Gönguferð um Lykíuleiðina í Tyrklandi

Gönguferð um Lykíuleiðina í Tyrklandi

Gönguferð  um Lykíuleiðina í Tyrklandi 26.október - 4.nóvember 2010
“ Í hefðbundnum takti”

 


Tyrkland er einstaklega spennandi og áhugaverður áfangastaður sem býður upp á skemmtilegt og fjölbreytt gönguland. Fólkið er elskulegt, maturinn góður og náttúran einstaklega falleg. Göngu-Hrólfur hefur boðið upp á gönguferð eftir Lýkíuleiðinni kringum bæina Cirali og Kas í nokkur ár við mjög góðar undirtektir. Cirali er sveitaþorp við langa og fallega sandströnd sem er friðuð vegna þess að sæskjaldbökur verpa þar og Kas er skemmtilegur hafnarbær byggður á rústum fornborgarinnar Antiphellos. Gengið er eftir áhugaverðum slóðum á Lykíuleiðinni sem er fyrsta langa gönguleið  Tyrklands 500 kílómetrar í allt. Þegar hún var opnuð árið 2000 var hún samstundis valin ein af tíu bestu gönguleiðum í heimi af dagblaðinu Sunday Times. Farið er um einstakar rústir fornborga og  milli logandi jarðelda Cimenea á Yanartas en þar brennur jarðgas í jörðu.  Þá stendur  áhugasömum göngugörpum til boða að klífa fjallið Olympos aðrir geta gengið hálfa leið og notið fjallakyrðar í einstökum Cetrusskógi. Einnig er siglt yfir hina sokknu borg Kekova og komið við í bænum Myra til að skoða  kirkju heilags Nikulásar (jólasveinsins) stórkostleg grafhýsi sem eru grafin í klettavegg og hið einstaka hringleikahús sem þar er.

 

 

Dagur 1 Reykjavík-Antalya-Cirali


 Eftir beint flug er lent á flugvellinum í Antalya.  Þaðan er haldið samstundis til þorpsins Cirali, tveggja til þriggja tíma akstur og gist þar er næstu nætur.

 

 Dagur 2 Cirali -Olympos Ulupinar, Yanartas

 


 Fyrir hádegi er farið í létta göngu og haldið eftir ströndinni að rústum hins forna Olymposbæjar. Síðan er gengið til þorpsins Ulupinar. Eftir að hafa stoppað á spennandi veitingastað er gengið  til baka um fallegan dal og furuskóg. Útsýnið er einstakt yfir Olymposfjallið (Tahtali) og fagurblátt hafið, leitast er við að  vera um sólarlagsbil við hina  eilífu eldum (Chimaera) sem stöðugt brenna í iðrum jarðar.

 


Dagur 3 Tahtali (hið forna fjall Olympos)

 


Gangan hefst við bæinn Bycik í um 1000 metra hæð þaðan er haldið eftir ævagömlum cedrusskógi að beitilöndum fjárhirða við rætur Tahtali tindsins (2340 m), þeir sem kjósa geta haldið alla leið á toppinn þar sem þeir njóta einstaks útsýnis og vogskorin ströndin blasir við svo langt sem augað eygir. Það er líka hægt að taka það rólega, ganga upp í fjallaskarð sem er í 1800 metra hæð og njóta sérstæðs umhverfisins þar. Halda síðan niður til Bycik og bíða fjallagarpanna  á tehúsi bæjarins.

 

Dagur 4 Cirali-Maden 


Ganga dagsins hefst við hótelið í Ciralis. Þaðan er gengið meðfram ströndinni áleiðis til Phaselis hinar fornu borgar Rhódosbúa. Þar tóku menn vel á móti Alexander mikla sem dvaldi  vetrarlangt í borginni áður en hann lagði í sína miklu herferð austur til Persíu. Það er þó ekki gengið alla leið þangað heldur snúið við á miðri leið og haldið sömu leið til baka. Fólk getur því stjórnað því sjálft hversu langt það vill ganga. Farið er eftir skemmtilegum stígum meðfram klettóttri strönd og um litlar fallegar sandfjörur. Meðal annars er gengið eftir ströndinni  við Maden þar sem sjá má merkilegar námarústir.

 


Dagur 5 Cirali, Aricanda, Kas

 


Þennan morgun pakka menn farangrinum og yfirgefa gististaðinn í Cirali. Nú er haldið til strandbæjarins Kas þar sem gist verður næstu 5 nætur. En fyrst liggur leiðin upp í fjöll og komið er við í hinum vel varðveitta fornbæ Arycanda. Þar eru fjölmargar og einstakar rústir, meðal annars leikhús, rómverskt baðhús, fjölleikahús, musteri Heliosar og sérlega fallegt útsýni. Gist í Kas.

