Beint í leiðarkerfi vefsins.
Lent á Manchester flugvelli kl. 11:35, síðan er lest tekin til Carlisle. Eftirmiðdagurinn frjáls, þar sem hægt er t.d. að skoða Carlisle kastalann og rölta um í fallegum miðbænum. Gist er í miðborg Carlisle.
Keyrt til Bowness-on-Solway á vesturströndinni, þar sem gangan hefst. Gengið frá Bowness til Carlisle (24 km). Þægileg ganga á flatlendi. Gist er í miðborg Carlisle.
Gengið frá Carlisle til Walton (19 km). Þægilegur dagur í göngu á flatlendi. Veggurinn er lítið sýnilegur á þessari dagleið. Frá Walton er stutt keyrsla til Brampton sem er 400 manna huggulegur smábær. Þar er gist um nóttina.
Keyrt til Birdsowald Fort. Þaðan er gengið til Twice Brewed (15 km) sem er okkar næsti gististaður. Veggurinn er sýnilegur á löngum köflum, skemmtileg dagleið um hóla og hæðir þar sem margt athyglisvert er að sjá og skoða. Vindolanda Fort er stórmerkilegt safn og virkisrústir rétt við gististaðinn.
Gengið frá Twice Brewed til Wall (20.5 km). Fyrri hluti dagleiðarinnar er um hóla og hæðir meðfram veggnum en seinni hlutinn meðfram vegum á engjum og túnum. Stoppað verður við Housesteads Fort og virkisrústirnar þar skoðaðar. Gist í smábænum Wall.
Gengið frá Wall til Heddon-on-the-Wall (22.5 km). Gengið á flatlendi um fagrar sveitir Englands. Ekkert sést af veggnum á þessari dagleið. Gist í nágrenni Heddon-on-the-Wall.
Gengið frá Heddon-on-the-Wall til Newcastle (17 km). Síðasti dagurinn er þægilegur í göngu - gengið niður hlíðarnar frá Heddon að Tyne ánni og gengið meðfram henni sem leið liggur til Newcastle. Gönguferðin endar í miðborginni og fagnað verður leiðarlokum við Millenium brúnna. Gist í miðborg Newcastle.
Um morguninn er farið til Glasgow flugvallar. Flogið frá Glasgow kl. 14:20.
Verð:
Innifalið í verði ferðar:
Flug,skattar ,akstur til og frá Glasgow / Manchester flugvelli, ferðir til og frá upphafsstað göngu, gisting og morgunverður alla dagana, móttaka (kvöldmatur) fyrsta kvöldið hjá fararstjóra (í West Highland Way ferðum), farangursflutningur á milli gististaða, hádegisnesti (samloka, ávöxtur og orkustangir) á gönguleið, Íslensk fararstjórn allan tímann.