Opnunartími skrifstofu: mán-fös 9-17
Beint í leiðarkerfi vefsins.
Reykjavík – Faro – Monchique
Komið til Faro og ekið til Monchique þar sem dvalið verður næstu daga á Hotel Monchique.
Monchique er fallegur bær sem kúrir á milli tveggja hæstu fjalla Algarve, Picota (774 m) og Foia (902m) sem eru í hinu skógi vaxna fjalllendi Sierra de Monchique þar sem eucalyptus-, kastaníu-, furu- og korktré eru mest áberandi.
Bærinn með sínum þröngu steinlögðu strætum hefur í aldaraðir verið miðstöð sveitahéraðanna í kring.
Frægasta framleiðsla svæðisins er medronho alkohól sem framleitt er úr berjum jarðarberjatrjáa (arbutus unoedo).
Skammt frá er heilsubærinn Caldas de Monchique. Þar eru heitar lindir sem hafa verið nýttar til heilsubótar frá tímum Rómverja.
Monchique – Picota
Dagurinn hefst með yoga og hugleiðslu í garði hótelsins, síðan er haldið af stað upp á Picota (774 m) annað af tveimur fjöllum sem innramma bæinn Monchique.
Þetta er einstaklega falleg gönguleið um skuggsælan stíg sem er svolítið brattur á köflum. Á toppnum er fallegur gróður og frábært útsýni til Foia, hæsta fjalls héraðsins. Þá sést vel til klaustursins sem gengið verður framhjá næsta dag og einnig niður á ströndina til strandbæjarins Lagos.
Á leið heim veljum við fallegan og friðsælan stað fyrir yoga.
Foia & klaustrið í Monchique
Eftir morgunyoga er gengið á Foia (902m), hæsta fjall Algarve. Af toppnum er frábært útsýni til allra átta, til suðurs sést til Sagres og alla leið til Heimsenda, Cape St Vincent vestasta odda meginlands Evrópu (Látrabjarg er sá vestasti) og til norðurs blasir fjallgarðurinn sunnan Lisabon við.
Á toppnum er kaffihús og gestastofa og hægt er að fá sér hressingu áður en haldið er til baka. Á leiðinni niður af fjallinu er komið við í frægum rústum klausturs í útjaðri Monchique.
Tilvalinn staður til þess að slaka á og njóta augnabliksins með yoga.
Síðdegis er haldið til næsta náttstaðar, Loule, í gegnum bæinn Silves fyrrum höfuðborgar mára í héraðinu Algarve.
Í nágrenninu er Alte lítið og sætt fjallaþorp með hefðbundinni gamalli kirkju, nokkrum búðum og kaffihúsi.
Kvöldmatur og gisting í Loule.
.
Querença & Fonte Benemola
Loulé er frægur fyrir sígaunamarkaðinn sem þar er haldinn á hverjum laugardegi, nokkuð sem ekki má missa af. Við notum því tækifærið og heimsækjum markaðnum áður en bærinn er yfirgefinn. Dagurinn hefst þó að vanda með yoga í morgunhlýjunni og eftir að hafa skoðað nægju sína af spennandi varningi er haldið í áhugaverða gönguferð að Querença sem er rólegur lítill bær með afar sérstæðri og fallegri kirkju.
Þar er tilvalið að staldra við, njóta útsýnis til hæðanna í suðri og e.t.v. smakka á möndluköku sem er hnossgæti þorpsins.
Á leið til baka er gengið um friðlandið Fonte Benemola sem er þekkt fyrir fegurð og sjaldséðar tegundir bæði plantna og dýra.
Við fylgjum friðsælli ánni, hlustum eftir söng næturgalans og öndum að okkur ilmi hinna ýmissu kryddjurta s.s. rósmarín og tymian.
Á leiðinni finnum við okkur skugga undir olívutré eða möndlutré og tökum yogastund.
Paragil & Ribiera Algibre
Morgunyoga og rólegheit, síðan fornum leiðum fylgt frá smáþorpinu Ribiera Algibre gegnum lundi ólívutrjáa og ævafornra karobtrjáa.
Útsýnið yfir héraðið er einstaklega fagurt, friðsælar löngu yfirgefnar sveitir sem náttúran hefur yfirtekið og á leið okkar kúrir kyrrlátt þorp, þögul minning þess sem var.
Friðsæll staður fyrir yoga.
Quinta do Lago
Eftir yoga og morgunverð er haldið eftir ströndinni til Praia do Faro og til baka um Ria Formosa friðlandið.
Á göngunni má upplifa miklar andstæður; fyrst lúxus villur og golfvelli í Quinta do Lago og síðan er gengið um fallegar strendur að fiskimannaþorpinu Praia do Faro. Leiðin til baka liggur um fuglafriðlandið Ria Formosa þar sem m.a. má sjá flamingóa og fleiri sjaldséða fugla en friðlandið er heimsótt árlega af um þrjátíu þúsund fuglum fjölmargra tegunda.
Yoga í fuglasöng:-)
Loule eða Albufeira
Frjáls dagur, hádegis- og kvöldverður á eigin vegum.
Tilvalið að nota daginn til þess að fara á markað því auk laugardagsmarkaðsins er markaður með arabísku ívafi í Lule alla morgna nema sunnudaga. þá er líka hægt að heimsækja einhvern af fjölmörgum bæjum og þorpum sem kúra um allt í fjöllunum og við ströndina eða bara slaka á við sundlaugina.
Ekið til Faro og flogið heim.
Verð á mann í tvíbýli 224.500
Innifalið: Flug skattar, gisting, fullt fæði, ferðir og íslensk fararstjórn
*Ekki er hægt að nota vildarpunkta í þessa ferð