Beint í leiðarkerfi vefsins.
Á þessu námskeiði er lögð sérstök áhersla á að gefa leikmönnum góða innsýn fótboltann í meistaraflokkum. Lágmarksfjöldi á námskeiðinu eru 18 strákar hámarksfjöldi er 20 piltar. Er þetta námskeið í samvinnu með Ajax,Anderleght og Club Brugge. Og verður í háum gæðaflokki. Hámarks fjöldi pilta á þjálfara er 8. Einnig topp markmannsþjálfun í boði.
Allir knattspyrnusnillingarnir sem koma í skólann 2012, hvort sem það er í apríl eða ágúst, munu fara í hraða- og snerpuprófun sem belgíski úrvalsdeildarklúbburinn Club Brugge mun standa fyrir. Einnig munu þeir sem koma í apríl verða mældir í bak og fyrir, fundnir veikleikar og þeim ráðlagt hvaða æfingar henda best til þess að bæta sig.
Búið er að ná samningum við Tomas Vlaminck. Tomas er yfirþjálfari tækniæfinga hjá Club Brugge og hefur starfað sem slíkur undafarin misseri. Tomas mun mæta í apríl og ágúst. Auk hans koma þjálfarar frá Ajax og Lokeren á bæði námskeiðin, líkt og síðastliðin ár.
Verðið er 189.500 + 15.000 vildarpunkta
Verð án vildarpunkta er 199.500
Það er ekki hægt að nota vildarpunkta nema ferð sé bókuð á netinu.