Beint í leiðarkerfi vefsins.
Knattspyrnuskóli Kristjáns Bernburg hefur notið mikilla vinsælda á meðal ungra knattspyrnuiðkenda á Íslandi, enda fá þeir smjörþefinn af því hvernig það er að æfa við aðstæður eins og þær gerast allra bestar. Skólinn er staðsettur í Lokeren í Belgíu.
Allir knattspyrnusnillingarnir sem koma í skólann 2012, hvort sem það er í apríl eða ágúst, munu fara í hraða- og snerpuprófun sem belgíski úrvalsdeildarklúbburinn Club Brugge mun standa fyrir. Einnig munu þeir sem koma í apríl verða mældir í bak og fyrir, fundnir veikleikar og þeim ráðlagt hvaða æfingar henda best til þess að bæta sig.
Búið er að ná samningum við Tomas Vlaminck. Tomas er yfirþjálfari tækniæfinga hjá Club Brugge og hefur starfað sem slíkur undafarin misseri. Tomas mun mæta í apríl og ágúst. Auk hans koma þjálfarar frá Ajax og Lokeren á bæði námskeiðin, líkt og síðastliðin ár.
Flogið er til Brussel (3 klst) og þaðan haldið með rútu til Lokeren .Fararstjóri fer með hópinn til Brussel og þar tekur Kristján Bernburg og hans lið við hópnum, áður en haldið er af stað til Lokeren.
FI 558 30JUL KEFBRU 1620 2135
FI 559 06AUG BRUKEF 2230 2355
Gist er á glænýju íþrótta hóteli í Puyenbroeck. Á hótelinu, sem er rétt fyrir utan Lokeren, er mjög góð aðstaða fyrir íþróttahópa, m.a. er sundlaug. Drengirnir eru 2-3 saman í herbergi.
Þjálfarar skólans eru í hópi þeirra fremstu í unglingaþjálfun í Belgíu og eru allar aðstæður fyrsta flokks. Sumarið 2012 verður Henny De Regt, þjálfari frá Ajax í Hollandi, sérstakur gestaþjálfari í knattspyrnuskólanum. Er þetta í þriðja skipti sem ungum knattspyrnuiðkendum frá Íslandi gefst tækifæri á að æfa undir stjórn þrjálfara frá félagi sem býr yfir eins mikilli hefð í unglingastarfi og Ajax.
Rik Van Cauteren er yfirþjálfari skólans. Hann er fyrrverandi atvinnumaður með Lokeren og þjálfar nú unglingalið félagsins. Hann hefur æðstu gráðu Konunglega þjálfaraskólans í Belgíu.
Honum til halds og trausts eru nokkrir aðstoðarþjálfarar, m.a. sérstakur markmannsþjálfari. Markmansþjálfari er Paul Van Hemerlrijke hann er einnig með æðstu gráðu Konunglega þjálfaraskólans. Þá verður Henny De Regt, þjálfari hjá Ajax í Hollandi, sérstakur gestaþjálfari í knattspyrnuskólanum sumarið 2012 og er þetta þriðja árið sem hann kemur .
Angelo Nijskens er aðstoðarþjálfari. Hann er með æðstu gráðu Konunglega þjálfaraskólans auk þess sem hann hefur UEFA Pro Licence gráðu, sem er æðsta þjálfaragráða sem fæst í Evrópu og gerir hann gjaldgengan til að þjálfa öll félagslið í Evrópu. Hann er fyrrverandi atvinumaður með Lokeren, Charleroi, Lauk og lék mörg ár í Þýskalandi.
Sjúkraþjálfari skólans er Stany Rogiers, hefur hann séð um meiðsli leikmanna Lokeren í 28 ár en nú er hann eingöngu með belgíska landsliðið og leikmenn skólans.
Æft er á mjög góðum grasvöllum og besta fáanlega gervigrasi sem völ er á. Æft er tvisvar á dag og er mikil áhersla lögð á að innleiða aga og einbeitingu hjá drengjunum. Van Cauteren hefur mikla reynslu sem atvinnumaður og bera vinnubrögð hans þess merki. Æfingarnar eru mjög markvissar en um leið á hann mjög auvelt með að ná til ungra knattspyrnumanna með skemmtilegum aðferðum sem viðhalda léttleika í hópnum.
Ýmislegt er gert sér til dundurs á milli æfinga. M.a er farið í keilu (pdf), skemmtigarð í Valibi og farið í go-kart (pdf). Auk þess er boðið upp á fræðslu á kvöldin um ýmislegt sem hjálpar ungum knattspyrnumönnum að bæta sig. Verlaun eru fyrir besta herbergið, besta leikmanninn yngri og eldri.
Nánari upplýsingar
Til að panta ferð velurðu áfangastaðinn KB skólinn í bókunarvélinni hér til hægri.
Verð án punkta 185.000
ATH. Aðeins er hægt að nota punkta ef ferðin er bókuð á netinu,
Innifalið