Bolzano - Feneyjar

Bolzano - Feneyjar

Bolzano  Feneyjar

16. - 23.júní 2012

Ferðin hefst á þvi að hjólað er gegnum Suður-Týról  með ánni Adige til borgarinnar Trentó.  Eftir það liggur leiðin til Riva de Garda þaðan sem er siglt er eftir endilöngu Gardavatninu. Frá suðurenda vatnsins er hjólað í austurátt til Veróna og þaðan til Feneyja þar sem síðasta deginum er eytt á Markúsartorgi, á göngu um hliðargötur eðaí sólbaði á ströndinni. Lögð er áhersla á að njóta ferðarinnar, njóta ítalskrar matargerðar og kynnast landinu sem hjólað er um. Hjólaleiðin er að mestu um láglendi, eina brekkan sem tekur að nefna er Monti Berici. Fyrstu tveir dagarnir eru á hjólabrautum, frá Gardavatni er hjólað á fáförnum sveitavegum.

 

 

Dagur eitt. Reykjavík - Bolzano

 


Flogið til Mílanó kl.7:30 og lent í Mílanó kl. 13:20, þar sem rúta bíður hópsins og ekið sem leið liggur til hinnar fögru borgar Bolzano, þar sem hjólafólk fær reiðhjólin afhent.

 

 

Dagur tvö. Bolzano - Trento 70. km.

 

 

Þrátt fyrir 70 kílómetra vegalengd er þessi dagur auðveldur þar sem hjólað er niður með ánni Adige en hún rennur milli hárra skógi vaxinna fjalla. Hjólastígurinn er malbikaður og umhverfið einstaklega tilkomumikið. Gist í borginn Trento en þar er gamall miðbær sem vert er að líta augum.

 

 

Dagur þrjú. Trento - sigling á Garda - Desenzano. 50 km og sigling.

 


Leiðin liggur til að byrja með áfram niður með ánni Adigo en eftir um það bil 25 kílómetra er farið yfir að lága heiði þar semr opnast stórkostlegt útsýni yfir Gardavatnið og borgina Riva del Garda. Við höfnina þar bíður skip sem flytur hjól og hjólafólk til suðurenda Gardavatns þar sem gist er þessa nótt. Siglingin tekur um það bil fjóra klukkustundir.

 

 

Dagur fjögur. Desenzano - Veróna. 50 km.

 


Þennan dag er hjólað gegnum víngarða og fagrar sveitir til Veróna. Borgin sú er hreinlega troðin af skemmtun. Markaðurinn í miðbænum er engu líkur, iðandi mannlíf, götulistafólk, kaffihús og veitingahús á hverju strái.

 

 

Dagur fimm. Veróna - Vicenza. 70. km.

 


Dagurinn hefst á lestarferð til San Bonifacio en þaðan er auðveld leið þar til eina brekka allrar leiðarinn hefst. Brekkan sú er þó ekki nema 3ja kílómetra löng og engun ofraun. Á leiðinni upp brekkuna gefst tækifæri til að heimsækja vínbónda og bragða á framleiðslu hans og njóta um leið fagurs útsýnis. Frá brekkubrúninni er svo frábært útsýni yfir Vicensa er þar er gist þessa nótt.

 

 

Dagur sex. Vicenza - Feneyjar. 50 km.

 


Hjólaleið þessa síðasta dags hefst einnig á lestarferð til borgarinnar Padua sem er fagur háskólabær. Eftir kaffistopp á torginu liggur leiðin til Mestre sem er gististaður tveggja síðustu náttanna. Frá Mestre ganga strætisvagnar á 10 mínútna fresti til Feneyja og tekur sá akstur innan við hálftíma.
Þar er deginum eytt á kaffihúsum, á torgum, göngugötum eða siglingu á síkjunum, að ógleymdri ströndinni á eynni Lido en þangað er um það bil fimm mínútna sigling frá Markúsartorgi.

 

 

Verð á mann miðað við tveggjamannaherbergi

215.000 isk + 15.000 punkatar

*verð án punkta  225.000 isk

Eingöngu er hægt að nota punkta ef ferð er bókuð á netinu.

innifalið

  • flug og skattar
  • gisting með morgunverði
  • lestarferðir
  • Leiga á hjólum (21 gíra götuhjól)
  • Farangursflutningut milli hótela
  • Íslensk fararstjórn

 

 
 

Pakkar

Með skráningu í netklúbb VITA tryggir þú þér að vera með þeim fyrstu sem fá tilkynningar um nýjar ferðir, fréttir og tilboð.

Skráðu þig í netklúbb VITA
Fyrir marga er skemmtilegasta skeið ævinnar eftir sextugt. Ein helsta ástæða þess er að fáir aldurshópar hafa kost á því að ferðast jafnmikið, en ferðalög eru ein af forsendum þess að geta notið lífsins til fulls.
(+)nánar

Hópferðir

Ertu að skipuleggja hópferð? Smelltu hér

Icelandair Saga Club

Fáðu upplýsingar um hvernig þú getur notað Vildarpunktana þína.

Hrós og hugmyndir

Viltu senda okkur hrós eða ertu með einhverja hugmynd fyrir okkur?

Algengar spurningar

Fáðu svör við helstu spurningunum sem þú kannt að hafa og tengjast ferðalagi þínu með VITA.

Þú er hér:


Breyta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir



Þú getur notað Vildarpunktana hjá okkur
(+)nánar