaplega falleg og skemmtileg. Ganga: 22,5 km - Hækkun: 240 m

 

Dagur 5: Inverarnan - Tyndrum

Gengið upp Glen Falloch dalinn, framhjá Falloch  fossum og upp hjá Crianlarich áleiðis til Tyndrum. Fallegt útsýni yfir sveitina. Ganga: 21 km - Hækkun: 300 m 

 

Dagur 6: Tyndrum - Kingshouse

Lengsti dagurinn framundan. Nánast öll leiðin er gengin á gömlum hermannavegum til Bridge of Orchy og upp á heiðina miklu Rannoc Moor, síðan niður til Kingshouse. Ganga: 30 km - Hækkun:330 m 

 

Dagur 7: Kingshouse - Kinlochleven

Hér er gengið upp hinn fræga Devil's Staircase ( Djöflastigann), hér er hæsti punktur á leiðinni eða 530 m. Þetta er ekki eins erfitt eins og nafnið segir til um heldur hinn besti stígur upp og á toppnum er fögur fjallasýn hvert sem litið er. Þaðan liggur leiðin til Kinlochleven sem er næst stærsti bærinn á leiðinni. Ganga: 14,5 km - Hækkun: 540 m 

 

Dagur 8: Kinlochleven - Fort William

Lokadagurinn runninn upp. Stemning í hópnum þegar hann gengur upp hlíðar Kinlocleven og áleiðis til Fort William. Munum ganga dali,skóga og við rætur Ben Nevis, hæsta fjalls Bretlandseyja (1.344 m). Ganga: 22,5 km - Hækkun: 300 m   

 

Dagur 9: Fort William  - Glasgow

Keyrt til Glasgow, ferðin tekur 3 tíma. Farið verður með farangur og fólk á gististaðinn og síðan er frjáls dagur + kvöld. Kjörið að heimsækja Edinborg (50 mín. með lest) eða spóka sig um í Glasgow.  Dagur 10: HeimferðEkið til Glasgow flugvallar kl. 12:00. Flogið heim til Íslands kl. 14:20.
 

Verð : 176.000

Innifalið í verði ferðar:

Flug, skattur ,akstur til og frá Glasgow / Manchester flugvelli, ferðir til og frá upphafsstað göngu, gisting og morgunverður alla dagana, móttaka (kvöldmatur) fyrsta kvöldið hjá fararstjóra (í West Highland Way ferðum), farangursflutningur á milli gististaða, hádegisnesti (samloka, ávöxtur og orkustangir) á gönguleið, Íslensk fararstjórn allan tímann.

 

Verð miðast við tvíbýli. Aukagjald fyrir eins manns herbergi.



Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Vildarklúbbur Icelandair

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Gengi gjaldmiðla

Fylgstu með gengisskráningu VISA greiðslukorta.

Ferðaávísun Mastercard

Nýttu þér ferðaávísun Mastercard þegar þú verslar hjá VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar