Beint í leiðarkerfi vefsins.
Gran Canaria er eldfjallaeyja sem rís eins og stórt fjall upp úr sjónum, hæsti toppurinn Pico de las Nieves er 1.950 metrar yfir sjávarmáli. Það er oft sagt að eyjan sé eins og dvergheimsálfa vegna fjölbreytts landslags og náttúru. Gran Canaria hefur verið mikilvægur áfangastaður íslenskra ferðalanga í áraraðir en fæstir þeirra leggja land undir fót og feta í fótspor bænda og frumbyggja sem lögðu leiðir yfir hálendið. Þar er úfið fjalllendi, sjaldgæfur gróður, ýmsar minjar um líf og lifnaðarhætti íbúanna fyrr á öldum og fjölmargar fornar leiðir. Göngu-Hrólfur býður nú upp á spennandi gönguferð um fjallastíga þessarar eyjar sem er að ýmsu leyti lík Íslandi en að öðru leyti gjörólík svo sem loftslagið, hitastigið, gróðurinn og menningin.
Á fimm fjölbreyttum göngudögum gefst tækifæri til að upplifa og skoða nokkra af fallegustu stöðum eyjarinnar. Suma dagana er gengið eftir konunglegu gönguleiðunum (camino real) sem voru lagðar af frumbyggjunum um undurfagurt landslag, spennandi gil, furuskóga, blómstrandi fjallshlíðar og framhjá mörgum sérstæðum hellabyggðum. Það verður meðal annars gengið á Snjótindinn ‘Pico de las Nieves’ og að klettadranginum ‘Rocque Nublo’, Skýjaklettinum, hann gnæfir upp úr fjalllendinu á miðri eyjunni og setur mikinn svip á umhverfið.
Gist er á hóteli á Mas Palomas ströndinni og ekið þaðan upp í fjöllin.
Gönguferðirnar taka á bilinu 4-5 tíma, gengið er um 12-16 kílómetra á dag og mesta hækkun er 700 metrar.
Gangan hefst í „Santa Lucia“ sem er fallegt lítið fjallaþorp með hvítkölkuðum húsum og pálmalundum. Í nágrenninu er mikill bergveggur „Fortaleza Grande“ sem er í laginu eins og virki. Sagan segir að Guanchar sem bjuggu á eyjunni þegar Spánverjar lögðu hana undir sig hafi neitað að taka kristna trú árið 1483 og kastað sér fram af þessum kletti. Fljótlega er farið í gegnum smáþorpið Ingenio og að hinu rómanstíska gili Barranco de Tirajanas. Þá er haldið eftir pálmum skrýddum stíg að Sorrueda vatninu og síðan til Ansite. Á forsögulegum tíma voru hinir látnu lagðir til hinstu hvílu í óaðgengilegum hellum sem þarna eru. Síðan er gengið til baka til Santa Lucia. Göngutími 4.5 tímar, gengið 12 km, hækkun/lækkun 300m.
Þetta er mjög spennandi ganga á norðvestur hluta eyjarinnar. Hún hefst rétt vestan við „Artenara.“ Eftir að farið hefur verið í gegnum smáþorpið La Coruña sem státar af tveimur mjög stórum hellahúsum er haldið áfram til „Cruz de las Mentiras“ (Lygakrossinn) – Þetta er mjög sérstakur staður með útsýni yfir vatnið Los Perez og hellahúsin í Lugarejos. Á leiðinni til Pinar de Tamadaba blasir við útsýni til norðvestur strandar eyjarinnar. Að lokum er farið eftir einstaklega fallegum stíg með frábæru útsýni yfir til Teide, Roque Nublo og Roque Bentayga. Á bakaleiðinni er farið gegnum Tamadaba skóginn, þar vex Kanaríeyjafura sem einkennist af mjög löngum og fínlegum nálum. Gengið um 5 tíma, 13 kílómetra hækkun/lækkun 700m
Í dag er haldið upp að miðju eyjarinnar og sikk-sakkað eftir mjóum stíg framhjá litlum þorpum, ekrum, hásléttum, djúpum giljum og sérkennilegum klettum. Gangan hefst við „Pico de las Nieves“, Snjótindinn, hæsta fjall eyjarinnar og við blasa standbergin „Roque Nublo“ (1.813 m), Skýjakletturinn og „Roque Bentayga“ (1.412 m). Það er yfirleitt svalara og þokusamara hér uppi en niðri við ströndina svo hæstu tindarnir eru stundum huldir skýjum. Í góðu veðri er frábært útsýni yfir einstakt landslagið og yfir til Tenerife. Leiðin liggur til „Cruz de Tejeda“ sem er landfræðileg miðja Gran Canaria meðal annars eftir hæstu brúnum Tejeda gígsins sem er mjög stór. Að lokum er farið eftir fallegum stíg að þorpinu „Artenara“ sem er í 1.270 meta hæð og er bæði hæsta og elsta þorp eyjarinnar. Þetta óvanalega þorp eins og hangir utan í klettunum og mörg húsanna eru byggð inn í hella frá forsögulegum tíma. Þaðan er frábært útsýni til Teide. Göngutími 5 tímar, lengd u.þ.b. 16 km, hækkun 200 m lækkun 850 m
Í dag er gengið umhverfis „Chiravatnið“ sem er stærsta stífla eða manngerða vatn á eyjunni. Gangan hefst í litlu þorpi „Cercado de Araña“, þaðan er farið í gegnum einstaklega fallegt gil „Barranco los Ahogados“ og haldið til „Cruz Grande“ eftir fallegum stíg sem býður upp á frábært útsýni til allra átta. Við blasir „Ciravatnið“ og dalirnir umhverfis. Síðan er haldið niður að stíflunni og þaðan aftur þangað sem gangan hófst. Göngutími um 4 -5 tímar, gengið um 15 kílómetra, hækkun og lækkun 300 m.
Eftir skemmtilega göngu um hinn fallega dal „Lomo de Aserrador“ er komið að hinum sérstæða klettadrangi „Roque Nublo“ (1.743 m), efst á honum er 80 metra hár bergstandur eða basalt fingur sem bendir beint til himins og var talinn heilagur hjá frumbyggjunum. Skammt frá er annar og minni bergstandur, Munkurinn „El Freire“ en saman mynda þeir sterka og sérstæða heild. Stígurinn sem er forn pílagrímaleið til Santíago „Camino Santiago“ liggur síðan meðfram „Los Hornos“ vatninu og gegnum furuskóginn „Llanos de la Pez“ þar til komið er að „Cruz Grande“ þar sem göngunni lýkur. Göngutími 5 tímar, lengd um 15 km, hækkun 440 m lækkun 590 m.
Verð á mann í tvíbýli : 239.500 + 15.000 punktar
Verð án punkta 249.500
Eingöngu er hægt að nota punkta ef ferð er bókuð á netinu.
Innifalið: allur flutningur, leiðsögn, gisting og morgun- og kvöldmatur göngudagana.
Ekki innifalið: drykkir með mat,hádegisverður né matur ferðadagana.
Fararstjórar: Steinunn Harðardóttir og innlendur leiðsögumaður
Verð: Ath. Það getur þurft að breyta dagskránni vegna óhagstæðs veðurs eða af öðrum óviðráðanlegum ástæðum.

Mjög vel staðsett hótel rétt við Kashba með einstaklega skemmtilegum garði . Yfirbragð garðsins er ævintýralegt með mörgum háum pálmatrjám. Herbergin eru rúmgóð og björt.