Gönguævintýri í Vestur Lýkíu

Gönguævintýri í Vestur Lýkíu

Gönguævintýri í Vestur-Lýkíu í Tyrklandi 
18.September - 29. September
Eitt fjall mínus

                            


Lýkíuleiðin, þekktasta gönguleið Tyrklands var fyrst opnuð hinum almenna göngumanni árið 2000, hún var samstundis valin ein af tíu bestu gönguleiðum í heimi af dagblaðinu Sunday Times. Lýkíuleiðin býður upp á einstaka náttúrufegurð, fornfrægar rústir, eilífan eld og sögu aldanna við hvert fótmál. Gönguferðir okkar á austur Lýkíuströndina hafa opnað augu margra fyrir töfrum Tyrklands. Þar er einstök náttúrfegurð og rústir og sögulegar minjar við hvert fótmál. Því bjóðum við einnig ferð til vestur Lýkíu. Gönguferðirnar  eru við flestra hæfi og hægt að stytta leiðina ef þess er óskað. Dvalið er á góður gistiheimil í Kaya Koy dalnum en hann kúrir milli vesturstrandar Lykíu og Taurusfjallanna. Utan í lítilli fjalshlíð standa yfirgefnar gráleitar byggingar draugaþorpsins Kaya Koy. Þegar lýðveldið Tyrkland var stofnað  árið 1923 varð að samkomulagi við Grikki um að allir grískir íbúar  Tyrklands snéru heim og sömuleiðis fluttu Tyrkir sem búið höfðu í Grikklandi aftur til Tyrkland.  Þess vegna voru grískir íbúar þopsins Levissi (Kaya Koy ) fluttir í hafnarbæinn Fethiye  og þaðan til Grikklands.  Í dag er  dalurinn friðaður og  bannað  er  að reisa þar háhýsi og ferðamannaþorp.  Því geta  náttúruunnendur  og göngufólk  notið  óspilltarar náttúru og gengið eftir  gömlum gönguleiðum  sem eru allt frá tímum Rómverja og Lýkía sem  fóru þarna um fyrir mörgum öldum.  Í þessari ferð  er leitast við að kanna  svæðið og töfra þess á eins fjölbreyttan hátt og unnt er. Auk spennandi gönguferða um hæðir og dali, ævintýralegar rústi og gil verður einnig siglt milli eyjanna 12 í Fethye flóanaum  og um undurfagra árósa Dalyanárinnar niður á hina friðuðu Itzuzu strönd og vaðið inn eftir ævintýralegu gili.  Jafnframt  er boðið upp á kennslu í tyrkneskri matargerð í garðinum hjá Ayse og Dean leiðsömunanni og sitt hvað fleira.

Dagur 1

 Reykjavík  Milas                                                                                                         Ekið frá Milas á einstaklega fallegt og notalegt gistiheimili  Misafir evi www.kayamisafirevi.com þar sem gist verður næstu 6 nætur. Akstur frá Milas flugvellinum 3- 4 tímar .

Dagur 2

 Tólf eyjar Fethiye flóans, bátsferð
Frá höfninni í  Fethiye  er haldið í ævintýralegt ferðalag milli 12 eyja sem leynast í Fetihye flóanum.  Það er hægt að synda á milli sumra eyjanna og í einstöku sjávarlóni sem er á einni þeirra. Við höfum eigin bát til umáða  allan daginn og  förum í land á eyjunum og skoðum okkur um. Einnig gefast mörg tækifæri til að taka sundsprett í volgum sjónum í hádeginu er  svo boðið upp á grillmat.


Dagur 3

OvacikFaralya                                                                                                                Gangan hefst þar sem hin 500 kílómetra langa Lýkíuleið byrjar hún liggur eftir endilangri Lýkíuströndinni, landsvæði þar sem Lýkíar bjuggu  á öldunum fyrir krist. Á leiðinni eru fjölbreyttar minjar eftir þessa íbúa meðal annars grafhvelfingar og steinkistur.  Þennan dag eru það þó ekki fornminjar sem fanga augað heldur  einstakt útsýni yfir ströndina fyrir neðan. Gangan hefst í ca 800 metra hæð á öxl ‘Baba Dag’ fjallsins sem er 1960m hátt og gengið er nokkur hundruð metra niðuð eftir fornum stíg, gamalli þjóðleið sem tengir þorpin  Kozagac  og  Kirme. Á leiðinni færist maður æ nær hinni ægifögru Öludenizströnd með snjóhvítann sand  og túrkisblátt haf. Við blasir einstakt lón, ‘Blá lónið’  umlukið hvítri sandræmu. Göngutími 4-5 tímar.  Auðvellt er að stytta gönguna fyrir þá sem þess óska.

Dagur 4  

Gönguferð um Kayakoy þorpið og  Kuleklaustur
Um morguninn er hægt að njóta sólarinnar á sundlaugarbarminum en upp úr hádeginu er haldið í notarlega gönguferð um Kayakoyþorpið  framhjá moskum, kirkjurústum og frjósömum ökrum og endað í  hinu yfirgefn í Kuleklaustri. Það er á afskekktum stað byggt utan í klettavegginn  með útsýni  út á sjóinn. Gegnið ca hækkun va 50 metrar.

Dagur 5

Kayakoy- Oludeniz
 Haldið frá gistiheimilinu  að gríska draugabænum  Kaya Koy, gengið milli yfirgefinna  húsanna í þorpinu og inn í hálfhrunin hús, kapellu og kirkju. Leiðinn liggur síðan hátt upp fyrir ströndina og brátt blasir við einstakt útsýni yfir Nikilásareyjuna og Öludenizströndin opnast frá nýju sjónarhorni. Þá liggur leiðin gegnum furuskóg niður á strönd  þar  sem hægt er að baða sig í kristaltærum sjónum. Seinni hluta dagsins er varið í útieldhúsinu hjá Dean og Ayse þar sem hún kennir hópnum að elda tyrkneskan mat. Ayse hefur menntum í ferðamálafræðum með áherslu á tyrkneska matargerð, hún er líka leiðsögumaður og sérfræðingur í fornum rústum. Ef með þarf verður hópnum skipt í tvennt, helmingurinn gengur þá fyrri hluta dagsins á meðan hinir eru í eldhúsinu og síðan öfugt. Um kvöldið  er sest að snæðingi undir trjánum í garðinum hjá  Deans og Ayse.   Gengið 3-4 tíma.

Dagur 6

Saklikentgilið og  Patara
 Í dag er haldið inn í Saklikentgilið (týnda gilið) til að skoða einstakar klettamyndanir sem vatnið hefur grafið í myndbreittan marmara. Gilið er 18 kílómetra langt með 300 metra háum klettaveggjum og sumstaðar svo þröngt að hægt era teygja sig veggja á milli. Til að skoða þann hluta Saklikent sem er opinn almenningi þarf að ganga eftir árfarveginu og vaða volga ána sem rennur fram mis straumhörð. Næst er haldið í gönguferð um fjölbreytt landslag meðfram einstakri vatnsleiðslu frá tímum Rómverja en segja má að hún sé verkfræðilegt undur. Gangan endar í fornborginni Patara sem verið er að grafa upp, hún er einstaklega vel varðveitt þar sem hún hvarf smá saman undir sand. Í borginni er meðal elsti viti sem þekktur er, sigurbogi, hringleikahús, rómversk böð, kirkjurústir og marg fleira spennandi. Patara liggur við 14 kílómetra langa sandströnd sem er friðuð bæði vegna rústanna og sæskjaldbakanna (caretta caretta) sem þar grafa egg sín. Ganga ca 4 tíma.

Dagur 7

Gengið til Fethye og markaður.
Við byrjum daginn á að ganga framhjá spennandi grafhvelfingum og steinkistum  og vatnsþró yfir dálitla og niður að höfninni í Fethye og síðan inn í borgina til að skoða markaðinn sem er alltaf á fimmtudögum.

