Hlaupaferð um West Highland Way

Hlaupaferð um West Highland Way

  
West Highland Way öll leiðin  9. - 18. júlí
  
Hlaupaferð um West Highland Way.
Þessa vinsælustu gönguleið Skotlands er orðin mjög vinsæl hjá skokkurum síðustu ár og er mikil aukning frá ári til árs enda frábær leið þar sem blandast saman hlaup og að njóta náttúrunnar.
Ekki verður farið á neinu spani yfir þar sem náttúrufegurð er það mikil  , þannig að þetta er miðlungs erfið ferð en fyrir þá sem vilja geta þeir farið hraðar yfir í samráði við fararstjóra

 

 

Dagur 1: Glasgow

 


Lent á Glasgow flugvelli kl. 13:30, ekið á fyrsta gististað. Frjáls eftirmiðdagur í Glasgow.
Um kvöldið er móttaka (kvöldmatur) hjá fararstjóra, þar sem tækifæri gefst á að hrista hlaupahópinn saman og  farið verður yfir dagskrá næstu daga.

 


Dagur 2:  Milngavie - Drymen

 


Hlaupaleiðin liggur  frá Milngavie, úthverfi Glasgow í gegnum skóglendi og út í fagurgræna sveitina. Þægilegur dagur í skokki og ágætis upphitun fyrir næstu daga.
Hlaup: 19 km - Hækkun: 90 m

 


 
Dagur 3: Drymen - Rowardennan

 


Þennan dag er skokkað í skóglendi og þaðan upp Conic Hills (360 m) þar sem hverjum og einum er frjálst að ganga eða skokka upp. Héðan er stórkostlegt útsýni yfir Loch Lomond vatnið og eyjarnar. Skokkað gegnum Balmaha og meðfram Loch Lomond áleiðis til Rowardennan.
Ganga: 22,5 km - Hækkun: 360 m

 

 

Dagur 4: Rowardennan - Inverarnan

 


Þessi dagur er mjög fjölbreyttur í skokki og að hluta til gengin vegna aðstæðna og að hluta sein farin. Mestur hluti af deginum er meðfram Loch Lomond vatninu og er þessi leið afskaplega falleg og skemmtileg.
Hlaup: 22,5 km - Hækkun: 240 m

 


 
Dagur 5: Inverarnan - Tyndrum

 


Skokkað upp Glen Falloch dalinn, framhjá Falloch  fossum og upp hjá Crianlarich áleiðis til Tyndrum. Fallegt útsýni yfir sveitina.
Hlaup: 21 km - Hækkun: 300 m

 

 

Dagur 6: Tyndrum - Kingshouse

 


Lengsti dagurinn framundan. Nánast öll leiðin er skokkuð á gömlum hermannavegum til Bridge of Orchy og upp á heiðina miklu Rannoc Moor, síðan niður til Kingshouse.
Hlaup: 30 km - Hækkun:330

 


 
Dagur 7: Kingshouse - Kinlochleven

 


Hér er skokkað eða gengið fyrir þá sem það vilja , upp hinn fræga Devil's Staircase ( Djöflastigann), hér er hæsti punktur á leiðinni eða 530 m. Þetta er ekki eins erfitt eins og nafnið segir til um heldur hinn besti stígur upp og á toppnum er fögur fjallasýn hvert sem litið er. Þaðan liggur leiðin til Kinlochleven sem er næst stærsti bærinn á leiðinni.
Hlaup: 14,5 km - Hækkun: 540 m

 


Dagur 8: Kinlochleven - Fort William

Lokadagurinn runninn upp. Stemning í hópnum þegar hann skokkar ( gengur ) upp hlíðar Kinlocleven og skokkar áleiðis til Fort William. Munum skokka dali,skóga og við rætur Ben Nevis, hæsta fjalls Bretlandseyja (1.344 m).
Ganga: 22,5 km - Hækkun: 300 m

 

Dagur 9: Fort William  - Glasgow

 


Keyrt til Glasgow, ferðin tekur 3 tíma. Farið verður með farangur og fólk á gististaðinn og síðan er frjáls dagur + kvöld. Kjörið að heimsækja Edinborg (50 mín. með lest) eða spóka sig um í Glasgow.
 

 

Dagur 10: Heimferð

 


Ekið til Glasgow flugvallar kl. 12:00. Flogið heim til Íslands kl. 14:20.

 


 

  
   

 

 

Verð 190.000 á mann

Innifalið :

Flug, skattur ,akstur til og frá Glasgow / Manchester flugvelli, ferðir til og frá upphafsstað göngu, gisting og morgunverður alla dagana, móttaka (kvöldmatur) fyrsta kvöldið hjá fararstjóra (í West Highland Way ferðum), farangursflutningur á milli gististaða, hádegisnesti (samloka, ávöxtur og orkustangir) á göngu/hlaupaleið og fararstjórn.  

Verð miðast við tvíbýli. Aukagjald fyrir eins manns herbergi.

 

 

Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar