West Highland Way (seinni hluti)

West Highland Way (seinni hluti)

West Highland Way Seinni hluti - 70 km gengnir á 4 dögum
4. - 10. september
  

West Highland Way er 153 km gönguleið milli Milngavie (úthverfis Glasgow) og Fort William. Þetta er vinsælasta gönguleið í Skotlandi, hana ganga 50.000 manns árlega. Leiðin liggur í gegnum eitthvert fallegasta svæði landsins, meðfram vötnum og tignarlegum fjöllum, um skóga, dali og heiðar.  Gangan er í meðallagi erfið, ekkert príl og því við hæfi flestra.
 
 
 

Dagur 1: Glasgow

Lent á Glasgow flugvelli kl. 13:30, ekið á fyrsta gististað. Frjáls eftirmiðdagur í Glasgow.
Um kvöldið er móttaka (kvöldmatur) hjá fararstjóra, þar sem tækifæri gefst á að hrista gönguhópinn saman og  farið verður yfir dagskrá næstu daga.
 

Dagur 2: Tyndrum - Inveroran


Ekið til Tyndrum þar sem gangan hefst.  Nánast öll leiðin er gengin á gömlum hermannavegum til Bridge of Orchy og þaðan til Inveroran. Þægileg dagleið.
Ganga:  16 km - Hækkun: 200 m
 
 
 

Dagur 3: Inveroran - Kingshouse


Gengið yfir heiðna miklu Rannoc Moor, síðan niður til Kingshouse.
Ganga: 16 km - Hækkun: 300 m
 
 
 

Dagur 4: Kingshouse - Kinlochleven


Hér er gengið upp hinn fræga Devil's Staircase ( Djöflastigann), hér er hæsti punktur á leiðinni eða 530 m. Þetta er ekki eins erfitt eins og nafnið segir til um heldur hinn besti stígur upp og á toppnum er fögur fjallasýn hvert sem litið er. Þaðan liggur leiðin til Kinlochleven sem er næst stærsti bærinn á leiðinni.
Ganga: 14,5 km - Hækkun: 540 m
 
 
 

Dagur 5: Kinlochleven - Fort William


Lokadagurinn runninn upp. Stemning í hópnum þegar hann gengur upp hlíðar Kinlocleven og áleiðis til Fort William. Munum ganga dali,skóga og við rætur Ben Nevis, hæsta fjalls Bretlandseyja (1.344 m).
Ganga: 22,5 km - Hækkun: 300 m
 
 
 

Dagur 6: Fort William  - Glasgow


Keyrt til Glasgow, ferðin tekur 3 tíma. Farið verður með farangur og fólk á gististaðinn og síðan er frjáls dagur + kvöld. Kjörið að heimsækja Edinborg (50 mín. með lest) eða spóka sig um í Glasgow.
 

Dagur 7: Heimferð


Ekið til Glasgow flugvallar kl. 12:00. Flogið heim til Íslands kl. 14:20.

 

 

Verð: 148.450 og 15.000 vildarpunktar . Verð án vildarpunkta 158.450
Innifalið í verði ferðar:

Flug,skattur,akstur til og frá Glasgow / Manchester flugvelli, ferðir til og frá upphafsstað göngu, gisting og morgunverður alla dagana, móttaka (kvöldmatur) fyrsta kvöldið hjá fararstjóra (í West Highland Way ferðum), farangursflutningur á milli gististaða, hádegisnesti (samloka, ávöxtur og orkustangir) á gönguleið, Íslensk fararstjórn allan tímann.

 

Verð miðast við tvíbýli. Aukagjald fyrir eins manns herbergi.

 



Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Vildarklúbbur Icelandair

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Gengi gjaldmiðla

Fylgstu með gengisskráningu VISA greiðslukorta.

Ferðaávísun Mastercard

Nýttu þér ferðaávísun Mastercard þegar þú verslar hjá VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit


Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar

Inspired by Iceland