Gönguævintýri í Vestur Lýkíu

Gönguævintýri í Vestur Lýkíu

Gönguævintýri í Vestur-Lýkíu í Tyrklandi. 1fjall    

11. - 18. september       
  

Lýkíuleiðin, þekktasta gönguleið Tyrklands var fyrst opnuð hinum almenna göngumanni árið 2000, hún var samstundis valin ein af tíu bestu gönguleiðum í heimi af dagblaðinu Sunday Times. Lýkíuleiðin býður upp á einstaka náttúrufegurð, fornfrægar rústir, eilífan eld og sögu aldanna við hvert fótmál.

Gönguferðir okkar á austur Lýkíuströndina hafa opnað augu margra fyrir töfrum Tyrklands. Þar er einstök náttúrfegurð og rústir og sögulegar minjar við hvert fótmál. Því bjóðum við einnig ferð til vestur Lýkíu. Gönguferðirnar  eru við flestra hæfi og hægt að stytta leiðina ef þess er óskað.

Dvalið er á góðu gistiheimili í Kaya Koy dalnum en hann kúrir milli vesturstrandar Lykíu og Taurusfjallanna. Utan í lítilli fjallshlíð standa yfirgefnar gráleitar byggingar draugaþorpsins Kaya Koy.

Þegar lýðveldið Tyrkland var stofnað  árið 1923 varð að samkomulagi við Grikki um að allir grískir íbúar  Tyrklands snéru heim og sömuleiðis fluttu Tyrkir sem búið höfðu í Grikklandi aftur til Tyrkland.  Þess vegna voru grískir íbúar þorpsins Levissi (Kaya Koy ) fluttir í hafnarbæinn Fethiye  og þaðan til Grikklands. Í dag er dalurinn friðaður og bannað er að reisa þar háhýsi og ferðamannaþorp. Því geta náttúruunnendur og göngufólk notið óspilltarar náttúru og gengið eftir  gömlum gönguleiðum sem eru allt frá tímum Rómverja og Lýkía sem fóru þarna um fyrir mörgum öldum.

Í þessari ferð er leitast við að kanna svæðið og töfra þess á eins fjölbreyttan hátt og unnt er. Auk spennandi gönguferða um hæðir og dali, ævintýralegar rústir og gil verður einnig siglt milli eyjanna 12 í Fethye flóanum og um undurfagra árósa Dalyanárinnar niður á hina friðuðu Itzuzu strönd og vaðið inn eftir ævintýralegu gili. Jafnframt er boðið upp á kennslu í tyrkneskri matargerð í garðinum hjá Ayse og Dean leiðsögumanni og sitt hvað fleira.

Dagur 1

Reykjavik - Milas
Ekið frá Milas á einstaklega fallegt og notalegt gistiheimili  Misafir evi www.kayamisafirevi.com þar sem gist verður næstu 7 nætur. Akstur frá Milas flugvellinum 3- 4 tímar .

Dagur 2

Tólf eyjar Fethiye flóans, bátsferð
Frá höfninni í  Fethiye  er haldið í ævintýralegt ferðalag milli 12 eyja sem leynast í Fetihye flóanum.  Það er hægt að synda á milli sumra eyjanna og í einstöku sjávarlóni sem er á einni þeirra. Við höfum eigin bát til umáða  allan daginn og  förum í land á eyjunum og skoðum okkur um. Einnig gefast mörg tækifæri til að taka sundsprett í volgum sjónum, í hádeginu er  svo boðið upp á grillmat.

Dagur 3

Ovacik - Faralya 
Gangan hefst þar sem hin 500 kílómetra langa Lýkíuleið byrjar hún liggur eftir endilangri Lýkíuströndinni, landsvæði þar sem Lýkíar bjuggu  á öldunum fyrir krist. Á leiðinni eru fjölbreyttar minjar eftir þessa íbúa meðal annars grafhvelfingar og steinkistur.  Þennan dag eru það þó ekki fornminjar sem fanga augað heldur  einstakt útsýni yfir ströndina fyrir neðan. Gangan hefst í ca 800 metra hæð á öxl ‘Baba Dag’ fjallsins sem er 1960m hátt og gengið er nokkur hundruð metra niður eftir fornum stíg, gamalli þjóðleið sem tengir þorpin  Kozagac  og  Kirme. Á leiðinni færist maður æ nær hinni ægifögru Öludenizströnd með snjóhvítann sand  og túrkisblátt haf. Við blasir einstakt lón, ‘Blá lónið’  umlukið hvítri sandræmu. Göngutími 4-5 tímar.  Auðvelt er að stytta gönguna fyrir þá sem þess óska.