Dagur 8

Bátsferð í árósum og rústirnar í Caunos
 Nú  pökkum við farangrinum okkar og yfirgefum Kaya Koy dalinn. Leiðin liggur í fljótabæinn  Dalyan  en þangað er rúmlega klukkutíma akstur. Þaðan er haldið með báti niður ána og inn í undurfagra árósa. Þetta svæði býður upp á   einstaka  náttúrufegurð og sérstætt dýralíf og gróður. Þegar sjávarborð hækkar flæðir sjór inn í ána og ber sjávarfiska  með sér upp í Koycegizvatnið. Áður en fiskarnir ná að forða sér  aftur til sjávar eru flestir veiddir og grillaðir við árbakkana. Báturinn okkar tekur land á Iztuzu ströndinni  þar sem það gefst tækifæri til að fá sér sundsprett. Ströndin er friðuð vega ‘caretta caretta’ sæskjaldbakanna sem þar verpa. Fyrir nokkrum árum stóð til að byggja ferðamanna þorp á ströndinni en vegan baráttu náttúruverndarsantaka tókst að stöðva þau áform. Á leiðinni til baka er staðnæmst í fornborginni  Caunos og rústirnar skoðaðar undir leiðsögn Ayse sem er sérfræðingur á þessu sviði. Gist á hóteli í Dalyan.

9. - 11. dagur

Frjálsir dagar í Caunos . Þá má nota til að heimsækja aftur hina undurfögru Izuzu strönd og taka stundsprett þar og njóta lífsins í  hótelgarðinum. Þá er hægt að láta dekra við sig í tyrknesku baði, fara  í tveggjatíma  siglingu með ströndinni til að skoða og gefa ‘Caretta caretta’ skjaldbökunum. (verð 2009,16 eu) Fara í ferð til Rhódos og ýmislegt fleira.

Dagur 12 

Ekið til Milas  (ca 3 tímar)  og þaðan flogið heim.
Erfiðleikastig  1 fjall: Léttur taktur
Allar göngur í ferðinni eru léttar og farið er eftir góðum eða nokkuð góðum stígum. Hækkun er ekki meira en 2-300 metrar og dagleiðir 2-5 tímar. Miðað er við að þátttakendur hafi gengið nokkuð reglulega í nágrenni sínu eða stundað einhverja líkamsþjálfun. Auk þess er góð heilsa mikilvæg og áhugi fyrir að skoða umhverfi sitt gangandi


Fararstjóri Steinunn Haraðrdóttir, leiðsögumenn Dean og Ayse Livsey

Verð 229.500 + 15.000 vildarpunktar á mann miðað við 2 saman í herbergi.

verð án vildarpunkta 239.500 

Innifalið: Flug, íslenskur fararstjóri og tyrkneskir leiðsögumenn. Kennsla í tyrkneskri matargerð. bátsferðir, aðgangur að Saklikentgilinu og  Patara, Caunos og  Kayakoy rústunum og allur matur 2-7 dag.  Síðustu 3 dagana 29 sept.-2 okt. gðeins og morgunmatur. Matur fyrsta daginn (brottferðadag)  ekki innifalinn.
Ath að ferðin getur tekið smávægilegum breytingum.

Lágmarksfjöldi í gönguferðirnar er 12. manns .


Valfrjáls þátttaka
 
Paragliding’ frá Babadag fjallinu  yfir Ölideniz og niður á strönd, 1969 metra fall. Toppur Babadag fjallsins( Pabbafjall) sem  rís í 1969 metra yfir hinni undurfögru Ölüdeniz strönd er af mörgum talinn besti staður í heimi fyrir flugtak í ‘paragliding’.  Fjallið er orðið einskonar Mekka fyrir þá sem stunda þetta sport og  árlega  svífa um 7000 manns af fjallinu í fylgd reynds flugmanna og aðrir 1000 fara einir  í slíkt ævintýraflug. Fjallið er auk þess á heimslista SÞ vega einstaks gróðurs og hinnar ægifögru Ölüdeniz strandar sem er við rætur þess. Á frjálsa deginum stendur til boða sú einstaka upplifun að svífa niður af toppi fjallsins með reyndum flugmanni og  lenda við sjávarmál með einstakt útsyni yfir Öludeniz ströndina  Fiðrildadalinn og Kayakoy eyðiþorpið  þann tæpa hálftíma sem líður áður en  viðkomandi hefur aftur fast land undir fótum. (verð 2009  150 lírur ca 75 evrur)

Á kajak umhverfis Nikusásareyju.                                                                           Á frjálsa deginum býðst tækifæri til að fara í hálfsdagskajakferð með Dean leiðsögumanni.  Auk þess að vera reyndur fjallamaður  þá rekur Dean ásamt Ayse konu sinni fyriritækið  Seven capes sem býður upp á lengri og styttri kajakferðir meðfram Lýkíuströndinni. Hann  er einn af fáum á svæðinu sem hefur kennararéttindi á kajak.  Lagt er upp frá hinni undurfögru Gemiler strönd og róið umhverfis Nikulásareyjuna en þar má sjá rústir forns þorp á ströndinni. Á leiðinni er staldrað við á lítlli eyðiströnd þar sem hægt er að taka sundsprett áður en haldið er til baka.      ( verð 2009 50 lýrur)
‘Caretta caretta safari.’                                                                                                    Í ferðinni er farið á strendurnar Patara og Itzuzu en báðar eru friðar vegan þess að sæskjaldbakan ‘caretta caretta’ verpir á þeim. Skel þessara dýra  getur vegið allt að 200 kíló þau dvelja allann sinn aldur í vatni  og kvenndýrin sem verpa fyrst um tvídugt koma til þess að sömu ströndinni  í 20- 30 ár. Þær koma bara í land að nóttu til einu sinni á ári á tímabilinu maí – september. Þær grafa stóra holu fyrir eggin og hylja þau með sandi. Eftir 45-60 daga undir heitri sólinni klekjast ungarnir út og finna leiðina til sjávar með hjálp tunglskis og endurkast sjávarins. Ef hiti sandsins er yfir 32 gr  verða ungarir kvennkyns annars karlkyns. Á þessum friðuðu ströndum er  bannaða að  vera ferli frá sólarlagi til sólarupprásar og engin ljós eða byggingar mega vera á ströndinni eða við hana. Ef tími vinnst til  síðasta daginn er hægt að fara í bátsferð út frá Itzuzu ströndinni til að mata þessar einstöku skjaldbökur með krabbadýrum. (Verð 2009 16 EU)
Tyrkneskt bað (hamam)                                                                                                 Rómverska og Byzantiska baðhefðin var þróuð nánar af Selcuc Tyrkjunum þar sem almenningsbaðið hafði mikilvægt hlutverk. Það var ekki einungsis staður þar sem Múhameðstrúar gátu  fullnægt kröfu trúarinnar um hreinlæti heldur einnig mikilvægur samkonmustaður. Ungar stúlku lögðu mikið upp úr að vera með   falleg handbróderuð handklæði og inniskó. Þarna gátu þær sýnt fallegan líkama sinn og  eldri konur fundið vænlegar eiginkonur fyrir syni sína .Karlmenn töluðu um viðskipti og pólitík en það  voru altaf sér kala og kvenna timar. ‘Sıcaklık’ er upphitað  rakt herbergi sem vanalega er með stórri hvelfingu,steinda glugga og stóran marmarapall í miðju herberginu.  Gestirnir liggja á pallinum og eru skrúbbaðir og sápuþvegnir eftir að hafa svitnað vel í heitu herberginu. Í ferðinni gefst tækifæri til að fara í tyrkneskt bað annað hvort í Fethye eða Dalyan. (verð 2009 16 evrur)



Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Vildarklúbbur Icelandair

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Gengi gjaldmiðla

Fylgstu með gengisskráningu VISA greiðslukorta.

Ferðaávísun Mastercard

Nýttu þér ferðaávísun Mastercard þegar þú verslar hjá VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit


Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar

Inspired by Iceland