 

Dagur 6 Kas-Phellos

 


Gengið er  eftir fornri leið milli fornborganna Antiphellos og Phellos en Kas stendur nú á rústum þeirrar fyrrnefndu. Farið er eftir Cukurbak sléttunni um sérkennilegt steinhúsaþorp að rústum Phellos.  Þar uppi á hæð er mikið af einstaklega fallegu steinkistum og mikið víðsýni við blasa  Lýkíafjöllin (Akdag 3.024m og Kyzlarsivrisi (3.070 m). Gist í Kas.

 

Dagur 7 Kilincli -Appolonia-Aperlae-Kekova

 


Ekið til Kilincli og gengið þaðan upp á akrópólíshæðina í Apolloníu og síðan eftir fornri leið fjárhirða að rústum hafnarborgarinnar Aperlae. Síðdegis er farið í bátsferð og hinar sérstæðu neðanjarðarrústir Kekóvaeyjarinnar skoðaðar ásamt ýmsu fleiru áhugaverðu þar um kring. Á leiðinni heim til Kas er komið við í fiskimannaþorpinu Ucagiz. Hægt er að taka hressilegan sundsprett í Teresanflóanum.

 

Dagur 8. Frjáls dagur

 


Mörgum finnst kærkomið að fá einn rólegan dag til að skoða sig um í bænum eða bara slaka á í sólinni. Aðrir velja að fara í létta gönguferð um næsta nágrenni bæjarins, fara í nokkurra tíma kajakferð meðfram ströndinni, svífa í svifdreka eða prófa köfun. Allt slíkt er í boði í Kas sem er mikill útivistabær.

 

Dagur 9  Bayindyr –Liman Agzi – Kas.

 


Gangan hefst skammt frá  bænum Bayindyr. Þar er mikið af hálfhrundum steinhlöðnum húsum en einnig má sjá nýjar villur. Áður fyrr fluttu íbúarnir í sel  á Elmalihásléttunni á sumrin þegar vatnið í vatnsbólunum þornaði og hitinn í bænum gat orðið óþolandi. Nú eru flestir íbúarnir fluttir í fjöllin þar sem þeir stunda meðal annars eplarækt.  Gengið er  niður að ströndinni  um engi, akra og  ólívulundi. Síðan er haldið meðfram ströndinni eftir Lykíuleiðinni og staldrað við í lítilli og skemmtilegri vík Liman Agzi ( hafnarmynnið),  þeir sem vilja geta tekið þar sundsprett. Gist í Kas.

 

Dagur 10 Kas- Myra Antalya

 


Þá er Kas yfirgefin og haldið áleiðis til Antalya. Á leiðinni er komið við í fornborginni Myru, þaðan sem Sánkti Kláus er upprunninn, öðru nafni jólasveinnin. Heilagur Nikulás fyrirrennari hans var biskup í Myru og þar stendur kirkja hans. Stórfengleg grafhýsi eru hoggin í klettaveggina og þar er líka vel varðveitt rómverskt leikhús. Flogið heim frá Antalya.

 

Þessi ferð er 2 fjöll  

Í hluta göngunnar er farið um ójafnt landslag með ógreinilegum stígum. Hækkun getur verið 6-800 metrar og sumar dagleiðir geta tekið 8 tíma. Til að njóta ferðarinnar þurfa þátttakendur að hafa reynslu af fjallgöngum og gönguferðum úti í náttúrunni eða verið virkir í einhverri góðri líkamsþjálfun. Og það er nauðsynlegt að vera í góðu líkamlegu formi. Þeir sem vilja geta gengið á fjallið Ólympos það er um 2400 metrar og hækkun er þá 1400 metrar. Aðir geta látið sér nægja að fara í skarð sem er í 1800 metrum.
 

Verð á mann m.v tvo saman í herbergi

254.600 og 15.000 vildarpunkta

*verð án vildarpunkta 264.600

Aukagjald fyrir einbýli 30.000

 

Innifalið
  • Flug og skattar
  • Gisting og  allir flutningar
  • Kvöldverðir á hótelunum Grand Aygun Cirali  og Aqua princess Kas.
  • Hádegisnesti og millimál.
  • Bátsferð í Kekova þar sem boðið er upp á grillmat.
  • Aðgöngumiðar í rústir fornborganna Olympos, Chimera, Arycanda, Simena og Myra og í Nikulásarkirkjuna.
  • Íslenskur fararstjóri og tyrkneskur göngugarpur.

 

Lágmarks þáttaka er 12 manns .

 
 

Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Vildarklúbbur Icelandair

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Gengi gjaldmiðla

Fylgstu með gengisskráningu VISA greiðslukorta.

Ferðaávísun Mastercard

Nýttu þér ferðaávísun Mastercard þegar þú verslar hjá VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit


Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar

Inspired by Iceland