Dagur 4  

Kayakoy - Oludeniz 
Haldið frá gistiheimilinu  að gríska draugabænum  Kayakoy og gengið milli yfirgefinna  húsanna í þorpinu. Leiðin liggur síðan hátt upp fyrir ströndina og brátt blasir við einstakt útsýni yfir Nikilásareyjuna. Leiðin liggur síðan niður gegnum furuskóg að fallegu sjávarlóni Oludeniz . Þar gefst tækifæri til baða sig í kristaltærum sjónum áður en haldið er heim aftur. Gengið 3-4 tíma.  Síðdegis er haldið heim til Deans og Ayse. Í útieldhúsinu þeirra kennir hún hópnum að elda Tyrkneskan mat. Síðan er sest að snæðingi undir trjánum  í blómum skrýddum garðinum. Þennan dag verður hópnum skipt í tvennt.  Helmingurinn fer í göngu um morgunin en hinn eftir hádegi þar sem ekki er hægt að taka fleiri en 12 í einu í matreiðslunámið.  Kvöldverður verður síðan sameiginlegur.

Dagur 5

Saklikentgilið og Patara
Í dag er haldið inn í Saklikentgilið (týnda gilið) til að skoða einstakar klettamyndanir sem vatnið hefur grafið í myndbreittan marmara. Gilið er 18 kílómetra langt með 300 metra háum klettaveggjum og sumstaðar svo þröngt að hægt er að teygja sig veggja á milli. Til að skoða þann hluta Saklikent sem er opinn almenningi þarf að ganga eftir árfarveginu og vaða volga ána sem rennur fram mis straumhörð. Næst er haldið í gönguferð um fjölbreytt landslag meðfram einstakri vatnsleiðslu frá tímum Rómverja en segja má að hún sé verkfræðilegt undur. Gangan endar í fornborginni Patara sem verið er að grafa upp, hún er einstaklega vel varðveitt þar sem hún hvarf smá saman undir sand. Í borginni er  elsti viti sem þekktur er, sigurbogi, hringleikahús, rómversk böð, kirkjurústir og marg fleira spennandi. Patara liggur við 14 kílómetra langa sandströnd sem er friðuð bæði vegna rústanna og sæskjaldbakanna (caretta caretta) sem þar grafa egg sín. Ganga ca 4 tímar

Dagur 6

Kajak - markaður í Fethye, Kule klaustur
Um morguninn er haldið í ævintýralega kajakferð umhverfis Nikusásareyju með Dean leiðsögumanni. Hann  er einn af fáum á svæðinu sem hefur kennararéttindi á kajak. Auk þess að vera reyndur fjallamaður  þá rekur Dean ásamt Ayse konu sinni fyriritækið  Seven capes sem býður upp á lengri og styttri kajakferðir meðfram Lýkíuströndinni. Lagt er upp frá hinni undurfögru Gemilerströnd og róið umhverfis Nikulásareyjuna en þar má sjá rústir forns þorp á ströndinni. Á leiðinni er staldrað við á lítlli eyðiströnd þar sem hægt er að taka sundsprett áður en haldið er til baka.

Seinni hluta dagsins er hægt að fara í stutta og skemmtilega gönguferð í Kule klaustur slaka á og njóta sólarinnar, fara í tyrkneskt bað, versla á markaðnum í Fethiye , fara í ferð á fjallahjólum, eða í reiðtúr, stunda köfum eða henda sér fram af fjallsbrún í fallhlíf ‘paragliding’(sjá nánar hér síðar)

Dagur 7 

Bátsferð í árósum og rústirnar í Caunos
Nú pökkum við farangrinum okkar og yfirgefum Kaya Koy dalinn. Leiðin liggur í fljótabæinn  Dalyan  en þangað er rúmlega klukkutíma akstur. Þaðan er haldið með báti niður ána og inn í undurfagra árósa. Þetta svæði býður upp á   einstaka náttúrufegurð og sérstætt dýralíf og gróður. Þegar sjávarborð hækkar flæðir sjór inn í ána og ber sjávarfiska  með sér upp í Koycegizvatnið. Áður en fiskarnir ná að forða sér  aftur til sjávar eru flestir veiddir og grillaðir við árbakkana. Báturinn okkar tekur land á Iztuzu ströndinni. þar sem það gefst tækifæri til að fá sér sundsprett. Ströndin er friðuð vegna ‘caretta caretta’ sæskjaldbakanna sem þar verpa. Fyrir nokkrum árum stóð til að byggja ferðamanna þorp á ströndinni en vegna baráttu náttúruverndarsamtaka tókst að stöðva þau áform. Á leiðinni til baka er staðnæmst í fornborginni  Caunos og rústirnar skoðaðar undir leiðsögn Ayse sem er sérfræðingur á þessu sviði. Gist á hóteli í Dalyan.

Dagur 8

Heimferð.

 



Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Vildarklúbbur Icelandair

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Gengi gjaldmiðla

Fylgstu með gengisskráningu VISA greiðslukorta.

Ferðaávísun Mastercard

Nýttu þér ferðaávísun Mastercard þegar þú verslar hjá VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar