Gönguævintýri í Vestur Lýkíu

Gönguævintýri í Vestur Lýkíu

Lýkíuleiðin, þekktasta gönguleið Tyrklands var fyrst opnuð hinum almenna göngumanni árið 2000, hún var samstundis valin ein af tíu bestu gönguleiðum í heimi af dagblaðinu Sunday Times. Lýkíuleiðin býður upp á einstaka náttúrufegurð, fornfrægar rústir, eilífan eld og sögu aldanna við hvert fótmál. Gönguferðirnar  eru við flestra hæfi og hægt að lengja og stytta leiðina ef þess er óskað. Dvalið er á góður gistiheimil íí bænum Ovacik rétt hjá  Kaya Koy dalnum  sem kúrir milli vesturstrandar Lykíu og Taurusfjallanna. Utan í lítilli fjalshlíð standa yfirgefnar gráleitar byggingar draugaþorpsins Kaya Koy. Þegar lýðveldið Tyrkland var stofnað  árið 1923 varð að samkomulagi við Grikki um að allir grískir íbúar  Tyrklands snéru heim og sömuleiðis fluttu Tyrkir sem búið höfðu í Grikklandi aftur til Tyrkland.  Þess vegna voru grískir íbúar þopsins Levissi (Kaya Koy ) fluttir í hafnarbæinn Fethiye  og þaðan til Grikklands.  Í dag er  dalurinn friðaður og  bannað  er  að reisa þar háhýsi og ferðamannaþorp.  Í þessari ferð  er leitast við að kanna  svæðið og töfra þess á eins fjölbreyttan hátt og unnt er. Auk spennandi gönguferða um hæðir og dali, ævintýralegar rústi og gil verður einnig siglt milli eyjanna 12 í Fethye flóanaum  og um undurfagra árósa Dalyanárinnar niður á hina friðuðu Itzuzu strönd og vaðið inn eftir ævintýralegu gili.  Jafnframt  er boðið upp á kennslu í tyrkneskri matargerð í garðinum hjá Ayse og Dean leiðsömunanni og sitt hvað fleira.



Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar