Feneyjar til Flórens

Feneyjar til Flórens

Draumaferð hjólreiðamannsins!

23. - 30. júní

Feneyjar og Flórens, tvær  frægustu og fegurstu borgir Ítalíu og jafnvel Evrópu allrar, eru við upphaf og endi þessarar hjólaferðar. Hjólaleiðin liggur þó um svæði sem að mestu eru óuppgötvuð af ferðamönnum og má meðal annars nefna að við hjólreiðamanninum blasa; kivi-, melónu- og peruakrar að ógleymdum litlum og stórum vínekrum. Sólblómin hneigja risastórar krónur sínar og fuglar af ýmsum framandi tegundum syngja. Veiðimenn sitja með stangir sínar við ár og kanala, bíða eftir að bíti á og brosa og vinka til ferðamanna.
Gististaðirnir eru í fögrum borgum eins og Ferrara og Ravenna. Þar er óhjákvæmilegt að setjast niður á kaffihúsi og fá sér kaffi að hætti innfæddra, hlusta á dæmigerðar umræður um fótbolta og stjórnmál sem eru eimmitt uppáhaldsumræðuefni Ítala.

Hjólaleiðin er á flatlendi Pódalsins alla leið. Hjólað er á sveitavegum og stígum, sem nær allir eru malbiikaðir og liggja meðfram ám, kanaölum og stórfljótum eins og  Pófljótinu. Örsjaldan þarf  að fara stuttar vegalengdir á hraðbrautum til að tengja saman hjólaleiðir. Þetta er hjólaleið sem öllum sem á annað borð eru vanir að hjóla er fær.

 

 

Ferðaáætlun

Dagur 1

Brottför frá Keflavík klukkan 07:30 og lent í Milano  klukkan 13:20. Þar býður Langferðabifreið hópsins og flytur okkur  til Mestre sem er ,,svefnbær“ Feneyjar. Þar  fáum við hjólin og ýmsar upplýsingar.

Dagur 2

 

estre/Feneyjar – Chioggar/Sottomarina u.þ.b. 35 km. 
Við byrjum á að hjóla yfir sex kílómetra langa Frelsisbrúna til Feneyja og tökum þaðan ferju til eyjarinnar Lido. Við hjólum eftir endilangri eynni og tökum aðra ferju yfir á Palestrina sem líka er eyja og þaðan enn eina ferjuna til Chioggia. Á hjólaleiðinni allri njótum við útsýnis yfir hafið, þar sem bæði litlir bátar og risastór skemmtiferðaskip sigla. Chioggia er róleg lítil borg sem oft er kölluð ,,Litla Feneyjar“ enda eru þar brýr og sýki eins og í Feneyjum.

 

Dagur 3

 


Chioggia/Sottomarina – Rovigo u.þ.b.  65 km
Í dag er hjólað eftir fáförnum vegum og stígum meðfram ánni Adigi. Við fylgjum ánni um akra og engi og gegnum lítil og fögur þorp til borgarinnar Rovigo. Rovigo er dæmigerð ítölsk borg með mörgum torgum og kaffihúsum.

 


Dagur 4

 


Rovigo – Ferrara u.þ.b. 45 km
Í dag er hjólað meðfram hinu risavaxna fljóti Pó sem hlykkjast eftir frjósamri sléttunni. Við hjólum á fljótsbakkanum til borgarinnar Ferrara sem er fræg fyrir hjólamenningu sína en þar hjóla bókstaflega allir, fátækir sem ríkir og aldnir sem ungir. Í Ferrara er auðvitað margt fleira að sjá en hjólandi fólk, þar er frægur vatnaskastali, dómkirkja og fallegur miðbær.

 


Dagur 5.

 


Ferrara – Ravenna u.þ.b. 50 km. og lest
Við hefjum þennan dag á lestarferð til Alfonsine og hjólum þaðan um þjóðgarðinn ,,Po Delta“ en þar er einstakt jurta- og fuglalíf. Eftir Po Delta hjólum við meðfram Adriahafinu til borgarinnar Ravenna sem á sér aldagamla sögu lista og menningar.

 


Dagur 6.

 


Ravenna – Florence u.þ.b. 55 km. og lest.
Nú breyta hlíðar Appenínafjallgarðsins útsýninu og áfram er hjólað um akra og engi, framhjá sveitabæjum og litlum þorpum áður en við nálgumst borgina Faenza sem fræg er fyrir keramiklist sína. Eftir það er stutt til Brisighella sem er einstök miðaldaborg, og miðbærinn þar engu líkur. Frá Brisighella tökum við lest til Flórens.

 


Dagur 7. Flórens.

 


Það er einfaldlega ógleymanleg upplifun að ganga um miðbæ Flórens þar sem eru óviðjafnanleg listasöfn, listaverk á götum úti, dómkirkjan fagra Santa Maria del Fiore, brúm yfir ána Arno og  iðandi mannlífi.


Dagur 8.

 


Lestarferð frá Flórens til Mílano til að ná fluginu heim klukkan 14:20

 

Lágmarksþátttaka er 12 manns.

 

Verð á mann miðað við tveggjamannaherbergi    225.000 kr. + 15.000 vildarpunkta

* 235.000 án vildarpunkta

Eingöngu er hægt að nota punkta ef ferð er bókuð á netinu.

Innifalið
  • Flug

  • Skattar
  • Gisting á 3ja til 4ra stjörnu hótelum

  • Morgunverður

  • Farangur fluttur milli staða

  • Reiðhjól

  • Lestar- og ferjugjöld

  • Íslenskur fararstjóri

Lágmarksþáttaka er 12 manns

 
 

Gistingar í Hjólaferð Feneyjar - Flórens  

Það er gist á  3- 4 stjönu hótelum allan tíma og gist eina nótt á hverjum stað .

 

(+)nánar

Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar