Beint í leiðarkerfi vefsins.
Speyside Way er 104 km gönguleið milli Buckie á norðurströnd Skotlands og Aviemore í Cairngorms þjóðgarðinum í hjarta Hálandanna. Leiðin liggur um Spey dalinn og fylgir að mestu ánni Spey, sem er önnur lengst á í Skotlandi, fræg fyrir laxveiði og vískí.
Speyside er frægasta viskíhérað heimsins - á þessari leið eru fjölmargar viskíverksmiðjur og gefst kostur á að heimsækja einhverjar þeirra til að kynna sér framleiðsluferlið og e.t.v. smakka örlítið í leiðinni.
Gönguleiðin er að mestu á flatlendi á góðum göngustígum og hentar því öllum aldurshópum.
Lent á Glasgow flugvelli kl. 13:30, þaðan er ferðast sem leið liggur til Inverness, höfuðborgar hálandanna þar sem gist verður fyrstu nóttina.
Ekið til Buckie, sem er lítill sjávarbær við Moray fjörðinn á norðurstönd Skotlands. Þar hefst gangan. Fyrsti hluti dagleiðarinnar er í vestur meðfram sjávarsíðunni, þangað til við komum að árósum Spey. Þaðan er gengið meðfram ánni í suðurátt áleiðist til smábæjarins Fochabers, en þar munum við gista um nóttina.
Ganga: 16 km
Frá Fochabers er gengið til suðurs - gott útsýni á leiðinni yfir Spey dalinn. Endum dagleiðina í Aberlour, sem er frægur viskíbær í hjarta malt viskí hérðaðsins.
Þar verður gist næstu 2 nætur.
Ganga: 24 km
Í dag er gengið í friðsælum skógi og hlíðum innan um bóndabæi og viskíverksmiðjur til Ballindalloch. Þar verður komið við í Cragganmore viskíverksmiðjunni, áður en ekið verður til baka til Aberlour.
Ganga: 17 km
Ekið til Ballindalloch þar sem göngunni er haldið áfram. Hér er gengið um fagurgrænar sveitir og skóga á fjölbreyttum göngustígum um hóla og hæðir til Grantown-on-Spey sem er stærsti bærinn á þessari leið. í bænum er að finna úrval af verslunum, veitingahúsum og börum.
Ganga: 21 km
Síðast göngudagurinn runninn upp. Áfram er þrammað suður Speydalinn og lokaáfanginn er útivistabærinn Aviemore. Þar iðar allt af mannlífi allan ársins hring, enda mikið af göngu- og hjólreiðafólki þar á sumrin og skíðagörpum á veturna. Um kvöldið verður göngulokum fagnað á einhverjum af fjölmörgum börum bæjarins.
Ganga: 27 km
Um morguninn verður ferðast til Glasgow flugvallar. Flug til Íslands kl. 14:20.
Verð 162.000
Innifalið í verði ferðar:
Flug,skattar ,akstur til og frá Glasgow / Manchester flugvelli, ferðir til og frá upphafsstað göngu, gisting og morgunverður alla dagana, móttaka (kvöldmatur) fyrsta kvöldið hjá fararstjóra (í West Highland Way ferðum), farangursflutningur á milli gististaða, hádegisnesti (samloka, ávöxtur og orkustangir) á gönguleið, Íslensk fararstjórn allan tímann.
Verð miðast við tvíbýli. Aukagjald fyrir eins manns herbergi.