Beint í leiðarkerfi vefsins.
Lent í Glasgow kl. 12:30. Þaðan er ekið til Fort William, sem er 10.000 manna bær við rætur Ben Nevis (hæsta fjall Bretlandseyja) í Hálöndum Skotlands. Gist í Fort William.
Gengið frá Fort William til Gairlochy. Þessi dagur er þægilegur í göngu. Gengið að Inverlochy kastala (byggður 1260) og hann skoðaður. Síðan gengið að Neptune's Staircase skipastiganum og áfram upp með Caledonian Canal til Gairlochy. Þaðan er keyrt (5 mín) til Spean Bridge þar sem gist verður.
Ganga: 18 km - Hækkun 25 m.
Gengið frá Gairlochy til South Laggan. Frekar létt ganga þennan daginn meðfram Loch Lochy vatninu.
Ganga: 18 km - Hækkun 150 m.
Gengið frá South Laggan til Fort Augustus. Gengið meðfram Loch Oich vatni í skóglendi áleiðis til Fort Augustus sem er afar fallegur bær við suðurenda Loch Ness. Gist í Fort Augustus.
Ganga: 18 km - Hækkun 50 m.
Gengið frá Fort Augustus til Invermoriston. Um morguninn gefst kostur á að fara í siglingu um Loch Ness áður en lagt er af stað í gönguna. Hér er gengið meðfram Loch Ness - á þessari dagleið má sjá einu eyjuna á vatninu (Cherry Island) sem er renydar örsmá. Gengið í skógi áleiðis til Invermoriston, sem er lítill bær við Loch Ness. Þar verður gist um nóttina.
Ganga 14 km - Hækkun 200 m.
Gengið frá Invermoriston til Drumnadrochit. Áfram er þrammað meðfram Loch Ness - á þessari dagleið er mjög gott útsýni yfir Great Glen. Áningarstaður þennan daginn er Drumnadrochit, sem er vinalegur bær og þar er hægt að kynna sér sögu Nessie (Loch Ness skrýmslisins). Örstutt frá bænum er hinn stórkostlegi Urquhart kastali sem upphaflega var byggður 1250.
Ganga: 24 km - Hækkun 400 m.
Gengið frá Drumnadrochit til Inverness. Í dag er lagt í lokaáfanga leiðarinnar. Þetta er lengsti dagur göngunnar en að sama skapi afskaplega skemmtilegur - hér er hæsti punktur leiðarinnar sem býður upp á stórkostlegt útsýni. Á lokakaflanum er gengið frá Loch Ness til Inverness, höfuðborgar Hálandanna. Gangan endar við Inverness kastala. Gist í Inverness.
Ganga: 31 km - Hækkun 390 m.
Um morguninn er ferðast með lest til Glasgow. Flug frá Glasgow kl. 14:20.
Verð : 162.000
Innifalið í verði ferðar:
Flug, skattar ,akstur til og frá Glasgow / Manchester flugvelli, ferðir til og frá upphafsstað göngu, gisting og morgunverður alla dagana, móttaka (kvöldmatur) fyrsta kvöldið hjá fararstjóra (í West Highland Way ferðum), farangursflutningur á milli gististaða, hádegisnesti (samloka, ávöxtur og orkustangir) á gönguleið, Íslensk fararstjórn allan tímann.
Verð miðast við tvíbýli. Aukagjald fyrir eins manns herbergi.