Beint í leiðarkerfi vefsins.
West Highland Way er 153 km gönguleið milli Milngavie (úthverfis Glasgow) og Fort William. Þetta er vinsælasta gönguleið í Skotlandi, hana ganga 50.000 manns árlega. Leiðin liggur í gegnum eitthvert fallegasta svæði landsins, meðfram vötnum og tignarlegum fjöllum, um skóga, dali og heiðar. Gangan er í meðallagi erfið, ekkert príl og því við hæfi flestra.
Lent á Glasgow flugvelli kl. 13:30, ekið á fyrsta gististað. Frjáls eftirmiðdagur í Glasgow.
Um kvöldið er móttaka (kvöldmatur) hjá fararstjóra, þar sem tækifæri gefst á að hrista gönguhópinn saman og farið verður yfir dagskrá næstu daga.
Ekið til Tyndrum þar sem gangan hefst. Nánast öll leiðin er gengin á gömlum hermannavegum til Bridge of Orchy og þaðan til Inveroran. Þægileg dagleið.
Ganga: 16 km - Hækkun: 200 m
Gengið yfir heiðna miklu Rannoc Moor, síðan niður til Kingshouse.
Ganga: 16 km - Hækkun: 300 m
Hér er gengið upp hinn fræga Devil's Staircase ( Djöflastigann), hér er hæsti punktur á leiðinni eða 530 m. Þetta er ekki eins erfitt eins og nafnið segir til um heldur hinn besti stígur upp og á toppnum er fögur fjallasýn hvert sem litið er. Þaðan liggur leiðin til Kinlochleven sem er næst stærsti bærinn á leiðinni.
Ganga: 14,5 km - Hækkun: 540 m
Lokadagurinn runninn upp. Stemning í hópnum þegar hann gengur upp hlíðar Kinlocleven og áleiðis til Fort William. Munum ganga dali,skóga og við rætur Ben Nevis, hæsta fjalls Bretlandseyja (1.344 m).
Ganga: 22,5 km - Hækkun: 300 m
Keyrt til Glasgow, ferðin tekur 3 tíma. Farið verður með farangur og fólk á gististaðinn og síðan er frjáls dagur + kvöld. Kjörið að heimsækja Edinborg (50 mín. með lest) eða spóka sig um í Glasgow.
Ekið til Glasgow flugvallar kl. 12:00. Flogið heim til Íslands kl. 14:20.
Verð: 148.450 og 15.000 vildarpunktar . Verð án vildarpunkta 158.450
Innifalið í verði ferðar:
Flug,skattur,akstur til og frá Glasgow / Manchester flugvelli, ferðir til og frá upphafsstað göngu, gisting og morgunverður alla dagana, móttaka (kvöldmatur) fyrsta kvöldið hjá fararstjóra (í West Highland Way ferðum), farangursflutningur á milli gististaða, hádegisnesti (samloka, ávöxtur og orkustangir) á gönguleið, Íslensk fararstjórn allan tímann.
Verð miðast við tvíbýli. Aukagjald fyrir eins manns herbergi.